Morgunblaðið - 19.04.2014, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014
Sigurður Ægisson
sae@sae.is
Í ljósi fækkunar langvía og fleiri sjó-
fugla hérlendis á að ráðast í nýja
talningu í íslenskum fuglabjörgum í
sumar til að reyna að komast að því
hvort einhverjar breytingar hafi orð-
ið hér og annarstaðar í Atlantshafi á
hlutfalli hringvíunnar, sem er sér-
stakt litarafbrigði langvíu. Bresku
fuglafræðingarnir Sarah Wanless og
Michael Harris verða þar í fylkingar-
brjósti.
Á árunum 1938-1978 voru langvíur
taldar í íslenskum fuglabjörgum og
kom þá í ljós, að hlutfallslega var
mest af hringvíu í Vestmannaeyjum,
52,8%, en minnst norðanlands, t.d.
ekki nema 4,2% í Hornbjargi.
Hringvía verður því algengari sem
norðar dregur á útbreiðslusvæðinu,
nema á Íslandi, þar snýst dæmið við.
Umrætt hlutfall var á síðustu áratug-
um 20. aldar 1-5% á Englandi, 6-17%
í Skotlandi, 12,5% í Suður-Noregi,
19,4-24,6% í Norður-Noregi, 36-50%
á Nóvaja Semlja og 57,3% í Bjarna-
rey. Einkenni þessara fugla er hvítur
augnhringur og samskonar litrák aft-
ur frá honum. Eitt stakt gen stýrir
þeirri svipgerð og er víkjandi
svonefnd mendelsk erfð.
Langvían er ein af sex tegundum
svartfugla sem heimkynni eiga í
Norður-Atlantshafi. Hinar eru álka,
haftyrðill, lundi, stuttnefja og teista.
Fræðimenn skipa langvíunni í
nokkrar deilitegundir. Allra nyrst, á
svæðinu Norður-Noregur, Múr-
mansk, Bjarnarey, Svalbarði og Nó-
vaja Semlja, er tegund sem nefnist
U. a. hyperborea. Þá tekur nafnteg-
undin við, U. a. aalge, sem nær frá frá
Austur-Kanada, um Grænland, Ís-
land, Færeyjar, norðurhluta Skot-
lands, Eystrasalt og Suður-Noreg.
Og syðst er U. a. albionis, sem nær
frá Bretlandseyjum (sunnan 55°
38’N) um Írland, Helgoland, Bre-
tagne-skagann á Norðvestur-
Frakklandi og vesturhluta Pýrenea-
skagans. Auk þessara eru svo a.m.k.
tvær aðrar, báðar í Kyrrahafi, U. a.
californica og U. a. inornata.
Að sumri til eru fuglar norrænu
deilitegundanna (U. a. hyperborea og
U. a. aalge, einkum þó hinnar fyrr-
nefndu) næstum svartir að ofan en
hvítir að neðan. Að auki eru þeir með
dökkar kámur á síðunum og dökkt í
undirvæng. Suðræna deilitegundin
(U. a. albionis) er hinsvegar nokkuð
ljósari á baki, eða dökkkaffibrún, og
að jafnaði minni. Litarmunur kynja
innan deilitegundanna er enginn.
Hringvíur verða taldar á
ný í fuglabjörgum í sumar
Hlutfall hringvíu í Atlantshafi hækk-
ar eftir því sem norðar dregur Öfugt
farið á Íslandi Hlutfallið hæst í Eyjum
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Hringvía Eitt litarafbrigða langvíu, sem er ein sex tegunda svartfugla hér.
Engar kjara-
viðræður fara
fram um helgina
en Elísabet S.
Ólafsdóttir,
skrifstofustjóri
ríkissáttasemj-
ari, segir að
samninganefndir
hafi verið sendar
heim í páska-
leyfi.
„Við tökum okkur frí yfir
páskana en komum svo endurnærð
strax á þriðjudaginn þegar hefjast
fundir með samninganefndum flug-
vallarstarfsmanna og Isavia,“ segir
Elísabet við Morgunblaðið.
Engar kjaraviðræður
yfir páskahátíðina
Enginn vöfflubakst-
ur verður um páska.
Í tilefni af Mottumars hélt starfs-
fólk Arion banka svokallað karla-
kvöld, til styrktar baráttunni gegn
krabbameini hjá körlum. Alls söfn-
uðust rúmar 2 milljónir króna og
hefur styrkurinn verið afhentur
forsvarsmönnum verkefnisins
Heilsusaga Íslands sem unnið er í
samstarfi við Krabbameinsfélag Ís-
lands. Fyrr í vetur söfnuðust 1,5
milljónir á konukvöldi Arion banka,
sem fóru til Krabbameinsfélagsins.
3,5 milljónir frá
starfsfólki Arion
Gjafir Starfsfólk Arion banka afhendir af-
rakstur karlakvöldsins, 2 milljónir króna.
Mánudagurinn 28. apríl
18:00 Þórður Þórarinsson –
Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins –
kynning á innviðum flokksins.
18:30 Magnús Júlíusson – Formaður SUS
19:00 Þórey Vilhjálmsdóttir Formaður LS
19:30 Styrmir Gunnarsson og Geir H.
Haarde – Sagan og sjálfstæðisstefnan
Þriðjdagurinn 29. apríl
18:00 Lára Óskarsdóttir – Ræðumennska
og framkoma í fjölmiðlum
19:30 Óli Björn Kárason – Greinarskrif á
vettvangi stjórnmála
20:30 Magnús Sigurbjörnsson –
Samfélagsmiðlar í pólitík
Þórður Þórarinsson Þórey Vilhjálmsdóttir Geir H. Haarde
Halldór Halldórsson Bjarni BenediktssonÓli Björn Kárason
Magnús Júlíusson Styrmir Gunnarsson Lára Óskarsdóttir
Aldís Hafsteinsdóttir Ragnheiður RíkharðsdóttirMagnús Sigurbjörnsson
Miðvikudagurinn 30. apríl
18:00 Halldór Halldórsson og Aldís Hafsteinsdóttir í ráðhúsinu
19:30 Bjarni Benediktsson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir í alþingishúsinu
20:00 Lokaathöfn í þingflokksherbergi Sjálfstæðisflokksins
STJÓRNMÁLASKÓLI
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís-
lands, heimsótti Langanes-
prestakall í vísitasíu sinni um Þing-
eyjarprófastsdæmi um síðustu helgi
en veðrið lék ekki við gestina þessa
helgi.
Með í för var biskupsritari, Þor-
valdur Víðisson, og höfðu þau gist á
Raufarhöfn. Um nóttina varð Hófa-
skarðið ófært svo úr varð að björg-
unarsveitarmenn á Raufarhöfn
fylgdu biskupsbílnum yfir Hálsana
til Þistilfjarðar á laugardagsmorgni
og gekk það vel en dagskráin hófst
með heimsókn og helgistund í Sval-
barðskirkju.
Á Þórshöfn heiðraði biskup dval-
arheimilið Naust með nærveru sinni
og þar var snæddur hádegisverður
með fleiri gestum en kirkjuskoðun á
Þórshöfn og Sauðanesi var einnig á
dagskrá. Á laugardagskvöldið var
guðsþjónusta í Þórshafnarkirkju
þar sem biskup prédikaði og sókn-
arprestur þjónaði fyrir altari. Börn-
in tóku virkan þátt í helgihaldinu,
gáfu kirkjugestum pálmagreinar og
sungu með biskupi.
Friðrik Ómar á tónleikum
Kirkjusamveru var þó ekki alveg
lokið því söngvarinn Friðrik Ómar
var með tónleika í kirkjunni fljót-
lega eftir að messu lauk um kvöldið.
Friðrik er á tónleikaferðalagi um
landið með undirleikurum sínum og
flytur sálma og saknaðarsöngva í
kirkjum landsins. Kirkjugestir
hlýddu á ljúfa tónleika í kirkjunni,
uppljómaðri af kertaljósum, og
voru þessir viðburðir í Þórshafn-
arkirkju góð byrjun á páskahátíð-
inni.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Gjöf Ása litla Sigurðardóttir kom með föður sínum til hádegisverðar á
Nausti og fékk kross að gjöf frá Agnesi M. Sigurðardóttur biskupi.
Vísiteraði í fylgd
björgunarsveitar
Biskup heimsótti Langnesinga