Morgunblaðið - 19.04.2014, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014
Viltu selja bílinn?
Hærra uppítökuverð
Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með
fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum.
Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is
og við sendum þér staðgreiðslutilboð
þér að kostnaðarlausu.
ÚR BÆJARLÍFINU
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbæ
Mjög jákvæðar og góðar fréttir
hafa borist af skóla- og fræðslu-
málum bæjarins að undanförnu.
Framtíðarsýn í skólamálum hlaut í
upphafi árs nýsköpunarviðurkenn-
ingu í opinberri þjónustu og stjórn-
sýslu, m.a. fyrir metnað og nýjar
áherslur.
Nýjar áherslur hafa m.a. skilað
því að stór hluti elstu leikskóla-
barnanna er læs og koma þau því vel
undirbúin í skólann. Ipad-væðing
grunnskólanna miðar m.a. að því að
jafna félagslega aðstöðu nemenda og
Skólavogin sýnir að foreldrar grunn-
skólabarna eru bæði ánægðir með
skólastarfið og stjórnendur grunn-
skólanna í Reykjanesbæ. Þá má geta
þess að dregið hefur úr brottfalli í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Leikskólinn Holt hefur hampað
tveimur viðurkenningum það sem af
er ári, fékk Evrópuverðlaun fyrir e-
twinning-verkefni sitt „Talking Pict-
ures“ og leikskólabörn unnu í
myndasamkeppni Landlæknisemb-
ættisins sem tengdist vatni. Mikil
áhersla er á listsköpun og listnám í
leikskólanum.
Ný aðstaða Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar í Hljómahöll hefur
gjörbreytt kennsluaðstöðu skólans.
Breytingar voru orðnar löngu tíma-
bærar og þess ánægðara er starfs-
fólk skólans og nemendur. Ekki sak-
ar að hafa Rokksafn Íslands í sama
húsnæði, sem ætti að auka vitneskju
nemenda um íslenska tónlistarsögu.
List án landamæra er verkefni
þar sem fatlaðir og ófatlaðir vinna
saman að listsköpun og samfélags-
málum. Áhugaverð ljósmyndasýning
verður opnuð í Ráðhúsi á miðvikudag
en myndirnar sýna fatlaða ein-
staklinga við draumastörf sín í bæn-
um. Ýmsir aðrir viðburðir verða dag-
ana 22. apríl til 6. maí.
Tvær leiksýningar verða um
aðra helgi í Frumleikhúsinu þar sem
fatlaðir og ófatlaðir sýna afrakstur
vinnu við uppsetningu á frumsömdu
verki, sem styðst við lög úr þekktum
erlendum söngleikjum. Verkið gerist
í fangelsi þar sem bæði fangar og
fangaverðir eru af ýmsum toga.
Yngsti þátttakandinn er 6 ára og sá
elsti 53 ára.
Fyrsta hugmyndin að nýjum
íbúavef Reykjanesbæjar
(www.rnb.ibuavefur.is) var send til
umhverfis- og skipulagsráðs í síðustu
viku sem ábending í samræmi við
verklagsreglur vefjarins. Það eru
tímamót en framhaldið veltur að
sjálfsögðu á íbúum og hversu dugleg-
ir þeir verða að nota vefinn. Fyrsta
hugmyndin varðaði uppbyggingu
hjólastíga í bænum.
Nú er ljóst að a.m.k. sex framboð
munu bjóða fram lista til sveitar-
stjórnarkosninga 31. maí nk. Sjálf-
stæðisflokkurinn, Framsóknarflokk-
urinn og Samfylking munu bjóða
fram eins og mörg undanfarin kosn-
ingaár, en þrjú ný framboð hafa ver-
ið kynnt.
Bein leið fyrir fólkið í bænum
býður nú fram í fyrsta sinn, þó leið-
togi hópsins sé ekki óvanur stjórn-
málum, Guðbrandur Einarsson, fyrr-
verandi samfylkingarmaður. Gunnar
Þórarinsson, núverandi bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, er með sér-
framboð, Frjálst afl, og Píratar bjóða
fram lista.
Ekkert hefur enn heyrst frá
Vinstri grænum sem buðu fram í
fyrra en enn er rúmur mánuður í
kosningar og margt getur gerst á
þeim tíma.
Sumardagurinn fyrsti er á
næsta leiti og það þýðir opnun land-
námsdýragarðsins við Víkingaheima.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbær Frá æfingu á leikverki sem fatlaðir og ófatlaðir vinna saman að í verkefninu List án landamæra.
Jákvæð tíðindi í skólamálum
Kolmunni er genginn af krafti
norður í færeyska lögsögu og þar
voru 12 íslensk skip að veiðum í
vikunni. Á vef HB Granda er haft
eftir Guðlaugi Jónssyni, skipstjóra
á Ingunni AK, að veiðarnar hafi
byrjað fyrir alvöru að kvöldi mánu-
dags og áhöfnin á Ingunni lauk við
fyrsta holið á þriðjudagsmorgun.
,,Það er fínasta veiði og við höf-
um verið að fá þetta um 300 til 500
tonn í holi. Við lentum því miður í
vandræðum með trollið og misst-
um stærsta holið en samtals erum
við komnir með um 1.500 tonna
afla,“ sagði Guðlaugur við tíðinda-
mann HB Granda að morgni skír-
dags. Ingunn var þá um 110 mílur
SV af Akrabergi, syðsta odda Fær-
eyja.
Samkvæmt samningum við Fær-
eyinga mega aðeins 12 íslensk skip
vera að veiðum í færeysku lögsög-
unni í einu. Skipin hófu veiðar í al-
þjóðlegri lögsögu vestan við Írland
en eftir það gekk kolmunninn inn í
bresku lögsöguna og það var ekki
fyrr en í byrjun vikunnar sem hann
gekk norður fyrir færeysku lög-
sögumörkin.
12 íslensk fiskiskip hafa verið á kolmunna-
veiðum í færeyskri lögsögu í dymbilviku
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Brotaviljinn virðist mjög einbeittur.
Hér býr eitthvað meira að baki en
bara að fólk sem er að koma af næt-
urlífinu fari út af sporinu,“ segir séra
Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprest-
ur á Akureyri. Litlu mátti muna að
stórtjón yrði aðfaranótt skírdags
þegar eldur var borinn að hurð Ak-
ureyrarkirkju.
Eldfimum vökva hafði verið úðað á
hurðina, sem er úr gegnheilli eik, og
pappír sem vættur var með eldfim-
um vökva var lagður við dyrnar til
íkveikju. Ekki tók langan tíma að
slökkva eldinn, en skemmdir eru
miklar og hurðin trúlega ónýt.
Spellvirkin ekki einsdæmi
Spellvirki þessi við Akureyrar-
kirkju eru ekki einsdæmi. Haustið
1996 komst þjófur að nóttu þar inn
og braut meðal annars 200 pípur í
orgeli kirkjunnar, vann skemmdir á
altari, helgimynd og brenndi gamla
biblíu. Þá var einn steindur gluggi í
kirkjunni brotinn
og slík spellvirki
hafa raunar verið
endurtekin á
seinni árum. Yfir-
leitt hefur lög-
reglan upplýst
þessi mál.
„Nei, ég tel
ekki að þetta sé
eitthvað sem heit-
ir andkristin öfl.
Yfirleitt er þetta ölvunarrugl eða þá
að gerendur eru fólk sem líður eitt-
hvað illa,“ segir sr. Svavar, aðspurð-
ur hvort hann telji að einhver ann-
arleg sjónarmið kunni að tengjast
verknaði þessum. Hann sagði enn-
fremur að öryggisfyrirtæki annaðist
næturgæslu við kirkjuna. Athugað
yrði í ljósi síðustu atburða hvort
styrkja þyrfti þá varðstöðu, til dæm-
is með fleiri öryggismyndavélum.
Hjá lögreglunni á Akureyri feng-
ust þær upplýsingar í gær að unnið
væri að rannsókn málsins. Ákveðnar
vísbendingar væru til staðar, en þó
ekkert enn fast í hendi.
Ítrekuð skemmdar-
verk verið unnin
Ljósmynd/Karl Eskil
Lagfæringar Aðalhurð kirkjunnar er illa sviðin eftir eldinn sem að var bor-
inn. Iðnaðarmenn komu og bættu til bráðabirgða það sem hægt var.
Svavar Alfreð
Jónsson
Brennuvargar á ferð við Akureyrar-
kirkju Eldur borinn að eikarhurð