Morgunblaðið - 19.04.2014, Page 52

Morgunblaðið - 19.04.2014, Page 52
LAUGARDAGUR 19. APRÍL 109. DAGUR ÁRSINS 2014 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Mannskæðasta slys Everest 2. Vilborg og Ingólfur heil á húfi 3. Barnið mitt er í vatninu 4. Stolið úr tugum ferðataska  Bíó Paradís og sendiráð Póllands á Íslandi standa fyrir Pólskum kvik- myndadögum í fjórða sinn í ár og verða þeir haldnir 24.-26. apríl nk. Þrjár nýjar myndir verða sýndar og fjallar opnunarmyndin, Walesa. Czlo- wiek z nadziei, þ.e. Walesa. Maður vonar, um Lech Walesa, fyrrverandi forseta Póllands. Hinar myndirnar tvær eru Chce sie zyc, eða Lífið er yndislegt og verðlaunamyndin Ida, eða Ída. Lífið er yndislegt er sann- söguleg og fjallar um Mateusz sem þjáist af heilalömun og baráttu hans fyrir því að öðlast viðurkenningu. Ida segir af ungri konu sem hyggst ganga í klaustur en er staðráðin í að hitta Wöndu, eina ættingja sinn, áður en hún strengir heitin. Walesa á Pólskum kvikmyndadögum FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 10-18 norðaustantil og bjartviðri, en 8-13 þegar kemur fram á daginn. Hiti 0 til 9 stig, mildast austantil. Á sunnudag (páskadagur) Suðvestan 10-15 m/s og él, en heldur hægari og létt- skýjað á Norðausturlandi. Hiti 0 til 5 stig, en víða næturfrost. Á mánudag (annar í páskum) Suðaustan 8-15 m/s við suðvesturströndina og dálítil slydda eða rigning suðvestan- og vestanlands, en hægari annars staðar. Hlýnandi. Íslenska landsliðið í fimleikum átti góðu gengi að fagna á Norður- landamótinu í áhaldafimleikum sem lauk í Halmstad í Svíþjóð í gær. Kvennalandsliðið vann til brons- verðlauna í liðakeppninni í fjölþraut og þau Norma Dögg Róbertsdóttir og Jón Sigurður Gunnarsson unnu til verðlauna í einstaklings- keppninni. »1 Norma Dögg fékk silfur á Norðurlandamótinu „Mér hefur gengið vel í vet- ur og segja má að hann sé rökrétt framhald á því sem ég hef gengið í gegnum síð- ustu ár með Haukum. Ég hef fullt traust hjá Patreki [Jóhannessyni] þjálfara eins og hjá Aroni Kristjáns í fyrra,“ segir Árni Steinn Steinþórsson, sem valinn var besti leikmaður Olís- deildar karla af Morgun- blaðinu. »2 Árni Steinn hefur skarað fram úr Úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfuknattleik hefst í kvöld. Miami Heat hefur tvö undanfarin ár hampað meistaratitlinum og LeBron James og félagar hans í liðinu stefna á að vinna titilinn þriðja árið í röð. Það verð- ur ekki auðvelt en lið Indiana er til alls líklegt í úrslita- keppninni. »2-3 Miami stefnir á að vinna þriðja árið í röð Morgunblaðið kemur næst út þriðju- daginn 22. apríl. Fréttaþjónusta verður um páskahelgina á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is. Hægt er að koma ábendingum um fréttir á net- fangið netfrett@mbl.is. Þjónustuver áskrifta er opið í dag, laugardag, frá 08-12 en lokað er á páskadag og annan dag páska. Þjón- ustuverið verður opnað á ný á þriðjudag kl. 07. Sími þjónustuvers er 569-1122 og netfangið er askrift- @mbl.is. Blaðberaþjónusta er opin í dag, laugardag, frá 06-12. Hún verður opnuð að nýju á þriðjudag kl. 05. Hægt er að bóka dánartilkynningar á mbl.is. Símanúmer Morgunblaðs- ins er 569-1100. Fréttaþjónusta mbl.is um páskana Atli Vigfússon laxam@simnet.is „Það er rosalega gaman að vera hér í sveitinni og gefa kindunum. Ég kem oft um helgar þegar ég get og er þá alltaf í fjárhúsunum, enda hef ég mestan áhuga á sauðfénu og öllu sem því tengist,“ segir Birgir Arngrímsson, 13 ára nemi í Lundarskóla á Akureyri, sem hefur í ýmsu að snúast í páskafríinu á bænum Ytri-Tungu á Tjörnesi. Þar eru lömbin; fimm gimbrar og fjórir hrútar, farin að hoppa í krónni, en ekki stóð til að sauðburður byrjaði upp úr miðjum apríl svo ánægjan kom nokkuð óvænt. Venjulega byrja ærnar að bera í byrjun maí, en Birgir er ánægður með þessa tilbreytingu. Það varð uppi fótur og fit þegar komið var í fjárhúsin seinnipart dags þegar ein ær var borin þrílembd og jarmað var víða í krónni, enda ekki búið að setja kindina í sérstakt spil eða burðarstíu. Er sjálfur orðinn fjáreigandi Í Ytri-Tungu búa afi og amma Birgis, þau Guðrún Jóhannesdóttir og Jón Heiðar Steinþórsson. Einnig býr þar móðurbróðir hans, Steinþór Heiðarsson, með kýr og alltaf er eitthvað skemmtilegt að gerast í búskapnum. „Ég þekki þó nokkuð af kindum með nafni, en amma sér um bók- haldið og er með öll nöfnin á hreinu svo það þarf stundum að líta í bók- ina hjá henni þegar þarf að vita hvað þær heita,“ segir Birgir sem sjálfur er orðinn fjáreigandi og á e.t.v. von á 8-10 lömbum undan sín- um ám. Ærnar sem núna báru heita Gláma, Lúpa, Mýsla og Sókn, en það er ekki ennþá búið að nefna þessi níu lömb sem komu í vikunni. Það er ekki vaninn að nefna þau strax, en það verður gert í haust ef gimbrarnar verða settar á. Það er góður möguleiki á því, en búast má við að þær verði vænar þegar þær eru svona snemmbornar. Hins veg- ar segir Steinþór að lömb sem fæð- ist snemma þurfi ekki endilega að mælast sérstaklega vel að hausti og fyrirmálslömbin séu auðvitað ekki með betri byggingu en þau sem fæðast t.d. seint í maí. Gaman að gæfum kindum Bróðir Birgis, sem er 10 ára, hef- ur líka gaman af fénu og þeir bræð- ur reyna að koma í smalamennsku og eru alltaf báðir í réttunum. Birg- ir segir að það sé mjög gaman að vinna í hlöðunni við að losa heyið og gefa á garðana, auk þess sem hann tekur stundum að sér að tína egg undan hænunum. Þó að lömbin sem nú fæddust séu ekki orðin gömul þá eru þau strax farin að hoppa um og leika sér, enda öll fædd heilbrigð. Birgir ætlar að vera mikið í fjárhúsunum um páskana, enda mjög gaman að fylgjast með lömbunum þegar þau verða farin að gera alls konar kúnstir. Svo er e.t.v. hægt að gera þau gæf, eins og hrútinn Garp sem alltaf dillar dindlinum þegar honum er klappað. Þeir frændur, Birgir og Steinþór, eiga ekki von á því að sauðburður- inn sé að hefjast fyrir alvöru, en þeir telja að enn sé von á einni. Það er veturgömul kind sem er orðin mjög burðarleg svo sennilega bæt- ist í hópinn. Páskarnir í Ytri-Tungu verða líklega með skemmtilegra móti þetta árið og líflegt í meira lagi í lambakrónni. Líf og fjör í lambakrónni  13 ára Akureyr- ingur eyðir pásk- unum í sauðburði Morgunblaðið/Atli Vigfússon Páskalömb Birgir Arngrímsson og móðurbróðir hans, Steinþór Heiðarsson, með nýfædd páskalömbin. Vinir Hrúturinn fagurhyrndi, Garp- ur, er í miklu uppáhaldi hjá Birgi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.