Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.4. 2014 Vaxandi verðbólga, minnkandi hagvöxtur og fjármagns- flóttinn það sem af er árinu nemur um 70 milljörðum dollara. Tölurnar eru ískyggilegar. 140 milljón manna þjóð býr í þessu risastóra landi en landsframleiðsla Rússa er samt ekki meiri en á Ítalíu þar sem búa um 60 milljónir. Gengi rúblunnar hefur fallið hratt, seðlabankinn í Moskvu reyndi í gær að verja gengið, hækkaði vexti úr 7 í 7,5%. En sama dag gaf matsfyrirtækið Stand- ard&Poor’s Rússlandi einkunnina BBB- sem er einu stigi yfir ruslflokki. F yrir hundrað árum hik- uðu leiðtogar bæði stórra og lítilla ríkja ekki við að virkja tryllt þjóðernisofstæki til að fylkja þjóðinni að baki sér á ör- lagastundu. En nú hefur Vladímír Pútín Rússlandsforseti vakið upp gamla drauginn og segir að Rúss- landi beri skylda til að verja allt rússneskumælandi fólk ef það sæti ofsóknum eða misrétti. Hvar sem það býr. Er nóg að hundrað manna hópur rússneskumælandi manna í grann- ríki segist vera ofsóttur, á Rúss- land þá rétt á að gera innrás til að koma á „lögum og reglu“? Sé það svo þurfa mörg ríki að gæta sín. Rússneskumælandi minnihluta- hópar eru margir, bæði í austan- verðri Evrópu og nokkrum Mið- Asíulöndum. Þegar sterkir leiðtogar, eins og Pútín vill gjarna að þjóðin álíti hann vera, hefja fífldjarft ferðalag á baki þjóðrembutígursins og nota stór orð er oft erfitt að stíga af baki. Ef hann neyðist til að hopa, jafnvel múlbinda villidýrið, er hetjuímyndin orðin að engu. Aft- urkastið gæti orðið afdrifaríkt, reiðin gæti beinst að honum sjálf- um og tígurinn gert uppreisn, heimtað annan og hraustari knapa. Svonefnt alþjóðakerfi síðustu áratuga hefur byggst að miklu leyti, a.m.k. í Evrópu, á því að eitt ríki leggi ekki undir sig landsvæði í öðru með hervaldi. Fyrst í stað neitaði Pútín að viðurkenna að rússneskir hermenn hefðu verið notaðir til að taka öll völd á Krím, seinna gekkst hann við því. Og ljóst er af frásögnum margra heim- ildarmanna að atkvæðagreiðslan á Krím, fyrst á þingi og síðan þjóð- aratkvæðagreiðsla, fór ekki fram í samræmi við neinar lýðræðis- reglur. Um var að ræða blekkinga- leik þótt vafalaust hafi meirihluti rússneskumælandi íbúa á svæðinu viljað fara „aftur heim“. Nú róa Rússar leynt og ljóst undir átökum í austurhluta Úkra- ínu þar sem hluti rússneskumæl- andi fólks vill annaðhvort mikil tengsl við Rússland eða jafnvel að svæðið verði innlimað. Rússar hafa tugþúsundir hermanna rétt handan við landmærin, varla dregur það úr sigurvissu aðskilnaðarsinna. Her- æfingabröltið eykur enn ótta ann- arra Úkraínumanna, þ. á m. ráða- manna í Kænugarði, um að beðið sé eftir heppilegu tækifæri til að gera innrás. Og síðan eru rússneskir fjöl- miðlar notaðir til að heilaþvo al- menning með hræðslu- og hat- ursáróðri um hræðilega glæpi úkraínskra fasista gegn saklausum borgurum sem eiga sér rússnesku að móðurmáli. Skoðanakannanir, sem reyndar eru mjög ótraust- ar, benda samt til þess að fáir rússneskumælandi Úkraínumenn taki undir hatursáróðurinn frá Moskvu. Munu þeir „kjósa rétt?“ En friðsamir borgarar reyna yf- irleitt að láta lítið fyrir sér fara í andrúmslofti eins og nú ríkir á svæðinu. Pútín treystir hins vegar ekki að þeir muni „kjósa rétt“. Nú þegar hafa Rússar gefið sterklega í skyn að þeir muni ekki taka neitt mark á niðurstöðum forseta- og þingkosninga sem eiga að fara fram 25. maí. Vafalaust var Pútín brugðið þeg- ar Viktor Janúkóvítsj var steypt af stóli í Kænugarði. Draumur Pútíns um að Úkraína yrði smám saman aftur rússneskt áhrifasvæði virtist á enda. En ef hann dregur ekki í land núna getur farið svo að Vest- urlönd leggi sig fram um að minnka viðskiptatengslin við þetta ótrausta einræðisríki. Nú þegar hafa erlendar fjárfestingar í Rúss- landi snarminnkað. Menn treysta ekki dómskerfinu sem oftast fer að fyrirmælum ráðamanna. Fyrsta áratug Pútíns við stjórn- völinn gekk honum flest í haginn. Hagvöxtur var mikill og stöðugur, olíuverð var hátt. En á síðari árum hefur borið á öflugu andófi gegn forsetanum vegna spillingar og ein- ræðistilburða. Og efnahagurinn hefur staðnað, sáralítið er um ný- sköpun, neytendur hunsa innlenda framleiðslu sem oft er léleg og dýr. Verðbólga er vaxandi og fátt um jákvæð teikn, verðfall hefur orðið á verðbréfamörkuðum í Moskvu. Ungir Rússar yfirgefa landið í stríðum straumum, sjá ekki neina framtíðarmöguleika. Í tíð Pútíns hafa innviðir verið látnir reka á reiðanum, en um leið var varið 50 milljörðum dollara í Ólympíu- leikana í Sotsjí. Nú þarf Moskvu- stjórnin auk þess að verja miklu fé til að aðstoða íbúa Krímskaga. Brestirnir í efnahagnum voru þegar komnir í ljós í fyrra, það við- urkenndu ráðherrar opinberlega og lýstu áhyggjum sínum. Herská ut- anríkisstefna Pútíns hefur tíma- bundið aukið mjög vinsældir hans heima fyrir. En hún gæti að hluta verið merki um örvæntingu manna sem horfa fram á efnahagshrun og þurfa að beina athyglinni að ein- hverju öðru. Á baki þjóð- rembudýrinu PÚTÍN RÚSSLANDSFORSETI NÝTUR NÚ VINSÆLDA Í HEIMALANDINU VEGNA HERSKÁRRAR UTANRÍKISSTEFNU SINNAR. EN EF TIL VILL ER ÆVINTÝRAMENNSKA HANS ÖRVÆNTINGARLEIÐ TIL AÐ BEINA ATHYGLINNI FRÁ VAXANDI EFNAHAGSVANDA LANDSINS. Vladímír Pútín SJÚKUR EFNAHAGUR Kósakkar með hefðbundinn kross rússnesku Rétttrúnaðarkirkjunnar við útför aðskilnaðarsinna sem féllu í Slavjansk í austurhluta Úkraínu. Í áróðri stjórn- valda í Moskvu er ákaft höfðað til gamalla hefða, þ. á m. trúarhefða Rússa. AFP * Þetta er eins konar gjald sem við greiðum fyrir aðhalda úti sjálfstæðri utanríkisstefnu.Aleksei Kúdrín, fyrrverandi fjármálaráðherra Rússlands.AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON kjon@mbl.is HEIMURINN BRASIL RIO DE J á föstudag ö fátækrahve lögreglan t til að sundra manns sakar lögreglumenn u þekktan og vinsælan d Pereir. Hann hafi ver átökum lögreglu o S ráðherra Ísraels, B a verði enda á sa ging Hamas. Palestí miðge r K MOSKV að vatnsskortur sésegja mskaga en stjórnvöld í Úkraínuá Krí dregið úr flæðinu um leiðslurhafa meginlandinu til skagans eftir aðfrá ssar lögðu hann undir sig. FRú ð uppskerubrestur geti orðia inkum örf á vatni fyrir greiper þ og sojabaunir. BANDARÍKI SAN JOSE di, faðir 16 ára drengs sem faldiYusuf AbAbdil o g alla leið til Hawai segir astu og komhjólaskál farþegaþ astður í skólanum og viljað kðbdi, hafi verisonurinn,Yahya A raftaverk þykir aðYahylskðan er fjö yaaftur til Sómalíu en hans að Allah hafi bjargað honumf og segir faðirskyldi lifa ferðina a
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.