Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Blaðsíða 32
V
ið pistlahöfundarnir á Pjatt.is, eða Pjattrófurnar eins og við
köllum okkur, erum alltaf annað slagið í einhverjum svona
hefðarkattafíling og komum okkur í einhvern lúxus,“ segir
Margrét Gústavsdóttir, eigandi pjatt.is.
Á dögunum fór hópurinn í Grímsborgir þar sem slakað var á nátt-
sloppum og góður matur borðaður. Margrét segir að ákveðið þema
hafi verið ákveðið fyrir bústaðadvölina þar sem Dynasty-andinn
skyldi svífa yfir vötnum og smáhundar voru því aufúsugestir.
„Á bleikum náttsloppum. Ekki flókið. Ég hef áður verið í einu af
þessum húsum í Grímsborgum sem hjónin Ólafur Laufdal og Kristín
Ketilsdóttir leigja út og verið hrifin, það er svolítill Southfork-
fílingur þarna. Við þurftum ekki að koma með sængurföt eða neitt
svo að það var lítið sem þurfti að undirbúa. Dögurðarborðið var
dekkað með aðstoð Kristínar kvöldið áður svo að maður væri nú
ekki að stressa sig á því næsta dag. Galdurinn á bak við góða veislu
er jú góður undirbúningur, svo maður sjálfur geti verið með í partí-
inu.“
Margrét segir helgina hafa verið vorfögnuð Pjattrófnanna en á
boðstólum voru meðal annars alls kyns girnilegar bökur sem henta
vel í hvers kyns sumarveislur sem framundan eru. Að öðrum dá-
semdarveitingum ólöstuðum var geitaostbakan stjarna dagsins.
Hvað gerir góða bústaðaferð að góðri bústaðaferð?
„Félagsskapurinn, samstillt eldamennska og labbitúr í náttúrunni
næsta morgun til að hressa sig við er auðvitað kjörinn. Þema ferð-
arinnar: Við sem Dynasty-bangsar á bleikum dúskainniskóm, smá-
hundar og Grand Môet Marnier mímósa, sló í gegn. Þá er ég mikill
dögurðar-aðdáandi. Sú máltíð býður upp á svo mikla fjölbreytni og
þetta er í sjálfu sér ekki dýrt, ef maður vill bjóða fjölskyldunni eða
stórum hóp í mat. Bökur, ávextir, beikon og kökur. Það er svo auð-
velt að koma til móts við smekk og þarfir allra með góðum dögurði.“
PJATTRÓFUR EIGA DÁSEMDARDAG
Góðgæti í
sumarbústað
YFIRPJATTRÓFAN MARGRÉT GÚSTAVSDÓTTIR STÓÐ
FYRIR VEL HEPPNAÐRI SUMARBÚSTAÐAFERÐ Í GRÍMS-
BORGUM ÞAR SEM GEITAOSTBAKA, SÆTAR KÖKUR OG
ANNAÐ GÓÐGÆTI VAR Á BOÐSTÓLUM.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
* Eftirlætismál-tíðin mín erdögurður. Hann
býður upp á svo
mikla fjölbreytni
og þetta er í sjálfu
sér ekki dýrt.“
Allir lögðu
eitthvað til á
borðið.
Margrét útbýr
Grand mímósuna.
Smáhundarnir nutu sín
vel í sveitasælunni.
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.4. 2014
Matur og drykkir
1½ plata tilbúið bökudeig
2 blaðlaukar
2 egg
½ bolli undanrenna
½ bolli rjómi
2 msk. ferskur graslaukur
½ tsk. salt
½ tsk. pipar
¾ tsk. múskat
150 g geitaostur sem hægt er að
mylja
½ bolli valhnetur, saxaðar
1 sneið geitaostur til skreytingar
Geitaost er hægt að kaupa víðast hvar
í ostabúðum en Margrét Hugrún keypti
ostinn í Búrinu þar sem hún gat bæði
fengið ost til að mylja niður og eins eina
sneið niðurskorna ofan á bökuna.
Einfaldar uppskriftir að bökudeigi ef
fólk vill frekar útbúa það sjálft má finna
víðast hvar á netinu.
Hitið ofninn í 200°C. Fletjið deigið
út og setjið í bökuform, lítið smurt, því
deigið er feitt. Gott er að nota sprey.
Skerið blaðlaukinn í sneiðar og sjóðið í
5-7 mínútur í heitu vatni. Pískið saman
egg, rjóma, graslauk og undanrennu
kryddið. Takið soðinn blaðlaukinn,
hristið vatnið vel af honum og leggið
ofan á bökudeigið. Dreifið muldum
geitaostinum yfir og hellið svo eggja
blöndunni ofan á. Bakið í miðjum of
40-50 mínútur, eða þar til bakan er
lega gyllt. Þegar 10 mínútur eru um
bil eftir af bökunartíma er valhnetum
dreift yfir og geitaostssneiðin lögð þ
ofan á. Leyfið bökunni að kólna aðe
en best er að hún sé við stofuhita þ
ar hún er borin fram.
Geitaostsbaka