Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Blaðsíða 12
* Á Austurlandi er framleidd raforka sem ætti að duga milljónmanns eftir að 700 MW Kárahnjúkavirkjun var tekin í notkun. Andri Snær Magnason vegna frétta af orkuskorti á Austurlandi og nauðsyn þess að
leggja raforkulínu austur, yfir Sprengisand
Landið og miðin
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
UM ALLT LAND
VESTMANNAEYJAR
Georg Eiður Arnarson, trillukarl íVestmanna
sagði á bloggsíðu sinni á fimmtudaginn að
væri sestur upp í Eyjum, „sem þýðir að
er komið sumar hjá mér, en þetta er
skiptið sem það hittir ná
fyrsta.“ Georg Eiður
lundanum í mörg ár
í fyrra og hitti
AKUREYRI
Þröstur ErnirViðarsson hefur verið
ráðinn ritstjóriVikudags á Akureyri og
n
Eskil Pálsson, hverfur
örfa á fréttastofu RÚV þegar Þr stur tekur við.
BORGARNES
Formleg opnun á
inniaðstöðu Skotfélags
Vesturlands í Brákarey
verður í dag, sunnudag,
og hefst samkoman
kl. 14.00. Af því tilefni
verður byssusýning með m
byssum í eigu félagsmanna
veitingar. Þetta þykir merk
Borgarness og fólk er hva
REYKIR
Um 3.200
grunnskólanemendur
hvaðanæva af landinu
dvelja í vetur, nokkra
daga hver hópur, í
Skólabúðunum á Reykjum tafirði. Ljóst
er að starfseminni verður þhaldið ví
nýverið var undirritaður s mningur milli
Húnaþings vestra, eiganda húsnæðisins, og
Reykjatanga ehf., sem hefu tas rek
í umboði sveitarfélagsins f
hefur aukist mjög í áranna
búðirnar mikilla vinsælda.
efti
seg
sem
sér a
dagur
þess v
sér
er
á
Átta konur á Akureyri hittasteinu sinni í mánuði yfirvetrartímann og rökræða
um bækur. Síðasti fundur þetta
vorið var 18. apríl, á föstudaginn
langa, þegar lessysturnar komu
saman ásamt eiginmönnum sínum
og heiðursgesti. Ekki einasta nutu
viðstaddir góðra bókmennta heldur
fögnuðu um leið sjálfstæði Íra árið
1922 og gæddu sér á mat sem
sagður var með írsku ívafi.
Matur og góðar bækur eru sem
betur fer nær daglegt brauð, en
hvers vegna að halda upp á sjálf-
stæði Írlands? Solveig Hrafns-
dóttir, ein „systranna“, útskýrir
það: Í gegnum tíðina hafa 59 ríki
öðlast sjálfstæði eftir að hafa lotið
yfirráðum Breta. Bandaríkjamaður
að nafni Brian Baley, kennari við
Nazareth College í Rochester í
New York-ríki, hvatti til þess á
Facebook að fólk hvarvetna í ver-
öldinni fagnaði sjálfstæði einhvers
þessara ríkja, öðru en sínu eigin.
„Þannig vill til að vinkona mín er
samkennari þessa manns og spurði
mig hvort ég héldi að einhver á Ís-
landi vildi vera með, mér datt strax
í hug að ræða það við lessystur
mínar og þeim lest vel á. Við vor-
um einmitt nýbúnar að lesa og
ræða um bækur Vilborgar Davíðs-
dóttur um Auði djúpúðgu, vorum
mjög uppteknar af ýmsum pæl-
ingum í sambandi við þær og
ákváðum þess vegna að velja Ír-
land,“ segir Solveig.
Baley, sem er listamaður, kallar
verkefnið listrænan aktivisma því
enn sé barist fyrir frelsi fólks víða
um heim og gegn fátækt, hungri og
fordómum hvers konar. Hann
dreymdi um að verkefnið færi sem
víðast og fólki var í sjálfsvald sett
hvernig það héldi upp á tímamótin.
„Okkur fannst upplagt að ljúka
vetrarstarfinu með þessum hætti;
lásum upp úr írskum bókmenntum
og borðuðum saman. Við kveiktum
eld úti í garði og ég söng við harm-
onikkuundirleik lag sem samið var
eftir páskauppreisnina á Írlandi
1916. Við útbjuggum veifur með
ýmiss konar táknum og hengdum
upp; það var hugmynd listakon-
unnar í hópnum, Rósu Kristínar
Júlíusdóttur, og þar voru bæði eld-
gömul keltnesk tákn og önnur sem
okkur fannst falleg og viðeigandi,
til dæmis merki Jafnréttisstofu.“
Teitið var á heimili Kristínar Að-
alsteinsdóttur og Hallgríms Ind-
riðasonar við Aðalstræti í Inn-
bænum. Klúbburinn var á sínum
tíma hugmynd Kristínar sem ræddi
málið við vinkonur sínar tvær og
fleirum var boðið að vera með. Sex
úr hópnum starfa við Háskólann á
Akureyri. „Það var misjafnt hvað
hver og ein hafði lesið þótt allir
hafi gert töluvert mikið af því og
við höfum mismunandi áherslur;
sumar hafa mestan áhuga á fagur-
fræði textans, sumar á einhverju
öðru. Kvöldin þegar við hittumst
eru mjög skemmtileg og fjörug og
ég verð að segja að þessi klúbbur
hefur gefið mér gríðarlega mikið.“
Yfirleitt lesa þær allar sömu
bókina og hún er síðan rædd í
þaula. Heiðursgestur hópsins á
föstudaginn langa var ljóðskáldið
Gerður Kristný og var eiginmaður
hennar, Kristján B. Jónasson, með
í för. „Gerður var stödd í bænum
og því tilvalið að bjóða henni. Hún
las eigin ljóð fyrir okkur og það
var ofboðslega gaman; algjör rús-
ína í pylsuendanum,“ segir Solveig
Hrafnsdóttir.
AKUREYRI
Lessystur
fögnuðu
frelsi Íra
LESKLÚBBUR ÁTTA KVENNA Á AKUREYRI LAUK VETRAR-
STARFINU MEÐ BRAVÚR ÞEGAR HANN TÓK ÞÁTT Í
ALÞJÓÐLEGU VERKEFNI UM AÐ HALDA UPP Á SJÁLFSTÆÐI
EINHVERRAR ANNARRAR ÞJÓÐAR EN SINNAR EIGIN.
Lessystur og gestur, frá vinstri: Þorgerður Sigurðardóttir, Rósa Kristín Júlíusdóttir, Svanfríður Larsen, Gerður Kristný,
Solveig Hrafnsdóttir, Soffía Gísladóttir, Kristín Aðalsteinsdóttir, Halldóra Haraldsdóttir og Ingibjörg Auðunsdóttir.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Halldóra, Rósa Kristín og Soffía gæða sér á dýrindis írskum lambakjötsrétti.
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.4. 2014