Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Blaðsíða 39
NEST LEARNING THERMOSTAT-HITASTILLIR
Hitinn orðinn snjall
Tony Fadell, vann áður hjá Apple og er oft kallaður faðir iPodsins. Fyrirtæki hans
Nest Lab er komið með aðra kynslóð af hitastillum inn á heimili. Fadell vildi gera
hitastilli snjallari og færa hann til nútímans. Hitastillar heimila hafa lítið breyst síðan
þeir komu á markað á síðustu öld. Sífellt fleiri heimili hér á landi nota rafstýrða
hitastilla í stað ofnakerfa.
Í byrjun mánaðarins kom hitastillirinn á markað í Evrópu og
kostar herlegheitin 249 pund í Bretlandi eða 46 þúsund
krónur og kemur maður frá Nest til að setja þetta upp á
heimilinu. Með Nest-appinu má breyta hitastillingunni
heima hjá sér hvar sem er. Segir Fadell að hitakostnaður-
inn geti lækkað um allt að 20% með tækinu.
Tækið lærir hvernig hitastig fólk vill hafa á heimilinu
og á hvaða tíma. Sérstakt merki, græna laufið, hjálpar
eigandanum að finna ódýrustu kyndinguna. Hitastillirinn
er ekki eina tækið sem Nest Lab hefur fært í nútímabún-
ing en á síðasta ári kom reykskynjari frá fyrirtækinu sem
breska blaðið The Guardian valdi eina af tækninýjungum
ársins 2013. Í upphafi árs keypti tæknirisinn Google fyr-
irtækið fyrir 3,2 milljarða dollara.
Tony Fadell fékk
hugmyndina að
hitastillinum
þegar hann var
að byggja sér
hús.
AFP
Íslensk fjölskylda horfir á Kanasjónvarpið árið 1961.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Eftir tæknisýningu í New York
1939 kom hið virta New York
Times út með dóma um ýmsar
tæknibyltingar sem þar var að
finna. Þar mátti lesa um dauða
sjónvarpsins. Sjónvarpið var þá að
koma með auknum krafti inn á
hinn almenna markað en New
York Times var ekki hrifið.
„Vandamálið við þetta tæki sem
kallast sjónvarp er að meðal Am-
eríkani hefur ekki tíma til að stara
á skjá í trékassa,“ var meðal ann-
ars sem stóð í blaðinu. Þetta
reyndist auðvitað ansi langt frá
því sem síðar varð.
Á tæknisýningunni byrjaði NBC
að senda út efni til íbúa New
York en sjónvarpstæki voru þá að
byrja að verða hluti af stofum
borgarbúa. Fimm til átta þúsund
manns náðu útsendingum NBC.
Sjónvarpið hafði komið á markað
snemma á 20. öldinni en í afar
takmörkuðu upplagi og aðeins
forréttindafólk hafði efni að kaupa
slík tæki.
Þetta er auðvitað ekki í fyrsta
sinn sem spekingar spá vitlaust
fyrir um tækninýjungar en New
York Times fór fremst í flokki að
spá sjónvarpinu skammlífi.
TÖFF TÆKNISTAÐREYND
Enginn starir á trékassa
27.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
*Tölvur eru tilgangslausar. Þær geta aðeins gefið manni svör.Pablo Picasso
Símboðinn þótti mikið þarfaþing fyrir upptekið fólk.
Með símboðanum var hægt að hringja í viðkomandi
og þá kom númer viðkomandi á símboðann. Eftir að
GSM-símar urðu ódýrari í kringum aldamótin fór
hinsvegar að fjara verulega undan símboðanum.
Þrátt fyrir að það séu ekki margir með símboða
hér á landi keyptu Bandaríkjamenn sjö milljónir sím-
boða árið 2012 samkvæmt tölum frá Consumer
Agency í Bandaríkunum. 2003 skilaði símboðamark-
aðurinn 6,3 milljörðum dollara til eiganda sinna en
2010 rúmum 1,5 milljörðum dollara.
Símboðinn kom fyrst á markað árið 1950 fyrir
lækna í New York ef þeir þurftu að bregða sér frá
sjúkrahúsinu. John Francis Mitchell sameinaði svo
tækni talstöðvar og útvarps tíu árum síðar og gerði
að ódýru tæki þannig að almenningur gat fengið ein-
tak.
Símboðinn sló strax í gegn og varð mjög vinsæll
þó að læknar, björgunarsveitarfólk og aðrir sem
varð að vera hægt að ná í með skömmum fyrirvara
notuðu slík tæki mest.
Mörg vinsæl veitingahús notast við símboða þar
sem fólk fær sinn eigin símboða sem pípir þegar
borð losnar.
GAMLA GRÆJAN
Boð
um símtal
Læknarnir í sjónvarpsþáttaröðinni Grey’s Anatomy notast
enn við símboða. Hér er Meredith Grey með einn slíkan.
Smáralind | Sími 512 1330
Laugavegi 182 | Sími 512 1300
Au
ka
hl
ut
ad
ag
ar
st
an
da
til
1.
m
aí
iPad töskur
In Ear heyrnartól Þráðlausir hátalarar
Fartölvutöskur
daa
ga
rs
ta
nd
a
til
1.
m
aí
Þrá
ag
ar
st
an
da
til
1
m
aí
ðlaus heyrnartól
iPhone hulstur iPhone sport armbönd