Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Blaðsíða 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.4. 2014
Svar Ég er búin að sækja um sumarstarf í
Bandaríkjunum og er að bíða eftir svari um
það. Þá fer ég að vinna með börnum í sum-
arbúðum.
Heiðrún Fivelstad, 20 ára.
Svar Ég ætla að spila fótbolta í sumar. Ég er
búinn að sækja um vinnu en hef ekki fengið
svar. Síðan sér maður bara hvað framtíðin
ber í skauti sér.
Jökull Steinn Ólafsson, 19 ára
Svar Ég ætla að reyna að fá vinnu í sumar.
Annars ætla ég bara að ferðast, fara á
þjóðhátíð og hafa gaman.
Íris Kristín Smith, 19 ára
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Svar Ég ætla vonandi að vinna í skapandi
sumarstörfum í ungmennahúsinu Molanum í
Kópavogi. Annars ætla ég aðallega bara að
flippa í sumar.
Aron Páll Gylfason, 19 ára.
Morgunblaðið/Eggert
SPURNING DAGSINS HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA Í SUMAR?
Barnamenningarhátíð í Reykjavík fer af stað í
fjórða sinn á þriðjudag og stendur fram á sunnudag.
Alls verða 125 viðburðir tengdir menningu barna á
dagskrá hátíðarinnar. 17
Í BLAÐINU
Morgunblaðið/Þórður
LÁRA ÓMARSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Langar
aftur í rallý
Forsíðumyndina tók
Árni Sæberg
Margir hafa nú þegar
dregið fram reiðhjólin,
bæði börn og fullorðnir.
Það getur verið gott að
kynna sér hvernig er best
að stilla gíra og ná ryði
af stellinu áður en haldið
er af stað í langa hjólatúra
í góðviðrinu sem vonandi
er framundan. 16
Elsa Haraldsdóttir hárgreiðslumeistari heldur upp á
bókina Gunnarsæfingar þar sem qi gong-æfingar
eru kenndar. Hún á margar uppáhaldsbækur en á
ferðalögum les hún alltaf spennusögur. 58
Glæsileg tískusýning út-
skriftarnema fatahönn-
unardeildar Listaháskóla Ís-
lands var haldin í Hafnar-
húsinu á sumardaginn fyrsta.
Mikil stemning var í húsinu
þar sem sex nemendur
sýndu fágaðar fatalínur. 42
Lára Ómarsdóttir, frétta- og dagskrárgerðarkona, birtist nú
landsmönnum á skjánum ásamt föður sínum Ómari Ragn-
arssyni í Ferðastiklum á RÚV á sunnudagskvöldum.
Þar fara feðginin um landið, hitta skemmtilegt fólk
og skoða áhugaverða staði. Í þættinum á sunnu-
dag ferðast þau um Þingeyjarsýslur.
Ef þér væri boðið að fara hvert sem er í heiminum,
hvert myndirðu fara?
Ég færi í svona „road trip“ frá austurströnd Bandaríkjanna suður
til Argentínu. Tæki mér góðan tíma í að aka suður á bóginn og
stoppa við helstu náttúruperlur landanna á leiðinni, skoða eldgjöll
í Gvatemala, snorkla í Hondúras, skoða skjaldbökur á Kostaríku,
dansa í Ríó, fara um eyðimerkur Perú og borða nautakjöt í Arg-
entínu svo eitthvað sé nefnt. Og ef ég er heppin sjá suðurljósin.
Nú eða fara í bakpokaferðalag um Ástralíu, fara frá Sydney norður
með austurströndinni, skoða kóralrifin miklu, hitabeltiseyjar, yf-
irgefnar strendur, regnskógana og villt dýralífið. Fara svo í hinar óend-
anlega stóru óbyggðir Ástralíu, skoða Uluru, krókódíla, gljúfur, kletta og
fossa og enda svo á vesturströndinni, skoða bleika vatnið og synda í sjón-
um. Og vonandi rekast á kengúrur og kóalabirni í leiðinni.
Hvernig var að ferðast um landið fyrir Ferðastiklur?
Það var mjög gaman og gefandi. Ég og systur mínar ferðuðumst mikið
um landið með pabba þegar við vorum krakkar og í þeim ferðum sagði
hann okkur sögur af landi og þjóð. Þetta festist eitthvað og þegar við
fórum saman í fyrra þá rifjuðust upp margar skemmtilegar minn-
ingar auk þess sem hann sagði margar sögur sem ég hafði ekki heyrt
áður og hélt ég nú að ég hefði heyrt meirihlutann af þeim! Svo var
þetta frábært tækifæri til að læra af honum og hlæja með honum :).
Var þá ekkert erfitt að komast að?
Nei nei, ekkert meira en vanalega. Í þeim efnum hittir nú skrattinn
ömmu sína og stundum tölum við bara bæði í einu.
Þú kepptir í rallý árið 1987. Langar þig aftur?
Hvort mig langar. Ég keppti aftur tvisvar eða þrisvar 1990 og
1991 en svo ekkert eftir það. Það var lengi vel draumur minn að
keppa í rallý og þá helst sem ökumaður en ég sætti mig við það
fyrir margt löngu að það myndi ég ekki gera nema þá kannski ef
ég yrði milljónamæringur. En ég hugsa að ég myndi segja já ef
tækifærið byðist.
Er fjölmiðlabakterían fjölskyldusjúkdómur?
Hahaha, það má kannski segja það en einhvers staðar segir nú
að það læri börnin sem fyrir þeim er haft og kannski er það
þess vegna sem fólk fetar oft í fótspor foreldra sinna. Og
kannski má segja að þetta sé sjúkdómur því það er óskaplega
erfitt að losna við þessa bakteríu og engin lyf til við henni,
enda myndi ég nú ekkert vilja það heldur.