Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Blaðsíða 29
B
orgo Egnazia er afgirt hótelþorp í grennd við sjáv-
arþorpið Savelletri í Puglia-héraði á Ítalíu, um 60 kíló-
metra suður af borginni Bari. Yfirbragðið er allt í takt
við það sem búast mætti við þegar gengið er um götur
lítilla miðaldaþorpa í Suður-Ítalíu; húsin eru úr svokölluðum
tufo-steini, sem er mjólkurhvítur sandsteinn úr hérðaðinu. Það
gæti því komið gestum á óvart að þorpið var byggt frá grunni á
síðustu árum og opnað á vordögum 2011. Enda er það svo að
þegar komið inn á herbergi er þar allt til alls til að láta fara vel
um sig og nýjasta tækni er við hendina í bland við vinalega
gamaldags yfirbragðið sem er allsráðandi.
Þorpið er hugarfóstur fjárfestisins Aldo Melpignano sem sagði
skilið við bankaheiminn til að láta draum sinn um hótelrekstur
rætast. Hann gerði það svo um munaði og hefur Borgo Egnazia
sópað að sér verðlaunum og viðurkenningum í þau þrjú ár sem
hótelþorpið hefur starfað enda hefur arkitektinum Pino Brescia
tekist bráðvel til. Þar er að finna dýrindis veitingastaði þar sem
Michelin-kokkurinn Mario Musoni ræður ríkjum og golfvöllur,
spa og nálægðin við eldforna ólífulundi Puglia-héraðs og dimm-
blátt Adríahafið hins vegar ættu að nægja öllum sem vilja slaka
á í gamaldags – en um leið nútímalegu – umhverfi.
Huggulegt miðaldaþorp? Það er þó ekki eldra en svo
að þessa dagana fagnar það þriggja ára afmæli.
Þeir sem vilja upplifa Borgo Egnazia alla leið taka villu á leigu, en þær eru 8 tals-
ins í útjaðri þorpsins, með einkasundlaug og öðrum munaði.
Þorpið er fullt af krókum, kimum og þröngum
litlum göngugötum. Auðvelt að tapa áttum um
stund en yfir því kvartar vitaskuld enginn.
Inni á veitingastöðunum, La Frasca og Il Due Camini, er suðrænn stíll Púglíu allt-
umlykjandi. Stuttbuxur og sandalar eru að sjálfsögðu harðbannaður útbúnaður!
Munaður
í nýju mið-
aldaþorpi
UNDIRRITAÐUR BRÁ SÉR TIL BORGO EGNAZIA
FYRR Í MÁNUÐINUM OG LÍKAÐI VEL. ÞAÐ ER
SANNARLEGA EKKI AÐ UNDRA AÐ JUSTIN TIMBER-
LAKE HAFI LEIGT STAÐINN Í HEILD FYRIR BRÚÐ-
KAUP SITT OG JESSICU BIEL HAUSTIÐ 2012.
Texti og myndir: Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is
GLÆNÝTT OG GAMALDAGS
Samspil hvíts sandsteins Púglíu og dimmblás him-
insins er fullkomin samsetning út af fyrir sig. Veð-
urbarðir Íslendingar þurfa alltént ekki mikið
flóknari pallettu en það og slaka snimmhendis á.
27.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Faxafeni 5, Reykjavik, S: 588 8477 | Skeiði 1, Ísafirði, S: 456 4566 | Dalsbraut 1, Akureyri • S: 558 1100 • www.betrabak.is
TIMEOUT STÓLLINN
Hannaður með fagurfræði
og þægindi að leiðarljósi.
Hönnuður: Jahn Aamodt