Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Blaðsíða 50
Viðtal
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.4. 2014
ekki er hægt að koma í veg fyrir brotastarfsemi í landinu
vegna fjárskorts.“
Myndi aldrei stofna fjölskyldunni í hættu
Harkan í undirheimum Íslands hefur aukist á umliðnum ár-
um. Um það er ekki deilt. Það er ekki fyrir hvern sem er
að standa andspænis mönnum sem stunda fíkniefnabrot og
skipulagða glæpastarfsemi. Aldís viðurkennir að þetta hafi
sannarlega verið einn af þáttunum sem hún þurfti að vega
og meta áður en hún sóttist eftir starfinu. „Þetta var eitt
af því sem ég ræddi vandlega við Karl Steinar og hann
fullyrti að hvorki hann né hans fjölskylda hefðu orðið fyrir
áreitni vegna hans starfa. Sömu sögu sögðu aðrir sem ég
leitaði til. Ég myndi aldrei gera neitt sem gæti stofnað fjöl-
skyldu minni í hættu. Þess utan er ég ekki viss um að þeir
menn sem þessi deild rannsakar séu mér endilega hættu-
legri en mennirnir sem ég hef verið að rannsaka und-
anfarin ár, þó að þeir beiti sér mögulega öðruvísi. Efna-
hagsbrotamenn beita ef til vill síður ofbeldi en þeir geta
mögulega beitt áhrifum sínum með öðrum hætti. Um þetta
má maður hins vegar ekki hugsa þegar maður sest inn í
yfirheyrsluherbergið. Þetta er heldur ekki persónulegt,
rannsakendur eru bara að vinna sína vinnu. Ég held að
flestir meintir brotamenn átti sig á því.“
Aldís hefur umtalsverða reynslu af vettvangi, hefur til að
mynda farið í ófáar húsleitir gegnum árin. Nú verður sú
breyting hins vegar á að hún verður ekki á vettvangi.
Hennar hlutverk er að stjórna og skipuleggja starf deild-
arinnar.
Karl Steinar var mjög sýnilegur í fjölmiðlum enda tók
hann meðvitaða ákvörðun um að hann yrði málpípa deild-
arinnar. Öðrum yrði hlíft við þeim þætti mála. Aldís segir
hvern og einn taka ákvörðun um þessa nálgun og sjálf ger-
ir hún ekki ráð fyrir að vera eins áberandi út á við og for-
veri hennar.
Hjá hverjum svafstu?
Aldís var valin úr hópi þrettán umsækjenda. Þótti hæfust.
Eins og oft þegar ráðið er í áberandi stöður eru skoðanir
skiptar. Hún hefur ekki farið varhluta af því. „Blessaður
vertu, ég hef heyrt ýmislegt. Eins og hjá hverjum ég hafi
sofið. Það er mjög vinsælt þegar konur eru teknar fram yf-
ir karla.“
Hún skellir upp úr.
„Ég hef líka heyrt að ég hafi verið beðin um að sækja
um starfið, mögulega af sjálfum lögreglustjóra höfuðborg-
arsvæðisins. Það er auðvitað úr lausu lofti gripið. Stað-
reyndin er sú að vel og faglega var að ráðningarferlinu
staðið og niðurstaðan er þessi. Við skulum líka hafa í huga
að það var ekki lögreglustjóri sem setti mig í embættið
heldur innanríkisráðherra.“
Innanhúss hefur henni verið mjög vel tekið. „Ég finn
ekki fyrir neinni andúð í minn garð. Þvert á móti finn ég
fyrir góðum stuðningi. Hér starfa menn sem líka sóttu um
þetta starf en ég finn ekki að þeim sé á neinn hátt misboð-
ið. Strax á fyrsta degi bað ég samstarfsmenn mína að vera
hreinskilna við mig og láta mig vita hvort þeir hefðu eitt-
hvað við ráðningu mína að athuga. Það hefur enginn gert.
Hér er valinn maður í hverju rúmi og ég treysti þessum
strákum fullkomlega.“
Konur ekki sniðgengnar
Aldís er aðeins önnur konan til að gegna starfi aðstoðaryf-
irlögregluþjóns, á eftir Jónínu Sigurðardóttur hjá embætti
ríkislögreglustjóra, og sú fyrsta til að fara fyrir R-2. Kven-
kyns stjórnendur innan lögreglu eru ekki margir.
„Nærtækasta skýringin á þessu er sú að mun færri kon-
„Ég er ekki viss um að þeir menn sem þessi deild rannsakar séu mér endilega hættulegri en mennirnir sem ég hef verið að rannsaka
undanfarin ár, þó að þeir beiti sér mögulega öðruvísi,“ segir Aldís Hilmarsdóttir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
214.990 KR.
Léttgreiðslur 35.832 KR.
í 6 mánuði
129.990 KR.
21.665
229.990 KR.
Léttgreiðslur 10.832 KR.
í 6 mánuði
Stærð: 17”-19”
Bremsur: Shimano M446
Gírskipting: Shimano XT
Þyngd: 12,9 kg
Stærð: 48-52-55-58-61
Bremsur: Tektro
Gírskipting: Shimano Altus
Þyngd: 13,9 kg
Stærð: 48-52-55-58 cm
Bremsur: Hayes CX 140mm
Gírskipting: Shimano 105
Þyngd: 10,4 kg
MERIDA BIG NINE 500 MERIDA HYBID CROSSWAY 100 MERIDA CYCLO CROSS 4