Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Page 50

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Page 50
Viðtal 50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.4. 2014 ekki er hægt að koma í veg fyrir brotastarfsemi í landinu vegna fjárskorts.“ Myndi aldrei stofna fjölskyldunni í hættu Harkan í undirheimum Íslands hefur aukist á umliðnum ár- um. Um það er ekki deilt. Það er ekki fyrir hvern sem er að standa andspænis mönnum sem stunda fíkniefnabrot og skipulagða glæpastarfsemi. Aldís viðurkennir að þetta hafi sannarlega verið einn af þáttunum sem hún þurfti að vega og meta áður en hún sóttist eftir starfinu. „Þetta var eitt af því sem ég ræddi vandlega við Karl Steinar og hann fullyrti að hvorki hann né hans fjölskylda hefðu orðið fyrir áreitni vegna hans starfa. Sömu sögu sögðu aðrir sem ég leitaði til. Ég myndi aldrei gera neitt sem gæti stofnað fjöl- skyldu minni í hættu. Þess utan er ég ekki viss um að þeir menn sem þessi deild rannsakar séu mér endilega hættu- legri en mennirnir sem ég hef verið að rannsaka und- anfarin ár, þó að þeir beiti sér mögulega öðruvísi. Efna- hagsbrotamenn beita ef til vill síður ofbeldi en þeir geta mögulega beitt áhrifum sínum með öðrum hætti. Um þetta má maður hins vegar ekki hugsa þegar maður sest inn í yfirheyrsluherbergið. Þetta er heldur ekki persónulegt, rannsakendur eru bara að vinna sína vinnu. Ég held að flestir meintir brotamenn átti sig á því.“ Aldís hefur umtalsverða reynslu af vettvangi, hefur til að mynda farið í ófáar húsleitir gegnum árin. Nú verður sú breyting hins vegar á að hún verður ekki á vettvangi. Hennar hlutverk er að stjórna og skipuleggja starf deild- arinnar. Karl Steinar var mjög sýnilegur í fjölmiðlum enda tók hann meðvitaða ákvörðun um að hann yrði málpípa deild- arinnar. Öðrum yrði hlíft við þeim þætti mála. Aldís segir hvern og einn taka ákvörðun um þessa nálgun og sjálf ger- ir hún ekki ráð fyrir að vera eins áberandi út á við og for- veri hennar. Hjá hverjum svafstu? Aldís var valin úr hópi þrettán umsækjenda. Þótti hæfust. Eins og oft þegar ráðið er í áberandi stöður eru skoðanir skiptar. Hún hefur ekki farið varhluta af því. „Blessaður vertu, ég hef heyrt ýmislegt. Eins og hjá hverjum ég hafi sofið. Það er mjög vinsælt þegar konur eru teknar fram yf- ir karla.“ Hún skellir upp úr. „Ég hef líka heyrt að ég hafi verið beðin um að sækja um starfið, mögulega af sjálfum lögreglustjóra höfuðborg- arsvæðisins. Það er auðvitað úr lausu lofti gripið. Stað- reyndin er sú að vel og faglega var að ráðningarferlinu staðið og niðurstaðan er þessi. Við skulum líka hafa í huga að það var ekki lögreglustjóri sem setti mig í embættið heldur innanríkisráðherra.“ Innanhúss hefur henni verið mjög vel tekið. „Ég finn ekki fyrir neinni andúð í minn garð. Þvert á móti finn ég fyrir góðum stuðningi. Hér starfa menn sem líka sóttu um þetta starf en ég finn ekki að þeim sé á neinn hátt misboð- ið. Strax á fyrsta degi bað ég samstarfsmenn mína að vera hreinskilna við mig og láta mig vita hvort þeir hefðu eitt- hvað við ráðningu mína að athuga. Það hefur enginn gert. Hér er valinn maður í hverju rúmi og ég treysti þessum strákum fullkomlega.“ Konur ekki sniðgengnar Aldís er aðeins önnur konan til að gegna starfi aðstoðaryf- irlögregluþjóns, á eftir Jónínu Sigurðardóttur hjá embætti ríkislögreglustjóra, og sú fyrsta til að fara fyrir R-2. Kven- kyns stjórnendur innan lögreglu eru ekki margir. „Nærtækasta skýringin á þessu er sú að mun færri kon- „Ég er ekki viss um að þeir menn sem þessi deild rannsakar séu mér endilega hættulegri en mennirnir sem ég hef verið að rannsaka undanfarin ár, þó að þeir beiti sér mögulega öðruvísi,“ segir Aldís Hilmarsdóttir. Morgunblaðið/Árni Sæberg 214.990 KR. Léttgreiðslur 35.832 KR. í 6 mánuði 129.990 KR. 21.665 229.990 KR. Léttgreiðslur 10.832 KR. í 6 mánuði Stærð: 17”-19” Bremsur: Shimano M446 Gírskipting: Shimano XT Þyngd: 12,9 kg Stærð: 48-52-55-58-61 Bremsur: Tektro Gírskipting: Shimano Altus Þyngd: 13,9 kg Stærð: 48-52-55-58 cm Bremsur: Hayes CX 140mm Gírskipting: Shimano 105 Þyngd: 10,4 kg MERIDA BIG NINE 500 MERIDA HYBID CROSSWAY 100 MERIDA CYCLO CROSS 4

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.