Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 6. M A Í 2 0 1 4
Stofnað 1913 115. tölublað 102. árgangur
ÆTLAR AÐ BÚA TIL
MINNINGAR MEÐ
FJÖLSKYLDUNNI
MÆÐGUR OPNA
SAMAN KAFFIHÚS
LEIKUR ALLRA
ÓTRÚLEGA
TILÞRIFAMIKILL
LIFANDI TÓNLIST 10 VONARSTRÆTI 88SUMARIÐ ER TÍMINN 62
Afstaða alþjóðlegra stofnana og
dómstóla gagnvart vernd heimild-
armanna er skýr og er hún sett í
beint samhengi við ákvæði mann-
réttindayfirlýsingar Sameinuðu
þjóðanna um frelsi fjölmiðla.
Í rannsókn á leka gagna í máli
hælisleitanda hefur lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu farið fram á að
mbl.is gefi upp heimildir sínar.
Mannréttindadómstóll Evrópu
hefur dæmt í fjölda slíkra mála. Í
einum dómi segir að vernd heim-
ilda í blaðamennsku sé „eitt af
grundvallarskilyrðum frelsis
fjölmiðla“.
Í leiðbeiningum Evrópuráðsins
um það hvenær rétturinn til að
vernda heimildarmenn eigi að víkja
segir að mannslíf þurfi að vera í
húfi, koma megi í veg fyrir alvar-
legt afbrot eða málið varði máls-
vörn manns, sem sakaður sé um
alvarlegt afbrot. kbl@mbl.is »42
Brýnt fyr-
ir frelsi
fjölmiðla
Vernd heimilda
talin lykilatriði
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Staðfesting á vinnu, sakavottorð og
upplýsingar um skuldastöðu ásamt
ýmsu öðru, sem ekki er skylt að gefa
upp, er meðal þess sem leigutakar eru
krafðir um af leigusala ef þeir vilja eiga
möguleika á að fá húsnæði til leigu.
„Leigusalar fara jafnvel fram á að
leigjandi skili húsnæði nýmáluðu, en
það er skýrt í húsaleigulögum hver á
að sjá um viðhald fasteignar,“ segir
Jóhann Már Sigurbjörnsson formað-
ur Samtaka leigjenda. Ástandið á
leigumarkaði hafi orðið sérlega slæmt
síðasta haust og farið versnandi síðan.
Framboð húsnæðis sé lítið og örvænt-
ing leigjenda mikil. Því geti leigusalar
komist upp með ýmislegt.
Jóhann segir samtökin fá margar
kvartanir inn á sitt borð, þær snúi
m.a. að framangreindum kröfum
leigusala og háum tryggingum sem
leigutaki þarf að reiða fram. Dæmi
séu um að leigusalinn neiti að greiða
trygginguna til baka þegar leigu-
samningi er sagt upp, hann búi til tjón
eða segist hafa eytt tryggingafénu og
geti ekki borgað það til baka. Þá sé
kvartað yfir því að fólk leigi út hús-
næði sem það eigi ekki og segir
Jóhann leigjendur þurfa að fylgjast
vel með hver sé skráður fyrir fast-
eigninni.
Lítið að gera hjá leigumiðlurum
„Fólk er farið að selja sig á ýmsan
hátt með von um húsnæði og leigusal-
ar eru farnir að setja ákvæði í leigu-
samninga sem standast ekki húsa-
leigulög,“ segir Svanur Guðmunds-
son, formaður Félags löggiltra
leigumiðlara. Þrátt fyrir stækkandi
leigumarkað er orðið minna að gera
hjá löggiltum leigumiðlurum. Ástæð-
an er lítið framboð á eignum til leigu.
Þeir fái aftur á móti margar fyrir-
spurnir frá leigutökum um laust hús-
næði og brot á réttindum.
Jóhann og Svanur segjast báðir
vita til þess að jafnvel atvinnuhús-
næði sem er leigt út til einstaklinga sé
umsetið og þar inn séu komnir ein-
stæðir foreldrar með börn. Svo mikil
sé örvæntingin.
Örvænting leigjenda mikil
Leigusalar setja ákvæði í leigusamningana sem standast ekki húsaleigulög
Leigutakar láta ýmislegt yfir sig ganga í von um að fá húsnæði til leigu
Meirihluti Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna í Hafnarfirði er fall-
inn samkvæmt nýrri skoðanakönn-
un Félagsvísindastofnunar Háskóla
Íslands fyrir Morgunblaðið. Sam-
fylkingin tapar miklu, fer úr 40,1%
árið 2010 í 24% núna. Flokkurinn
fær þrjá bæjarfulltrúa í stað fimm.
Vinstri græn tapa einnig miklu
fylgi, fá 8,2% í stað 14,6% árið 2010,
en halda sínum eina fulltrúa.
Björt framtíð og Píratar verða
sigurvegarar kosninganna sam-
kvæmt könnuninni. Hvorugur flokk-
anna hefur áður boðið fram til sveit-
arstjórnar. Fylgi Bjartrar framtíðar
mælist 20,4% sem gefur tvo bæj-
arfulltrúa. Píratar eru með 8,1%
fylgi sem tryggir þeim einn mann í
bæjarstjórn.
Sjálfstæðisflokkurinn verður
stærsti flokkurinn í bænum en tap-
ar talsverðu fylgi og missir einn
bæjarfulltrúa. Fylgi hans mælist
31,6% en var 37,2% fyrir fjórum ár-
um. Fær flokkurinn fjóra bæjarfull-
trúa.
Könnunin var gerð 5. til 11. maí.
Af heildinni voru 17% þátttakenda
óákveðin í afstöðu sinni. »44-45
Meirihlutinn fallinn í Hafnarfirði
Mikið fylgistap Samfylkingarinnar Björt framtíð og Píratar með fulltrúa
Sjálfstæðisflokkurinn 31,6%
Samfylkingin 24,0%
Björt framtíð 20,4%
Vinstri - græn 8,2%
Píratar 8,1%
Framsóknarflokkurinn 7,1%
Annar flokkur eða listi 0,6%
Fylgi flokka í bæjarstjórn Hafnarfjarðar
Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 5.-12. maí 2014
31,6%
24,0%
20,4%
8,2%
8,1%
7,1%
0,6%
ÍBV varð í gærkvöld Íslandsmeistari karla í
handknattleik í fyrsta skipti eftir sigur á Hauk-
um í magnþrungnum úrslitaleik á Ásvöllum í
Hafnarfirði, 29:28. Haukar voru fjórum mörkum
yfir um skeið í seinni hálfleiknum en Eyjamenn
sneru því við af mikilli seiglu og Agnar Smári
Jónsson, sem skoraði 13 mörk í leiknum, gerði
sigurmarkið þegar tæplega hálf mínúta var
eftir. ÍBV vann þar með einvígi liðanna, 3:2.
Stemningin á Ásvöllum var ólýsanleg og mikill
fjöldi Eyjamanna fagnaði sigrinum í leikslok.
»4 og Íþróttir
Eyjamenn Íslandsmeistarar í fyrsta skipti
Morgunblaðið/Eggert
Tólf skemmti-
ferðaskip hafa
viðkomu í
Grímsey í sumar,
þrefalt fleiri en
á síðasta ári.
Þótt skipin séu
ekki meðal
þeirra stærstu
þarf að ferja far-
þegana í land
með bátum svo
þeir geti gengið norður fyrir
heimskautsbaug. Viðkomum
skemmtiferðaskipa í höfnum Ís-
lands fjölgar verulega frá síðasta
ári. Þannig er reiknað með 89
komum skipa til Reykjavíkur á
móti 80 á síðasta ári. Áætlað er
að 98 þúsund farþegar verði á
skipunum. »28
Tólf skemmtiferða-
skip til Grímseyjar
Skemmtun Skipin
koma víða við.
Alls seld-
ust 173 nýj-
ar bifreiðar
af gerðinni
Mercedes-
Benz, BMW,
Audi , Jagu-
ar og Land
Rover á fyrstu fjórum mánuðum
ársins, borið saman við 140 í fyrra.
Sala á Mercedes-Benz eykst mikið
milli ára, fer úr 64 bílum í 99 bíla.
Samanlagt seldust 2.543 nýir
bílar þessa mánuði í ár, samanborið
við 2.079 nýja bíla þá mánuði í
fyrra. Það jafngildir 22,3% aukn-
ingu í sölu milli ára. »14
Sala á lúxusbílum
eykst milli ára