Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 80
80 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014 Þessi hálfa öld hefur að mestu leyti verið góður tími, þótt auð-vitað hafi skipst á skin og skúrir hjá mér eins og öðrum. Kon-an mín nefndi annars um daginn að í allri okkar búskapartíð hefði ég aldrei beinbrotnað eða verið settur í gifst. En ég er hjá- trúarfullur og kannski á ég ekki að nefna þetta,“ segir Bjarni Valur Guðmundsson, bóndi í Skipholti í Hrunamannahreppi, sem er fimm- tugur í dag. Bjarni var aðeins nítján ára þegar hann hóf búskap í Skipholti. „Þetta kom nánast af sjálfu sér að ég fór í búskap, áhuginn var á því sviði,“ segir Bjarni sem er býr með bæði kýr og kindur. Stendur sauðburður nú sem hæst og því í mörg horn að líta. „Áhugamálin eru fjölmörg, en tengjast sveitinni. Við erum nokk- ur vinahjón sem förum alltaf saman í hestaferðir á sumrin og í fyrra til dæmis vorum við austur í Landsveit og gerðum þaðan út í dags- ferðir um Hekluslóðir. Svo finnst mér afar gaman að skreppa eitt- hvað inn á hálendið og hef í alls 45 skipti farið á fjall á haustin. Fer þá alltaf í síðari leitir sem er leiðangur inn á reginfjöll og umhverfis Kerlingarfjöll,“ segir Bjarni Valur sem væntir góðra gesta í heim- sókn á afmælisdeginum. „Við verðum heima allan daginn, erum búin að baka og vonum að sem flestir vinir og ættingjar líti inn,“ segir Bjarni sem er kvæntur Gyðu Björk Björnsdóttur og eiga þau þrjú börn. sbs@mbl.is Bjarni Valur Guðmundsson er 50 ára í dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hreppamaður „Erum búin að baka og vonum að sem flestir líti inn,“ segir Bjarni Valur sem finnst sín hálfa öld hafa verið góður tími. Bóndi í sveitinni sem aldrei brotnar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Andrew Tyler Þráinn Helgason (10 ára) hélt tombólu fyrir framan Krón- una í Garðabæ. Hann safnaði 6.350 kr. sem hann styrkti Rauða krossinn með. Hlutavelta Neskaupstaður Vignir Freyr fæddist 9. ágúst kl. 17.55. Hann vó 3.400 g og var 49,5 cm langur. Foreldrar hans eru Aðalbjörg Skúladóttir og Jökull Freyr Þrastarson. Nýir borgarar J óhannes fæddist á Akur- eyri 16.5. 1939 og ólst þar upp á Eyrarlandsvegi 27. Hann var í Barnaskóla Akureyrar og Gagnfræða- skóla Akureyrar, stundaði nám við MA og lauk stúdentsprófi þaðan 1959. Jóhannes var tíu sumur í sveit, fyrst hjá afa sínum og ömmu á Syðsta-Kambhóli í Arnarneshreppi, síðan á Stóru-Laugum í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu og síðasta sumarið á Neðri-Dálksstöðum á Svalbarðsströnd. Jóhannes var á síld á sumrin 1957- 61. Hann var kennari í Vík í Mýrdal 1959-61, stundaði námi í landafræði og ensku við HÍ 1961-63, var stunda- kennari í Vogaskóla í Reykjavík 1961-62 og bifreiðarstjóri og síðar verkstjóri í Fínpússningargerðinni og Sandsölunni í Reykjavík 1962-67. Jóhannes var matvörukaupmaður í verslununum Selási og Ólakjöri í Reykjavík 1967-74. Hann var sjó- maður á Dagfara ÞH-70 1973-75 sem var á síld í Norðursjónum og á loðnu og netum, var fyrst vörubíl- stjóri og síðar framkvæmdastjóri hjá Selásverki 1975 og 1981-86. Jóhannes Óli Garðarsson, fyrrv. umsjónarm. íþróttavalla – 75 ára Barnabarnabörnin Jóhannes og Hulda með yngstu kynslóðinni, Benjamín Orra, Emblu Rán og Alexander Breka. Hann var síðasti valla- stjórinn í Reykjavík Í blíðu og stríðu í hálfa öld Jóhannes Óli og Hulda, eiginkona hans, með gullbrúðkaupstertuna fyrir sig á stóra deginum í lífi þeirra. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.