Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014 Sumar 10 24. júní - 1. júlí Skógarálfar íBæjaraskógi Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Töfrandi fegurð Bæjaraskógar, hæðir, dalir og blómlegar sveitir fléttast saman í þessari ferð. Þessi tími árs er sá besti því allt er í blóma. Gist í heimabæ Hófýjar og farið m.a. í dagsferð til Prag og siglingu á Dóná. Ferðin endar í Regensburg. Verð: 184.400 kr. á mann í tvíbýli. Örfá sæti laus Mjög mikið innifalið! Sp ör eh f. Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Mýrdalssandur var einnig vettvangur eldflaugarskota á miðjum 7. áratug síðustu aldar og þeirra fyrstu sem áttu sér stað á Íslandi. Þar voru á ferðinni á fimmta tug franskra vísindamanna frá geimrannsóknarstofnuninni í Frakklandi. Tilgangur þeirra var að rannsaka norður- ljósabeltið sem liggur meðal annars yfir Íslandi. Vísindamennirnir skutu tveimur eldflaugum upp í ágúst 1964 á sandinum á móts við Höfðabrekkuheiði og tveimur öðrum skammt austan Skóga í lok ágúst og byrjun september árið eftir. Þær voru af gerðinni Dra- gon og voru sjö metrar að lengd og vógu 2,5 tonn hver, að því er kom fram í grein sem dr. Þorsteinn Sæmunds- son, stjörnufræðingur, skrifaði í Morgunblaðið 2. ágúst árið 1964. Eldflaugarnar fóru í um 440 kílómetra hæð, út fyrir lofthjúp jarðarinnar. Til samanburðar má nefna að Alþjóðlega geimstöðin gengur í kringum jörðina í um 370 kílómetra hæð. Þorsteinn aðstoðaði vísindamennina á ýmsan hátt, meðal annars með því að fylgjast með mælingum. „Þetta er eina skiptið sem maður hefur stjórnað eldflaugar- skoti, ef svo má segja. Ég vakti yfir segulmæli Raunvís- indastofnunarinnar og var í símasambandi við þá og sagði þeim hvenær þeir ættu að skjóta. Það var dálítið gaman að því að sumu leyti,“ segir hann. Miklar varúðarráðstafanir voru gerðar í tengslum við skotin. Tilkynning var send til allra báta og skipa sem voru að veiðum undan Mýrdalssandi og Landhelgis- gæslan gerði skip út til þess að gæta þess að enginn væri á svæðinu þegar flaugunum var skotið upp. Þá passaði lögreglan upp á að fólk færi ekki of nærri skotstaðnum. Risastór rós norðurljósa yfir skotstaðnum Ágúst H. Bjarnason verkfræðingur var 19 ára gam- all þegar hann fylgdist með eldflaugarskotunum á sínum tíma sem fulltrúi Almannavarna. „Þetta voru heljarmikil skot og gaman að fá að fylgjast með,“ segir hann. „Það var sérstaklega eitt skipti sem það voru svo mikil norðurljós sem voru eins og risastór rós sem náði yfir allan himininn. Það var sérstaklega tilkomumikið og þeir voru örugglega ánægðir með það,“ segir Ágúst. Rannsökuðu norðurljósa- beltið á 7. áratugnum  Franskir vísindamenn skutu upp eldflaugum 1964-65 Ljósmynd/Ágúst H. Bjarnason Geimskot Vísindamennirnir lyfta Dragon-eldflauginni í skotstöðu á Mýrdalssandi í ágúst árið 1964. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Hópur meistaranema í verkfræði við Háskólann í Reykjavík skaut þremur eldflaugum sem þeir höfðu smíðað á loft á Mýrdalssandi, suðaustur af Hafursey, í gærmorgun. Verkefnið, sem bar nafnið Mjölnir, var hluti af námskeiði nemendanna en það er fyrsta skrefið í langtímaáætlun um að nota háskerpumyndavélar til að taka myndir af norðurljósunum. „Þetta gekk ágætlega. Við erum búnir að finna eina af flaugunum austan við þar sem við skutum upp,“ segir Ívar Kristinsson, einn tímenn- inganna sem stóðu að verkefninu með aðstoð leiðbeinanda og tveggja erlendra sérfræðinga. Minni tilraunaeldflaug var skotið upp um klukkan sex í gærmorgun. Hún náði um það bil þúsund metra hæð að sögn Ívars. Ekki hafði tekist að finna hana í gærkvöldi en hópur- inn horfði á eftir henni suður af skot- staðnum. Önnur af stærri flaugunum tveim- ur sem hópurinn skaut á loft náði um fimm kílómetra hæð og fannst hún síðdegis í gær. Búnaður sem meðal annars sendir frá sér GPS- staðsetningu brást hins vegar í síð- asta skotinu og því fékk hópurinn engar upplýsingar um þá flaug. Ívar telur líklegt að fyrst að búnaðurinn hafi bilað þá hafi fallhlíf sem átti að færa flaugina til jarðar líklega ekki opnast. Finnist flaugin verður hægt að fá upplýsingar um flug hennar. Erfiðara en gerðu ráð fyrir Vinna við verkefnið hófst í janúar á þessu ári en það var upphaflega hugmynd tveggja listamanna frá Pú- ertó Ríkó og New York um að taka myndir af norðurljósunum „innan frá“. Norðurljósin eru yfirleitt í um hundrað kílómetra hæð yfir yfirborði jarðar og voru skotin nú því aðeins fyrsta skrefið í átt að því að koma búnaði þangað upp og örugglega niður aftur. „Það reyndist erfiðara en við héld- um að skjóta upp eldflaug á Íslandi. Tíminn fór mestur í að kynna okkur þessi fræði og koma af stað þekkingu á Íslandi á þeim. Háfleygar hug- myndir sem við höfðum í byrjun þurftum við að láta bíða betri tíma til að geta skotið einhverju upp,“ segir Ívar. Hann segist vonast til að framhald verði á eldflaugarskotunum en það sé skólans og verkfræðideildarinnar að ákveða það. „Vonandi verður þetta inngangur að frekari þekkingu á eldflaugafræðum á Íslandi.“ Umtalsverðar áskoranir Hópurinn var í góðu samstarfi við Landhelgisgæsluna um skotin en eins og gefur að skilja mátti engin flugumferð vera yfir skotsvæðinu. Þá lagði Síminn verkefninu lið, meðal annars með því að setja upp sendi á Mýrdalssandi til að streyma flugi eldflauganna sem báru Gopro- myndavélar um borð á netinu. Joseph Foley, lektor við HR og leiðbeinandi hópsins, segir að verk- efnið hafi falið miklar áskoranir í sér, ekki síst í því að koma hlutunum í eldflaugarnar til landsins. Afla hafi þurft ýmissa leyfa fyrir þeim sem hafi tekið sinn tíma. Vélin hafi til dæmis ekki borist til landsins fyrr en á þriðjudagskvöld af þeim sökum. „Þetta hefur verið spennandi verkefni og við höfum staðið frammi fyrir talsverðum fjölda áskorana sem ég er mjög stoltur af nemendum mínum að hafa staðið undir. Nú er- um við reynslunni ríkari og þetta mun ganga mun betur ef við gerum þetta aftur, sem mér finnst líklegt,“ segir Foley. Skotið upp af svörtum sandinum  Verkfræðinemar skutu þremur eldflaugum á loft á Mýrdalssandi í gær  A.m.k. ein þeirra náði fimm kílómetra hæð  Búið að endurheimta eina flaugina í gær  Búnaður bilaði í síðasta skotinu Morgunblaðið/Kristinn Flugtak Önnur eldflaugin hefur sig á loft á Mýrdalssandi í gærmorgun. Flaugin náði um fimm kílómetra hæð og fannst síðdegis í gær. Líklegt er talið að rafmagnsbilun hafi orðið til þess að þriðja flaugin sem hópurinn smíðaði hafi glatast. Fljúga þarf í lágflugi yfir svæðið til að hafa upp á henni, að sögn Ívars. Sérfræðingur Tveir nemanna með hollenska sérfræðingnum Frank de Brouwer frá Rebel Space sem lagði hópnum lið við smíði eldflauganna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.