Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Það er langt síðan það hef-ur verið svona gaman hjámér í vinnunni. Og nú erég auk þess búin að binda dæturnar við mig,“ segir Erla Sigurðardóttir þar sem hún stendur við eldavél og bakar pönnukökur á kaffihúsinu Cafe DeLuxe í Hafnarfirði. Kaffihúsið opnaði hún á sumardaginn fyrsta ásamt tveimur dætrum sínum, þeim Telmu Björk og Guðrúnu Lizu Bjarkadætrum. „Þessi kaffi- húsahugmynd kviknaði þegar ég var að velta fyrir mér hvað mig langaði til að gera það sem eftir væri ævinnar. Elsta dóttir mín, Guðrún Liza, hafði lengi átt sér þann draum að opna kaffihús, en hún setti drauminn á bið þegar hún flutti til Noregs eftir hrun vegna atvinnuleysis á Íslandi. En þegar hún fór að viðra við mig að hún ætlaði að flytja aftur heim, þá spurði ég hana hvort við mæðg- urnar ættum ekki bara að skella okkur í að opna saman kaffihús. Og við gerðum það,“ segir Erla og hlær. Fæddist í sjúkrabílnum Þær mæðgur eru allar miklir Gaflarar, fæddar og uppaldar í Hafnarfirði. „Mér lá svo mikið á að fæðast Hafnfirðingur að ég fæddist í sjúkrabílnum við Engi- dal, þegar mamma var á leið inni á Kópavogsspítala til að koma mér í heiminn, en einhverra hluta vegna var lokað á þessum tíma á spítalanum í Hafnarfirði,“ segir Erla. En þrátt fyrir að vera sann- ir Gaflarar þá ætluðu þær aldrei að hafa kaffihúsið í Hafnarfirði. „Við ætluðum að vera í hundrað og einum í miðbæ Reykjavíkur. Við leituðum að húsnæði þar í níu mánuði, en fundum ekkert. Þá fór- um við að spá í önnur bæjarfélög hér í kring en það er enginn mið- bær nema hér í Hafnarfirði, svo við enduðum hér heima. Þegar við höfðum tekið þá ákvörðun leið okkur mjög vel með hana og skild- um ekkert í hvernig okkur datt í hug að fara eitthvað annað. Hafn- arfjörður er æðislegur bær og all- ir hér í miðbænum hafa tekið okk- ur mjög vel, bæði fólkið í fyrirtækjunum hér í kring og aðr- Listafólki er vel- komið að troða upp Þeim líður eins og þær séu staddar í litlu sveitaþorpi, svo vel hefur þeim verið tekið og allir boðið þær velkomnar í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem þær opnuðu nýlega kaffihús. Mæðgurnar Erla, Telma og Guðrún skipta með sér verkum og leggja áherslu á heimabakað bakkelsi og bjóða lista- fólki að láta ljós sitt skína hjá þeim á Café Deluxe. Fallegt hús Kaffi Deluxe er til húsa í gamla sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði. Veitt eru verðlaun fyrir góðar og vel hannaðar vefsíður, en hvað með hið gagnstæða? Ekki endilega en þó er til síða sem skartar öllu því sem ljótast þykir í netheimum. Það verður að segjast eins og er að útkoman er býsna ljót og stingur í augu. Eftir sem áður er síðan eingöngu til gamans og vel til þess fallin að minna notendur alnetsins á hversu langt við erum komin á veg síðan í ár- daga veraldarvefsins. Á síðunni er því lofað að enn verri síða komi brátt og leysi þessa af hólmi. Meginmarkmið þeirra sem halda síðunni úti er að brjóta allar reglur sem gilda um hönnun vefsíðu. Hún hefur líka ákveðið kennslugildi því á henni getur að líta dæmi um allt það versta sem hægt er að gera við upp- setningu og hönnun á vefsíðu. Rúsínan í pylsuendanum er sú að hægt er að smella á hlekk til að sjá listann yfir villumeldingarnar á þess- ari skelfilegu síðu. Síðan reynir tölu- vert á þolrifin í þeim sem á hana horfir, enda er áreitið með eindæm- um mikið. Sjón er sögu ríkari! Vefsíðan www.theworldsworstwebsiteever.com Skelfing Á þessari síðu eru dæmi um allt sem ekki á að gera við hönnun vefsíðu. Heimsins versta vefsíða Það er vel við hæfi að hvetja fólk til að bregða sér í Frystiklefann þegar sól fer hækkandi á lofti. Frystiklefinn er menningarlegur staður í 167 manna bæjarkjarna, nánar til tekið á Rifi í Snæfellsbæ. Hann er allt í senn leikhús, leiksmiðja og menningar- miðstöð en leikarinn Kári Viðarsson heldur utan um starfsemi Frystiklef- ans. Sýningin Hetja fer afur á fjal- irnar í dag eftir nokkurra ára hlé en sýningin hefur fengið góða dóma og lof gagnrýnenda. Hún var frumsýnd í Frystiklefanum sumarið 2010 en verður líka sýnd í sumar. Hetja bygg- ist á Bárðarsögu Snæfellsáss og er höfundur þessa gamanleiks Kári Við- arsson sem einnig leikur öll hlut- verkin en nýtur einnig hjálpar hunds- ins Zólu. Leikstjórn er í höndum Víkings Kristjánssonar. Það mæðir töluvert á Kára í verk- inu þar sem hann notar allar leiðir sem hann kann til að komast hjá því að leika hefðbundinn sögumann í verkinu. Fyrir vikið bregður hann sér í fleiri tugi hlutverka og sjón er sögu ríkari. Sýningar dagsins verða fluttar á ensku klukkan 12 og 17. Upplýsingar og miða má nálgast á síðunni www.frystiklefinn.is. Endilega ... ... kíkið í Frystiklefann Frystiklefinn Hetja Kári Viðarsson í hlutverki. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Flestir ættu að kannast við breska ofurkokkinn skemmtilega, Jamie Oliver, sem hélt úti fjörlegum mat- reiðsluþáttum sem sýndir hafa ver- ið hér á landi. Jamie stendur nú fyrir alþjóðlegu átaki sem gengur út á að vekja áhuga barna á mat. Yfirskrift átaksins er matarbylt- ingardagurinn 16. maí, sem er jú einmitt í dag. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hvetur alla hér á landi sem vett- lingi geta valdið að taka þátt í hon- um, hvort sem það eru foreldrar, systkini, afar, ömmur, frænkur eða frændur, og elda með börnum í dag eða um helgina. Tilvalið er að Eldum með börnunum  Matarbyltingar- dagurinn er í dag Morgunblaðið/ÞÖK Gaman saman Vinirnir Arnaldur og Kristinn njóta þess að búa til salat.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.