Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014 Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Þetta var alger ævintýraferð frá A til Ö,“ sagði Eiður Jónsson, sem rek- ur Vélaverkstæðið í Árteigi í Kalda- kinn. Hann er nýkominn úr ferðalagi upp í fjöllin í Kamtsjatka, austast í Rússlandi. Þar er áhugi á að setja upp þingeyska heimarafstöð. Eiður hefur smíðað fjölda lítilla vatnsafls- virkjana sem framleiða rafmagn hér á landi, í Grænlandi og Færeyjum. Jarðhiti en ekkert rafmagn Upphaf ferðalagsins yfir hálfan hnöttinn var að rússneskur ferða- maður kom hingað í vetur. Hann hafði einhverja vitneskju um að hér á landi væru smíðaðar heima- rafstöðvar. Rússnesk kona í Reykja- vík, sem var leiðsögumaður ferða- mannsins, vissi af Trausta Bergland Traustasyni, rússneskumælandi leið- sögumanni, á Akureyri. Hann þekkti til Vélaverkstæðisins í Árteigi. Rúss- inn kom norður og skoðaði verk- stæðið. Þá var ákveðið að þeir Eiður og Trausti færu austur til Kamtsj- atka nú í maí til að skoða aðstæður. „Þessi maður býr í Moskvu en stjórnar veiðihóteli inni á miðjum Kamtsjatka-skaganum,“ sagði Eiður. „Þarna er jarðhiti sem er virkjaður til að hita húsin og þrjú baðhús, heilsulindir með mismunandi vatni. En þarna er ekkert rafmagn enda hótelið langt frá allri byggð. Það er langt inni í skógi og uppi í fjöllum, í 700 metra hæð yfir sjávarmáli.“ Hugmyndin er að byggja þarna litla vatnsaflsstöð, 15-25 kW, sem mun sjá hótelinu fyrir rafmagni. Eið- ur sagði að þar væri góður lækur sem mætti virkja. Rennslið í honum minnkar yfir veturinn, en það kemur ekki að sök því engin starfsemi er í hótelinu yfir háveturinn. Á skriðdrekum síðasta spölinn Þeir Eiður og Trausti flugu fyrst til Moskvu. Þaðan tók við níu klukku- stunda viðstöðulaust flug austur til hafnarborgarinnar Petropavlovsk á Kamtsjatka. Svo var ekið á bíl í sex og hálfan tíma til þorpsins Esso. Til að komast að hótelinu var farið um vegleysur á skriðdrekum og tók það ferðalag fimm klukkustundir. Hót- elið á tvo skriðdreka sem aka milli þorpsins og hótelsins. Skriðdrek- arnir eru notaðir til flutninga og eins til að fara í veiðiferðir en þeir ösla yf- ir árnar eins og ekkert sé. Þeir Eiður og Trausti fengu far til baka á flug- völlinn með þyrlu. Þarna eru mjög gjöfular veiðislóð- ir. Árnar eru fullar af nokkrum lax- tegundum. Veiðimenn lenda oft í því að fá fisk í hverju kasti. Einnig eru stundaðar skotveiðar. Þarna eru skógarbirnir, hreindýr, úlfar, villifé og fleiri dýrategundir sem eru veidd- ar. Skógarbirnirnir eru mjög stórir og mátti aldrei fara neitt utan dyra nema vopnaður maður væri með í för. Björn banaði manni þarna í fyrra. „Það eru nánast eingöngu auð- menn sem veiða þarna,“ sagði Eiður. Langflestir veiðimennirnir eru Rúss- ar. Þeir Eiður og Trausti eru í hópi örfárra útlendinga sem þarna hafa komið. Hinir eru prinsinn af Mónakó og einn olíufursti. Eiður telur nánast ákveðið að sett verði upp heimarafstöð við hótelið á næsta ári. Vélarnar verða þá sendar í vetur til Finnlands og þaðan til St. Pétursborgar. Svo verður búnaður- inn fluttur með járnbrautalest til Vladivostok og þaðan með skipi til Petropavlovsk og svo á bílum og loks skriðdrekum eða þyrlum upp í fjöllin. Eiður setti upp heimarafstöð í Grænlandi í hitteðfyrra og gerði til- boð í aðra sem setja á upp í sumar. Hann hefur líka sett upp virkjun í Færeyjum. Hér innanlands er nokk- uð jöfn eftirspurn eftir heima- rafstöðvum. „Við erum alltaf að smíða fyrir einhverja og vinnum við þetta tveir til fjórir,“ sagði Eiður. Þingeyskt hugvit í austurveg  Eiður Jónsson í Árteigi fór til Kamtsjatka að kanna aðstæður fyrir uppsetningu heimarafstöðvar  Stöðin á að þjóna afskekktu veiðihóteli sem er hátt uppi í fjöllum og fjarri öllum mannabyggðum Ljósmyndir/Eiður Jónsson Kamtsjatka Eiður Jónsson, rafstöðvasmiður í Árteigi, og Trausti Bergland Traustason, leiðsögumaður, við skriðdrekann sem flutti þá upp í fjallahótelið sem hýsir einkum auðuga veiðimenn. Hótelið er fjarri mannabyggðum og tekur fimm klukkustundir að aka þangað á skriðdreka frá næsta þorpi. Vatnsaflið virkjað Eiður Jónsson í Árteigi stendur í læknum sem hug- myndin er að virkja. Afla á rafmagns fyrir afskekkt veiðihótel. Veiðihótelið Hótelið er hitað með jarðhita. Þar eru einnig þrjú baðhús með heitum heilsulindum. Í skógunum er fjöldi dýra og árnar fullar af laxi. Skriðdrekarnir Tveir skriðdrekar eru notaðir til flutninga til og frá veiði- hótelinu. Trjábolina átti að nota til að byggja nýtt gufubaðhús við hótelið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.