Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Á morgun fer fram árlegt uppboð á reiðhjólum í hús-
næði Vöku hf., Skútuvogi 8, Reykjavík, að beiðni lög-
reglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Að þessu sinni
verða boðin upp um 120 reiðhjól.
Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, kynningarfulltrúi
lögreglunnar, segir að uppboðið eigi sér áratuga
sögu. Áður fyrr hafi uppboðin verið í porti lögregl-
unnar við Hafnarstræti, síðar á Fríkirkjuvegi 11, þeg-
ar Sakadómur Reykjavíkur hafi verið þar til húsa,
lengst af á ýmsum stöðum í Borgartúni og undanfarin
ár í húsnæði Vöku. Á liðnu ári fékk lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu um 530 tilkynningar um stolin
reiðhjól. Gunnar segir að á uppboðinu séu hjól, sem
hafi fundist víða á höfuðborgarsvæðinu og ekki kom-
ist í hendur réttra eigenda aftur. Þess séu líka dæmi
að hjól hafi verið skilin eftir fyrir utan húsnæði lög-
reglunnar við Hverfisgötu og þau fari einnig í
geymsluna og á uppboðið, komist þau ekki til skila.
Ekkert grunnverð er sett á hjólin. Reiðhjólageymsla
lögreglunnar í Borgartúni 7b er opin á þriðjudögum
klukkan 10-12. Þar má tilkynna um stolin reiðhjól
finnist þau ekki í geymslunni. Uppboðið hefst klukkan
11 og verður byrjað á því að bjóða upp barnakerrur,
barnavagna, hlaupahjól og síðan barnahjól og svo
stærri hjól. Greiða verður með debetkorti eða pen-
ingum við hamarshögg. steinthor@mbl.is
Um 120 reiðhjól á uppboði
Talning Það verður handagangur í öskjunni á morgun.
Greiðsla við hamarshögg
Ný Polarolía
Nýtt útlit-meiri virkni
Selolía, einstök olía
Meiri virkni
fall Omega 3
fitusýrur
nir mælir með
lolíu, en þinn?
Gott fyrir:
Maga- og þarmastarfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Kolesterol
Liðina
Selolían fæst í:
Þín verslun Seljabraut,
úsum, Fjarðarkaupum,
ni, Hafrúnu og MelabúðSími 555 2992 og 698 7999
Nýtt!
D-vítamínbætt
t hlut
n læk
Se
pótekum,
heilsuh
Fiskbúðinni Trönuhrau
Hát
Min
a
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Rífandi stemming var á heimavelli
Hauka á Ásvöllum í Hafnarfirði í gær-
kvöld þegar heimamenn tóku á móti ÍBV
frá Vestmannaeyjum í hreinum úrslita-
leik um Íslandsmeistaratitilinn. Rúm-
lega tvö þúsund áhorfendur voru á vell-
inum, þar af nærri því helmingurinn
Eyjamenn sem lögðu leið sína upp á land
til að styðja sitt lið. Skiptust stúkurnar í
haf rauðra og hvítra treyja liðanna
tveggja en svo fór að ÍBV fór með sigur
af hólmi með einu marki, 28-29.
„Þetta er með því flottara sem ég hef
séð, hversu vel áhorfendur taka þátt í
leiknum og hve stemmingin er frábær,“
sagði Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri Handknattleikssambands
Íslands, í gærkvöld. Hann líkir stemm-
ingunni við þá sem var á Ásvöllum á leik
Íslands við Eistland skömmu eftir að lið-
ið vann silfur á Ólympíuleikunum 2008.
„Þetta er báðum félögum til mikils
sóma. Þetta hafa verið frábærar viður-
eignir. Handboltinn fær að njóta sín, það
er það sem skiptir öllu máli.“
Guðmundur B. Ólafsson, formaður
HSÍ, sagði stemminguna í Hafnarfirði
einstaka þegar blaðamaður náði af hon-
um tali í hálfleik.
„Hér voru allir mættir klukkutíma fyr-
ir leik og byrjaðir að syngja og skemmta
sér. Stuðningsmennirnir eru duglegir við
að styðja sitt lið. Þetta er bara frábær
handboltaleikur og mikil og góð auglýs-
ing fyrir handboltann,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Ómar
Einstök stemning á Ásvöllum