Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 11
Lífið er ekki eins og bíómynd,allavega ekki glans-myndaútgáfan. Þetta veitég eftir að hafa ítrekað en
árangurslaust reynt að skapa endur-
fundasenu sem væri verðug nokkurra
vasaklúta. Ég er að tala um svona
„pabbi kemur heim frá Afganistan og
fær fjölskylduna grátandi í fangið“-
senu. Eða eins og í Love Actually
þegar sæta aðstoðarkonan kemur
hlaupandi í eldrauðri kápu og
stekkur í fangið á forsætisráð-
herranum.
Ég á frekar stæðilegan mann
svo tæknilega séð gætum við al-
veg gert þetta, og höfum tekið
stökkæfingu heima þar sem
hann grípur mig með sóma. Nema að
mómentið er aldrei svona þegar á
reynir.
Þegar við byrjuðum saman vann
hann á frystitogara með skóla svo ég
fékk það erkirómantíska hlutverk að
vera stúlkan sem
starir á hafið.
Fyrsta sumarið
ætlaði hann að
koma mér á
óvart eftir 5
vikna fjarveru og
birtist allt í einu
með blómvönd.
Eflaust sá hann
fyrir sér þá að ég
myndi fljúga upp
um hálsinn á honum,
en þar sem systkini
mín og mamma fylgdu
mér öll í halarófu til dyra
kunni ég einhvern veginn
ekki við það svo viðbrögðin
voru meira á þessa leið:
„Komdu sæll, Önundur, og
velkominn í land. Má ekki bjóða
þér að ganga í bæinn?“ Svo
hringdi ég í vinnuna í von um að
geta losnað undan kvöldvakt því sjó-
maðurinn hafði óvænt boðið mér út
að borða, en nei, það kom ekki til
greina. (Þarna lærðist mér að stund-
um borgar sig ekki að segja heið-
arlega frá, heldur ljúga frekar veik-
indum.)
Nokkrum árum síðar fór ég í
skiptinám til Bandaríkjanna og um
vorið kom hann að heimsækja mig.
Ég fór í fínum kjól til móts við hann á
flugvöllinn, gott ef ég hélt ekki á
bandaríska fánanum líka til að skapa
réttu stemninguna, en þegar við
mættumst hafði hann nýsett ferða-
töskuna sína á færiband fyrir milli-
landaflug svo í stað fagnaðarfunda
fórum við í stressi að endurheimta
farangurinn.
Tvisvar hefur hann sótt mig í
Leifsstöð eftir nokkurra mánaða fjar-
veru, nú síðast í mars þegar ég hafði
verið á bakpokaferðalagi um Afríku.
Ég setti bakpokann á kerru, frekar
en að bera hann, ef þetta skyldi nú
loksins verða Hollywood-mómentið.
Það hafði orðið töf á fluginu mínu og
hann beðið lengi eftir mér. Tilhlökk-
unin var því mikil, en greinilega
hungrið líka því þegar ég gekk út úr
tollinum sá ég hann strax, takandi
risastóran bita af súkkulaðistykki.
Með stútfullan munninn af súkkulaði
gat hann varla sagt hæ, hvað þá tekið
ástríðufullan koss, enda hefði það
verið til lítils, því ég sprakk úr hlátri.
Sem betur fer rúlluðu engar
myndatökuvélar þá.
Kannski er niðurstaðan sú að
ég hafi reynt að staðsetja mig í
rangri grein kvikmynda. Líf
mitt er greinilega ekki róm-
antísk ástarmynd í rósrauð-
um bjarma, en kannski nær
því að vera einhvers konar
farsi. Best er þó að vera
þakklátur fyrir það
sem maður fær, og á
meðan ég ranka
ekki við mér í
miðjum splatter
kvarta ég ekki.
»Með stútfullan munninnaf súkkulaði gat hann
varla sagt hæ, hvað þá tekið
ástríðufullan koss.
Heimur Unu
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Morgunblaðið/Golli
Samhentar mæðgur Erla ásamt dætrum sínum Guðrúnu og Telmu í nýju vinnunni, á kaffihúsinu þeirra.
ir. Mér leið fyrstu dagana eins og
ég væri stödd í litlu sveitaþorpi í
gamla daga þar sem allir bjóða
mann velkominn.“
Lifandi tónlist og
opinn míkrafónn
Kaffihús þeirra mæðgna er til
húsa í gamla sjálfstæðishúsinu við
Strandgötuna í Hafnarfirði. „Þetta
rými sem við erum hér í var leigt
út sem veislusalur, þannig að við
þurftum bara að mála og pússa
parketið, kaupa húsgögn og græj-
ur. Hér var eldhús og annað sem
hentaði vel fyrir kaffihúsarekst-
ur.“ Þær mæðgur leggja áherslu á
heimabakað bakkelsi, þetta gamla
góða, pönnukökur og fleira girni-
legt og heimilislegt. Einnig bjóða
þær upp á kjúklingasalat og kjúk-
lingalokur. „Fólk getur líka komið
hér á kvöldin og fengið sér köku
eftir kvöldmat, en okkur sjálfum
hefur fundist lítið um veitingar á
kaffihúsum á kvöldin, þá breytast
þau oft í bari,“ segir Erla og tekur
fram að hjá þeim mæðgum sé líka
hægt að fá bjór og léttvín.
„Áherslan hjá okkur er á lifandi
tónlist, við ætlum að bjóða upp á
það sem kallað er „opinn míkra-
fónn“ þar sem hver sem er getur
látið ljós sitt skína, hvort sem það
er í söng eða einhverju öðru, uppi-
standi til dæmis. Stelpurnar í
Bergmáli, þær Selma og Elísa,
hafa komið hér fram tvisvar og
sungið. Einnig hefur söngkonan
Lena Mist verið eitt kvöld ásamt
Helga sem spilaði undir á gítar.
Svo komu Linda og Heiða og
spiluðu saman á píanó og sungu,
og síðast voru trúbadorarnir
Kjartan Arnaldur og Sveinn Guð-
mundsson. Þetta hefur verið mjög
skemmtilegt. Á þessu kaffihúsi
viljum við skapa vettvang fyrir
listafólk til að koma fram, alls-
konar listafólk er velkomið.“ Notalegt Líka er hægt að sitja úti.
Í kvöld klukkan 19:30 verð-
ur haldin söngskemmtun í
Selfosskirkju. Tilefnið er
aldarafmæli Jóns frá Ljár-
skógum og verða mörg
þekktustu sönglög skálds-
ins flutt af einvalaliði tón-
listarmanna. Þeirra á meðal
eru nokkur lög sem M.A.-
kvartettinn gerði fræg á
sínum tíma. Söngkvartett í
anda M.A.-kvartettsins er á
meðal þeirra sem fram
koma en aðrir eru þau Unn-
ur Birna Björnsdóttir, Una
Björg Davíðsdóttir, Unnur
Helga Möller, Guðmundur
Davíðsson, Jóhann Björn
Ævarsson og Sigurður
Oddsson.
Syngdu mig heim flutt í Selfosskirkju
Tónleikar Aldarafmælis Jóns frá Ljárskógrum
verður minnst á söngskemmtuninni í kvöld.
Aldarafmæli Jóns frá Ljárskóg-
um fagnað með söngskemmtun
Kreditkort er útgefandi American Express á Íslandi. American Express® er skrásett vörumerki American Express.
Kynntu þér kostina
á kreditkort.is
kenna börnum að elda mat frá
grunni, til að sýna þeim hversu
bragðgóður slíkur matur er og
hollur. Einnig er nauðsynlegt sem
og bráskemmtilegt að kenna kom-
andi kynslóðum að bæði kaupa inn
og matreiða úr hollu hráefni og til-
einka sér þannig heilbrigðan lífs-
stíl. Það er á okkar ábyrgð, þeirra
fullorðnu, að ala börnin okkar upp
við að vera það sem Jamie kallar á
ensku „food smart“ og hefur á ís-
lensku verið snarað sem „fæðu-
töff“. Nú er aldeilis lag til að elda
saman svo unga fólkið okkar verið
fæðutöff. Þeir sem smella ljós-
mynd af sér og börnum við elda-
mennskuna geta tekið þátt í ljós-
myndahluta verkefnisins hér á
landi og sent myndina á netfangið
postur@vel.is. (Þeir sem vilja geta
sett #fæðutöff.) Myndirnar verða
síðan birtar á vef ráðuneytisins í
lok maí.
Nánar má lesa um átak Jamie
Olivers um matarbyltingardaginn á
vefsíðunni foodrevolutionday.com.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Gæðastund Það eflir sjálfstraust barna að fá að taka þátt í eldamennsk-
unni. Hafdís kennir Kristni, Jóhönnu og Þóreyju að elda bráðhollan mat.
Una
Sighvatsdóttir
una@mbl.is