Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014 F A S TU S _H _2 1. 04 .1 4 Verið velkomin í verslun okkar í Síðumúla 16, 2.h. Fastus • Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 fastus@fastus.is • www.fastus.is • Opið mán - fös 8.30 - 17.00 200ml 300 kcal 3g trefjar 1000 IU D3 vítamín 20g prótein Veit á vandaða lausn Næringarvörur eru í samningi við Sjúkratryggingar Íslands Kominn í helstu apótek - Fæst einnig í verslun Fastus Sérhannaður næringardrykkur fyrir aldraða Inniheldur öll helstu næringarefni sem líkaminn þarfnast. Sérstaklega ríkur af: • D-vítamíni • Próteini • B-vítamínum • Omega3 fitusýrum • Kalsíum ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Ný háspennulína í lofti, sunnan við Akur- eyrarflugvöll, raskar ekki flugöryggi að mati Landsnets. Guðmundur Ingi Ásmundsson, að- stoðarforstjóri fyrirtækisins, greindi frá þessu á vorfundi Samorku á Akureyri í fyrradag. Lengi hefur verið deilt um málið og flugmenn og flugrekendur á Akureyrarflugvelli eru Landsneti mjög ósammála.    Guðmundur Ingi sagði að áhættumat hefði verið unnið vegna nálægðar flugvallarins og kynnti sýnileikagreiningu fyrir leiðarval loftlínu þar sem búið er að taka tillit til áhættu- matsins og draga úr sjónrænum áhrifum.    „Mér finnst þetta glannaleg túlkun hjá hon- um og það stenst enga skoðun að háspennulína þarna hafi engin áhrif á flugöryggi,“ segir Víðir Gíslason, flugmaður á Akureyri, við Morgunblaðið, en hann hefur lengi verið í far- arbroddi þeirra sem berjast gegn því að há- spennustrengur í lofti verði lagður á þessum stað heldur verði komið fyrir í jörðu.    „Það kemur bæði fram í niðurstöðu Sam- göngustofu og áhættumatinu sem framkvæmt var fyrir Isavia, að háspennulína hafi neikvæð áhrif á flugöryggi í Eyjafirði,“ segir Víðir.    Víðir var einn þriggja þátttakenda að norð- an við gerð áhættumatsins sem áður var nefnt. Hann segir málið flókið og margþætt. „Þeir sem komu að áhættumatinu og gættu hags- muna Akureyrarflugvallar eru ekki sammála túlkun aðstoðarforstjóra Landsnets og svo er reyndar um mun fleiri. Rannsóknarnefnd sam- gönguslysa leggur til, vegna flugöryggis, að lagður verði jarðstrengur svo dæmi sé tekið. Landsnet horfir því ekki á málið frá bestu sjónarmiðum um flugöryggi í Eyjafirði. Í úr- skurði frá Isavia [sem er framkvæmdaraðili og rekstraraðili flugvallarins] segir að háspennu- lína hefði þolanleg áhrif, en samt áhrif og það neikvæð. Það hefur komið fram að jarð- strengur er miklu betri kostur með tilliti til öryggis fyrir flug.“    Víðir Gíslason heldur því fram að verði há- spennulína lögð í lofti svo nálægt flugvellinum geti það haft truflandi áhrif á leiðsögubúnað á jörðu niðri og í flugvélum í blindflugi. „Mér finnst að það verði líka að koma fram að um- fjöllun Isavia og Samgöngustofu tók ekki til- lit til ísingar- og seltuhættu sem veldur áhrif- um á Íslandi. Ráðgjafar mældu áhrif vegna súldar í Hollandi, yfirfærðu á Eyjafjörð og sögðu eftir það að línurnar hér yrðu í lagi.“    Víðir heldur áfram: „Fólk hefur margoft séð myndir af mikilli ísingu á háspennulínum, hún getur valdið bilun í einangrun sem getur valdið neistaflugi og sá neisti veldur rafbylgj- um sem geta farið á sömu tíðni og er á leið- sögumerkjunum. Þetta er því mikið alvöru- mál,“ segir Víðir Gíslason.    Guðmundur Ingi sagði á vorfundi Sam- orku að sýnileikagreiningin, sem nefnd var í upphafi, benti til þess að loftlína yrði ekki mjög áberandi frá byggðinni á Akureyri.    Unnið er að frummati á jarðstrengs- lögnum, að sögn Guðmundar Inga, vegna möguleika á því að strengurinn yrði lagður í jörðu þvert yfir fjörðinn skammt sunnan flug- vallarins. Nefndi Guðmundur ýmsa þætti sem hafa þyrfti í huga ef sú leið yrði farin, að- allega atriði sem snúa að náttúrunni. Hann nefndi til dæmis að jarðstrengur yrði að mestu innan skipulags þéttbýlis og myndi því þvera lagnir og vegi, og vera í nálægð við íbúðarhúsnæði.    Í Kjarnaskógi myndi þurfa að ryðja um 20 metra breiða leið fyrir jarðstreng að sögn Guðmundar og strengurinn myndi fara yfir óshólma Eyjafjarðar, sem eru á náttúru- minjaskrá, sagði hann. Hugsanlega þyrfti að leggja þar nýjar vegslóðir, ef strengleiðin yrði önnur en meðfram gamla veginum.    Guðmundur Ingi sagði að í leysingum stæði vatn hátt í óshólmanum sem gæti tor- veldað viðgerð jarðstrengja. Hann sagði að einnig þyrfti að kanna áhrif segulsviðs á flug- ið, í og við flugbrautina, gera ráðstafanir til að gera við strengi ef farið yrði undir flug- brautina og gera ráðstafanir vegna viðgerða við enda flugbrautarinnar. Þá þyrfti að at- huga áhrif strengjanna á lífríki Eyjafjarðarár og huga sérstaklega að áhrifum lágs skamm- hlaupsafls á svæðinu á mögulega streng- notkun. Glannaleg túlkun og stenst ekki skoðun Ljósmynd/Hörður Geirsson Akureyri Stenst ekki skoðun að háspennulína hafi ekki áhrif á flugöryggi, segir flugmaður.  Háspennulína raskar ekki flugöryggi, segir Landsnet  Mikið alvörumál, segir flugmaður Símenntun Háskólans á Akureyri útskrifaði nýverið 30 nemendur úr leiðsögunámi. Þetta er í fyrsta skipti sem útskrifað er úr slíku námi utan höfuðborgarsvæðisins. Útskrifaðir nemendur geta fengið aðild að Félagi leiðsögumanna og var námið byggt á námskrá fyrir leiðsögunám í samstarfi við Leið- söguskólann og Samtök ferðaþjón- ustunnar. Námið stóð í tvær annir. Námið er víðfeðmt og fjölbreytt, segir í tilkynningu, „en því er ætlað að vera hagnýtt og taka mið af ólík- um þörfum ferðaþjónustunnar í takt við breytilegt ferðamynstur ferðamanna. Nemendur eru frædd- ir um leiðsögutækni, helstu ferða- mannastaði, íslenskt samfélag, jarðfræði landsins, sögu og menn- ingu, gróður og náttúruvernd, at- vinnuvegi, bókmenntir og listir auk þjálfunar í erlendu kjörmáli svo nokkuð sé nefnt. Flestir völdu ensku en einnig voru þýska, franska og norska valin sem kjör- mál. Kennt var síðdegis eftir hefð- bundinn vinnudag og farnar vett- vangsferðir um helgar með SBA- Norðurleið.“ Skortur hefur verið á menntuð- um leiðsögumönnum í takt við mikla fjölgun ferðamanna á síðustu árum. Leiðsögn Stærstur hluti þeirra sem útkrifuðust sem leiðsögumenn nyrðra. Leiðsögumenn út- skrifaðir norðanlands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.