Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 84

Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 84
84 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014 N 28 2014 Listahátíð í Reykjavík Listahátíð í Eldborg Bryn Terfel @ Harpa — 24. maí 20% afsláttur ef keyptir eru miðar á 3 viðburði eða fleiri. Nánar í síma 561 2444. Mahler no.3 @ Harpa — 23. maí Khatia Buniatishvili @ Harpa — 29. maí Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hinn 26. maí næstkomandi gefur Bedroom Community-plötuútgáfan út sólóplötu með ástralska tónlistar- manninum Ben Frost sem nefnist A U R O R A. Síðasta sólóplata Frost, BY THE THROAT, kom út fyrir fimm árum og hlaut prýðilegar viðtökur innlendra sem erlendra gagnrýnenda. Hafa því eflaust marg- ir beðið þeirrar nýju með eftirvænt- ingu en á henni eru flytjendur, auk Frost, þeir Shahzad Ismaily, Greg Fox og Thor Harris. Í nýju ljósi A U R O R A var tekin upp að miklu leyti í Austur-Kongó og leikur blaðamanni forvitni á að vita hvað Frost var að gera þar í landi. Frost segist hafa séð myndir sem ljós- myndarinn og myndlistarmaðurinn Richard Mosse tók í Austur-Kongó fyrir ljósmyndabók sína Infra, þegar hann var staddur í galleríi í New York. „Þetta var heimur sem ég hafði aldrei séð áður, hann var að nota gamlar innrauðar (e. infrared) filmur eins og voru notaðar í Víet- namstríðinu til að sýna hernaðar- mannvirki í frumskógunum,“ segir Frost. Lifandi gróður verði rauður eða bleikur en ekki grænn en það sem sé grænt og kalt breyti ekki um lit, t.d. græn föt hermanna. Frost segir þessa aðferð Mosse sýna stríð- ið og átökin í landinu í allt öðru og nýju ljósi, litrófið allt annað en fólk eigi að venjast. „Þetta var sjónræn útgáfa af því sem mig langaði að gera í minni tónlist, þetta litróf,“ segir Frost. Hann hafi því haldið til Austur-Kongó á fund Mosse og dval- ið með honum í frumskógunum þar. Hófst þá farsælt samstarf, Frost hannaði hljóð fyrir myndbandsverk Mosse, The Enclave, sem sýnt var á Feneyjatvíæringnum í fyrra og Mosse tók ljósmyndina sem prýðir umslag A U R O R A hér á landi með íslenskum aðstoðarmönnum, sem og myndband við tónlist Frost. Innblásinn af hávaða Goma Frost segist hafa samið tónlistina fyrir A U R O R A þegar hann vann með Mosse í Austur-Kongó. Frost dvaldi m.a. í borginni Goma, vann þar á fartölvu sína með heldur óör- uggri rafmagnstengingu þar sem borgarbúar notast almennt við dísil- knúnar rafstöðvar eða rafmótora. Hann segir það hafa verið heldur truflandi þar sem slíkar vélar séu af- ar háværar. Það hafi því ekki verið í boði að sinna listsköpun í ró og næði, hann hafi orðið fyrir stöðugum „hljómaárásum“. Blaðamaður spyr hvort ekki megi segja það sama um plötuna, að hún sé mikil hljómaárás og Frost tekur undir það. Þessi há- vaði hafi haft mikil áhrif á hann. „Ef þú gengur eftir „Laugaveg- inum“ í Goma klukkan tíu á föstu- dagskvöldi er hljóðheimurinn þannig að allir eru með mjög ódýr, kínversk hljómtæki í verslunum sínum með skelfilegum hljómi. Það sem gerir þetta mjög skrítið er að bakatil í verslununum er rafall sem býr til mikinn hávaða og til að yfirgnæfa hann þarf að stilla hljómtækin á hæsta styrk og hljóðið bjagast ótrú- lega mikið við það,“ segir Frost. Þessi mikla hljómaárás sé í raun hluti af tónlistarmenningu borgar- innar. Birta, ekki myrkur Frost vonar að fólk upplifi tónlist- ina á plötunni ekki sem dimma eða myrka því hún snúist miklu fremur um ljós og birtu. „Ég tengi hana persónulega við allt litróf ljóssins, þetta er eins og sólin,“ segir Frost og segist þar ekki vera á krútt- legum nótum heldur eigi hann við sólina sem fyrirbæri, glóandi gashnött með sífelld- um sprengingum. „Þaðan kemur nafnið á plötunni, allir tala um norðurljósin sem eitthvert góðkynja fyrirbæri eða draugalegt en þau eru það ekki, þetta eru miklar spreng- ingar sem eru dregnar niður til okk- ar frá sólinni,“ segir Frost og bætir því við að hann vilji þó ekki gera lítið úr fegurð norðurljósanna. Frost verður önnum kafinn við tónleikahald í sumar, hélt í tónleika- ferð í gær um Evrópu sem lýkur í Króatíu 24. maí. 29. maí heldur hann tónleika í Kanada, á MUTEK- raflistahátíðinni og hinn 12. júní treður hann upp á Sonar-hátíðinni í Barcelona sem hann segist hlakka mikið til. Degi síðar kemur hann fram í París og 11. júlí er svo komið að Íslandi, All Tomorrow’s Parties á Ásbrú. Síðustu tónleikar Frost hér á landi fóru fram í þrengslum Kaffi- barsins og segist Frost njóta þess að fara öfganna á milli þegar kemur að tónleikastöðum, spila á pínulitlum stöðum jafnt sem stórum sviðum. Hvað næstu verkefni varðar segist Frost spenntur fyrir því að vinna tónlist fyrir væntanlega kvikmynd Barkar Sigþórssonar, verkefni sem hann fari í á þessu ári. „Ég fíla hann í botn,“ segir Frost um Börk. Þá stefni þeir Daníel Bjarnason að því að vinna frekar saman en þeir sendu fyrir þremur árum frá sér plötu með tónlist sem þeir sömdu innblásnir af kvikmynd Andrei Tarkovskíj, Sol- aris. „Fyrir utan það langar mig bara að vera heima og veiða,“ segir Frost og hlær og á þar við fluguveiði. Ljósmynd/Börkur Sigþórsson Litríkur Ben Frost heillaðist af litrófi ljósmyndanna sem Richard Fosse tók í Austur-Kongó á innrauðar filmur. Innrauður heimur og kongóskar hljómaárásir  Ben Frost samdi tónlistina á A U R O R A í Austur-Kongó Frost er fæddur og uppalinn í Ástralíu en fluttist hingað til lands fyrir um tíu árum, kom hingað fyrst að heimsækja vin sinn, tónlistarmanninn Valgeir Sigurðsson, og heillaðist þá mjög af landi og þjóð, fékk til- finningu fyrir því að hann væri kominn heim, eins og hann lýsir því sjálfur. Þeir Valgeir stofnuðu saman plötufyrirtækið Bedro- om Community ásamt tónskáld- inu Nico Muhly í því skyni að gefa út eigin tónlist og hefur Frost uppfrá því notið sífellt meiri athygli og virðingar í tón- listarheiminum. Hann var árið 2010 valinn af sjálfum Brian Eno í Protegé-verkefni fyrirtæk- isins Rolex, vann með Eno í eitt ár að tónlist og hefur unnið með tónlistarmönnum á borð við Colin Stetson og hljómsveitinni Swans, auk þess að semja tón- list fyrir kvikmyndir á borð við Sleeping Beauty og Djúpið. Þá samdi Frost og stýrði sinni fyrstu óperu, The Wasp Factory, í fyrra og var hún byggð á sam- nefndri skáldsögu Ian Banks. Eno og ópera FÉLL FYRIR ÍSLANDI Litríkt Umslag A U R O R A. Ómkvörnin, tónlistarhátíð tón- smíðanema við Listaháskóla Íslands, verður haldin í Hörpu í dag, föstu- dag, og á morgun. Í Ómkvörninni eru tónverk nemenda frumflutt, tón- list sem vitnar um fjölbreytilega flóruna í hópi ungra íslenskra tón- skálda. Tónleikarnir fara fram í Kaldalóni, aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Dagskráin hefst klukkan 17 í dag með tónleikum er kallast „Söngur og samhljóman“ og verða þá flutt sex verk. Klukkan 21 hefjast tónleik- arnir „Rásir og rafstraumur“, með sjö verkum. Á morgun, laugardag, eru einnig tvennir tónleikar. Klukk- an 13 er það „Hrosshár og hörpu- slög“, með verkum sjö höfunda, og klukkan 14.30 hefjast loka- tónleikarnir, „Logar og lúðraþytur“ með verkum eftir níu tónskáld. Ómkvörn nema malar Nýsköpun Svipmynd frá einum af tón- leikum Ómkvarnarinnar í Hörpu í fyrra. Vefsíða Ben Frost: ethermachines.com www.bedroomcommunity.net www.richardmosse.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.