Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 81

Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 81
Hann var framkvæmdastjóri og síð- ar formaður Félags landeigenda í Selási 1976-82. Jóhannes var vallastjóri Íþrótta- valla Reykjavíkur 1986-2009 er hann lét af störfum og embættið var lagt niður. Hann hefur síðan sem verk- taki séð um hitakerfi gervigrasvall- anna í Reykjavík. Formaður Fylkis í 15 ár Jóhannes sat í stjórn Félags mat- vörukaupmanna í nokkur ár, var einn stofnenda IMA, Innkaupa- sambands matvörukaupmanna, sat í stjórn Framfarafélags Seláss og Ár- bæjarhverfis í mörg ár, var varafor- maður Félags sjálfstæðismanna í Selási, Árbæ og Ártúnsholti, gjald- keri Íþróttafélagsins Fylkis 1977-82 og formaður Fylkis 1982-97, lengur en nokkur annar. Jóhannes er nú varaformaður Korpúlfa, félags eldri borgara í Grafarvogi. Jóhannes sinnir fjölskyldunni, golfi, göngum, ferðalögum og ætt- fræði, þegar tími gefst til, en hann er enn önnum kafinn við hin ýmsu verkefni: „Ég byrjaði í golfi 1989 og hef haft mikla ánægju af því síðan, hér heima og erlendis. Ég hef alltaf haft ánægju af því að hreyfa mig og fjölgað gönguferðum í seinni tíð, ef eitthvað er. Þá hef ég lengi haft áhuga á ættfræði, kíki oft til hans Odds í Skerjafirðinum og hef gaman af að grúska í gömlum skræðum.“ Jóhannes var sæmdur gullmerki ÍBR og gullmerki KSÍ. Hann er heiðursfélagi SÍGÍ, Samtaka íþrótta- og golfvallastarfsmanna á Íslandi, og heiðursfélagi Fylkis. Fjölskylda Jóhannes kvæntist 5.6. 1960 Huldu Jóhannsdóttur, f. 23.1. 1941, fyrrv. innheimtufulltrúi hjá Sec- uritas. Foreldrar Huldu voru Jó- hann Guðmundsson, f. 22.11. 1916, d. 10.2. 1989, verkstjóri á Akureyri, og k.h., Ólöf Ingimarsdóttir, f. 12.6. 1918, d. 15.12. 1993, húsfreyja. Synir Jóhannesar og Huldu eru Jóhann Garðar, f. 5.2. 1961, húsa- smiður og tamningamaður í Laufási í Ásahreppi, sambýliskona hans er Eydís Indriðadóttir og sonur, Guð- mundur Óli; Brynjar, f. 10.11. 1963, ráðgjafi hjá Mótus, búsettur í Reykjavík en kona hans er Steinunn Braga Bragadóttir og eru börn þeirra Hulda Björk, Viktor Bragi og Ester Rós; Ólafur Hreinn, f. 30.3. 1968, PGA golfkennari, búsettur í Kópavogi en kona hans er Bryndís Eva Jónsdóttir og eru börn hans Arnar, Hanna Ósk og Ásgeir. Barnabarnabörn Jóhannesar og Huldu eru Alexander Breki Arnar- son og Embla Rán Arnarsdóttir, og Benjamín Orri Hulduson. Systkini Jóhannesar eru Anna, f. 20.10. 1941, fyrrv. verslunarmaður, búsett í Reykjavík; Magnús Örn, f. 11.6. 1951, skipstjóri í Reykjavík; Kristján Björn, f. 15.2. 1953, verk- fræðingur við Slippstöðina á Akur- eyri; Ingvar, f. 9.4. 1957, rafmagns- eftirlitsmaður á Akureyri, og Bergur, (kjörbróðir) f. 15.3. 1957, skipstjóri á Akranesi. Foreldrar Jóhannesar voru Garð- ar Benedikt Ólafsson, f. 19.10. 1908, d. 17.8. 1998, efnisvörður hjá Raf- veitu Akureyrar, og k.h., Jakobína Anna Magnúsdóttir, f. 30.8. 1920, d. 1.2. 1996, húsfreyja. Úr frændgarði Jóhannesar Óla Garðarssonar Jóhannes Óli Garðarsson Signý Sveinsdóttir ljósm. á Galmastöðum, af Buchsætt Friðrik Jóhannsson smiður á Galmastöðum Arnþrúður Friðriksdóttir húsfr. á Syðsta-Kambhóli Magnús Þorsteinsson b. á Syðsta-Kambhóli í Arnarneshr. Jakobína Anna Magnúsdóttir húsfr. á Akureyri Friðrik Magnússon b. á Hálsi í Svarfaðardal Þorsteinn Magnússon vélstj. á Akureyri Áslaug Á. Guðmundsd. húsfr. í Rauðuvík Þorsteinn Vigfússon útvegsb. í Rauðuvík, af Krossaætt, bróðursonur Þorvaldar, afa Jóhanns Sigurjónssonar skálds Anna Magnúsdóttir húsfr. á Akureyri Björn Jóhannsson tómthúsm. á Akureyri Jóhanna Björnsdóttir húsfr. á Akureyri Ólafur Sumarliðason stýrim. á Akureyri Sigurður Sumarliðason skipstj. á Akureyri Garðar Benedikt Ólafsson efnisvörður hjá Rafveitu Akureyrar Hreinn Ólafsson lengst af sjóm. hjá Eimskip Guðríður Þorsteinsdóttir húsfr. í Akurhúsum Sumarliði Ólafsson sjóm. í Akurhúsum í Garði Björgvin Þorsteinss. hrl. og sexfaldur Íslandsmeistari í golfi Sigrún Þorsteinsd. sýslumannsfrú á Akureyri Feðgar í golfi Jóhannes Óli og Ólaf- ur Hreinn á Flórída. ÍSLENDINGAR 81 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014 90 ára Guðrún Magnúsdóttir 80 ára Gústav Nilsson 75 ára Guðrún Magnúsdóttir Jósep Sigurðsson Kjell Geelnard Sigurjón Sverrisson 70 ára Anna Freyja Edvardsdóttir Guðmundur Arnoldsson Þórir Svansson 60 ára Guðlaugur Jón Úlfarsson Helgi Kristinn Marvinsson Hörður Gígja Jónína Leósdóttir Sigfús Guðmundsson 50 ára Bjarni Valur Guðmundsson Dagbjört Einarsdóttir Elías Björnsson Helga Ingibjörg Pálmadóttir Helgi Hinrik Schiöth Hrönn Steingrímsdóttir Laufey Kristjánsdóttir Páll Þórir Hermannsson Regina Macijauskiene Sigurbjörg Helga Birgisdóttir Sveinn Freysson 40 ára Ágúst Guðmundsson Birgir Gunnarsson Bjarni Árnason Eiríkur Tómas Marshall Guðbjörg Hjaltadóttir Guðríður Pétursdóttir Gunnar Hrafn Hall Herbert Jónsson Zoéga Ingunn Björnsdóttir Jónas Sigurðsson Lilja Guðmundsdóttir Ólöf Þóra Ólafsdóttir Sigrún Hrefna Arnardóttir Sigrún Ólafsdóttir Snæbjörn Þór Stefánsson Stefanía Ársælsdóttir Þiðrik Hrannar Unason 30 ára Agnieszka Wasiewicz Amila Melic Árni Brynjúlfsson Branislav Bozic Bryndís Eiríksdóttir Guðmundur Einar Steindórsson Halldór Árnason Ingibjörg Sólveig Oddsdóttir Jóhanna Bettý Durhuus Ragnar Örn Arnarson Clausen Rita Jeronimo Roque Til hamingju með daginn 30 ára Hrafnhildur ólst upp í Kópavogi, er búsett í Reykjavík, lauk prófi í læknisfræði í Ungverja- landi og starfar við Heilsugæsluna í Glæsibæ. Maki: Kristján Andr- ésson, f. 1982, sérfræð- ingur við fjármálaeftirlitið. Dóttir: Rebekka Karen, f. 2012. Foreldrar: Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir, f. 1956, og Einar Páll Jónasson, f. 1954, d. 1999. Hrafnhildur Einarsdóttir 30 ára Hafsteinn ólst upp í Reykjavík og starfar við steinsmíði. Maki: Heiða Ósk Úlfars- dóttir, f. 1985, verslunar- maður hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Börn: Hafþór Heiðar, f. 2010, og Heiðdís Hrefna, f. 2011. Foreldrar: Magnús Þ. Magnússon, f. 1963, þús- undþjalasm. og Hrefna R. Baldursdóttir, f. 1965, starfsm. hjá ALCAN. Hafsteinn Þór Magnússon 30 ára Hólmfríður ólst upp í Reykjavík, lauk BS- prófi í stærðfræði frá HÍ, kennaraprófi við HR og kennir stærðfræði við VÍ. Maki: Ingólfur Finn- bogason, f. 1982, lög- fræðingur. Dóttir: Soffía Ingólfs- dóttir, f. 2012. Foreldrar: Þuríður Páls- dóttir, f. 1960, lífeinda- fræðingur, og Knútur Kristinsson, f. 1958, múr- ari. Hólmfríður Knútsdóttir Christopher Bruce McClure hefur var- ið doktorsritgerð sína við læknadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin hans heitir „Andleg líðan og heilsutengd hegðun í kjölfar efnahagsþrenginga – Áhrif á Ís- land“ „Mental health and health be- haviors following an economic col- lapse – The case of Iceland.“ Efnahagshrunið á Íslandi í október 2008 var að mörgu leyti sérstakt í um- fangi og hraða og eru enn ófyrirséð þau áhrif sem efnahagshrunið mun mögulega hafa á heilsufar þjóðarinnar. Fyrri erlendar rannsóknir hafa gefið vísbendingar um neikvæð áhrif en einnig jákvæð áhrif. Markmið þessarar rannsóknar var að rannsaka áhrif efnahagshrunsins á Íslandi á andlega líðan og heilsutengda hegðun. Allar rannsóknirnar voru unnar úr stórri heilsufarsrannsókn sem framkvæmd var á vegum Embættis landlæknis árin 2007 og 2009. Upphaflegt þýði rann- sóknarinnar var byggt á lagskiptu slembiúrtaki íslensku þjóðarinnar. Helstu útkomubreyturnar voru andleg líðan (streita (N=3755) og þunglyndis- einkenni (N=3783)), reyk- ingar (N=3755) og tannheilsa (N=4100). Streita var mæld með ís- lenskri útgáfu af Perceived Stress Scale (PSS-4) og þunglyndiseinkenni voru mæld með WHO-5 spurningalistanum. Niðurstöðurnar benda til þess að efnahagsþrengingarnar árið 2008 hafi haft neikvæð áhrif á andlega líðan full- orðinna á Íslandi, þá sérstaklega með- al kvenna. Á hinn bóginn komu í ljós jákvæðar breytingar í heilsutengdri hegðun, t.d. með minna algengi reyk- inga og hegðun sem gæti leitt til betri tannheilsu. Frekari rannsóknir ættu að beinast að langtíma eftirfylgd á þróun andlegrar líðanar og samspili við heilsutengda hegðun. Leiðbeinandi var dr. Arna Hauksdóttir. Doktor í lýðheilsuvísindum  Christpher B. McClure lauk BS-gráðu í sálfræði frá Florida State University árið 2008 og meistaragráðu í lýðheilsuvísindum frá Yale School of Public Health árið 2011. Áður hefur hann starfað við rannsóknir hjá Embætti landlæknis og við Yale-háskólann í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig sinnt stundakennslu í grunn- og framhaldsnámi í lýðheilsuvísindum. Hann starfar nú við rannsóknir hjá fyrir- tækinu GetWellNetwork í Washington D.C. í Bandaríkjunum. Eiginkona hans er Kristín Kristinsdóttir. Dóttir þeirra er Noelle Svava McClure og þau eiga von á syni í júní. Doktor mbl.is/islendingar Kremdagar í Hygea Kringlu 16. & 17. maí Hvaða krem hentar þér best? Sérfræðingur frá Shiseido býður þig velkomna í Hygea að uppgötva heillandi heim Shiseido. Glæsilegur kaupauki þegar keyptar eru 2 Shiseido vörur, þar af ein í kremlínu.* 20% *Gildir meðan birgðir endast afsláttur af Shiseido kremum Shiseido krem Í krafti nýsköpunar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.