Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014 Nýlegir Mitsubishi Pajero á rekstrarleigu til fyrirtækja Laugavegi 174 | Sími 590 5040 - Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16 HEKLA býður nú fyrirtækjum nýlegar Mitsubishi Pajero bifreiðar í rekstrarleigu. Í rekstrarleigu fá fyrirtæki nýlegar bifreiðar til umráða í 1 ár gegn föstumánaðar- gjaldi. Leigutaki losnar við alla fjárbindingu og endursöluáhættu. Greitt er fast mánaðarlegt leigugjald og bifreiðinni einfaldlega skilað í lok leigutímans. Dæmi: Pajero 3.2 Instyle Árgerð 2012, dísil Ekinn 38.000 km, sjálfskiptur Mitsubishi Pajero er knúinn 3,2 l dísilvél sem skilar 200 hestöflum. Meðal búnaðar bifreiðanna eru leðurinnrétting, rafdrifin framsæti, aukasæti (7 manna), bakkmyndavél, xenon ljós, ný heilsársdekk o.fl. (miðað við Instyle útfærslu). Mánaðarlegt leigugjald: 136.041 kr.m/vsk Hópurinn Hér má sjá hópinn Wakka Wakka! sem að undanförnu hefur gert það gott víða um heim. Næsti viðkomustaður er Ísland á Listahátíð. Malín Brand malin@mbl.is Margir kannast við Leik-hópinn Lottu, bæðifullorðnir og börn, enenn fleiri börn hafa hitt tröllastelpuna Ellu sem lærir umferðarreglurnar eins og yngstu nemendur grunnskólans. Leik- konan sem fer með hlutverk Ellu er Andrea Ösp Kalsdóttir og hún hef- ur sannarlega komið víða við á leik- ferli sínum. Hún tilheyrir meðal annars erlendum leikhópi sem setur upp brúðuleikrit víða um heim. Sýn- ingin SAGA hefur fengið frábæra dóma víða og meðal annars unnið Drama Desk-verðlaunin í New York. Það brúðuleikrit gefst gest- um Listahátíðar kostur á að sjá í Þjóðleikhúsinu 5. og 6. júní næst- komandi. Alltaf tími fyrir Lottu Andrea er orðin vön því að vinna bæði hér á landi og erlendis og er orðin æði flink í að púsla hin- um ýmsu verkefnum saman. „Ég vinn með brúðuleik- hópnum Wakka Wakka! í Noregi, Bandaríkjunum og víðar. Þetta er bandarísk-norskur brúðuleikhópur og allar sýningarnar eru unnar í samvinnu bæði í Noregi og New York. Svo eru þær sýndar Off Broadway í New York,“ segir Andr- ea um sýningar hópsins sem sam- anstendur af sex leikurum og hljóð- manni sem er hinn Íslendingurinn í hópnum. Hinir leikararnir eru norskir, bandarískir og írskir. Þessi tiltekna sýning, SAGA, var sýnd í New York á síðasta ári um nokkurra mánaða skeið. „Svo túruðum við með Riggs Teatret um allan Noreg. Leikkonan Ísgerður Elfa mun taka að sér eitt hlutverk í sýningunni þegar við setjum hana upp á Íslandi,“ segir Andrea. Búið er að bjóða hópnum til Slóveníu, Króatíu, Englands og Skotlands. Aðspurð hvort hún hafi tíma fyrir leikhópinn Lottu segir hún svo vera. „Já, þetta púslaðist saman með Lottu,“ segir hún fegin því af henni vill hún ekki sleppa hendinni. Þrjátíu brúður í verkinu Andrea segir að hugmyndin á bak við þetta tiltekna verk hafi ver- ið að hópinn langaði að búa til teng- ingu við Ísland. „Egill Skalla- grímsson er frá svipuðum slóðum og við vinnum sýninguna á. Upp- haflega hugmyndin var að gera sýn- ingu um Íslendingasögurnar og vík- ingana en það þróaðist mjög fljótlega út í blöndu af víkingunum okkar sem hér námu land og útrás- arvíkingunum. Á endanum vorum við komin með sögu sem gerist í nú- tímanum og er um venjulegan mann í efnahagshruninu en er með teng- ingar inn í víkingasögurnar og alls konar íslenskt,“ segir Andrea og vísar þar til goðafræðinnar, eld- gossins í Eyjafjallajökli, norðurljós- anna, íslenska hestsins og svo mætti lengi telja. Allt er þetta byggt á brúðuleik og alls eru yfir þrjátíu brúður í leik- ritinu. „Þær eru allt frá 10 sentímetr- um upp í tvo og hálfan metra á hæð en flestar eru á bilinu 50 sentímetr- ar til einn metri.“ Brúðuleikhúsið er vissulega nokkuð frábrugðið því sem Andrea hefur verið að gera áður á leiksvið- inu. Hún segir að það sé fyrst og fremst skemmtilegt að vera brúðu- leikari og hún hafi fengið góða þjálf- un hjá hópnum. „Ég er með grunn í sirkus, lík- amlegu leikhúsi, trúðum og fleira í þeim dúr. Eftir að ég var ráðin var ég á námskeiði hjá þeim. Hver ein- asti vinnudagur byrjaði á klukku- tíma námskeiði og svo unnum við með brúður allan daginn þangað til ég var orðin brúðuleikari,“ segir leikkonan Andrea Ösp Karlsdóttir sem hlakkar til að fá að kynna þetta verk fyrir Íslendingum. Brúðuleik- hús fyrir fullorðna eru enn sem komið er ekki svo þekkt hér á landi miðað við víða erlendis en það á ef- laust eftir að breytast með ferskum vindum! Brúðuleikhús norður- ljósa og eldgosa Brúðuleikhús er ekki bara fyrir börn heldur getur það verið stórsniðugt form leik- húss, fullt af drama, spennu eða gríni. Íslensk leikkona, Andrea Ösp Karlsdóttir, hefur ferðast heimsálfa á milli ásamt fimm öðrum leikurum og sýnt brúðuleik. Nú eru þau á leið á Listahátíð hér á landi og ætla að sýna brúðuleikritið SAGA sem er bæði hjartnæmt og fyndið auk þess að eiga rætur að rekja til Íslands. Brúðuleikari Andrea Ösp segir brúðuleikinn vera bráðskemmtilegan. Hér er hún í miðjum leik og blæs lífi í brúðurnar með rödd og látbragði. Ljósmyndari/John Stenersen Íslenskt SAGA gerist á Íslandi og er umhverfið og leikmunirnir með ramm- íslenskum blæ. Lopapeysur, eldgos og norðurljós gefa þar m.a. tóninn. Sérstök töfrasýning verður í Saln- um í Kópavogi klukkan 19.30 í kvöld. Um fjölskyldusýningu er að ræða og fá áhorfendur að taka virkan þátt í sýningunni ef þeir vilja. Þar koma fram magnaðir töframenn og -konur. Meðal þeirra er Einar Míkael og Hermann Helenuson en hann vann keppnina Ísland Got Talent í vetur. Sýningin er fjármögnuð með frjálsum framlögum sem renna beint til styrktar Karenar, litlu systur Hermanns en hún þarf að undirgangast stóra hryggaðgerð. Töfrahetjurnar í Salnum Safna fyrir veika systur Systkin Karen og Hermann eru náin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.