Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 77

Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 77
MINNINGAR 77 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014 Fyrir hönd sam- takanna POWER- talk á Íslandi vil ég minnast með þökk og virðingu Hildar Jónsdóttur. Hildur starfaði með samtökunum í rúm 20 ár og gegndi mörgum trúnaðarstörfum af kostgæfni innan samtakanna, sem áður hétu Málfreyjur á Ís- landi og ITC, International Train- ing in Communication. Hildur gekk til liðs við samtök- in á 50. fundi deildarinnar Hörpu í Reykjavík. Frá þeim tíma vann hún ötult starf bæði við að byggja sjálfa sig upp en ekki hvað síst að hjálpa og styðja við bakið á fé- lögum í deildinni. Ég varð þess heiðurs aðnjót- andi að kynnast Hillu bæði í vinnu og einnig í starfi innan Hörpunn- ar. Hún hvatti mig og studdi og það var ekki hægt annað en að fyllast krafti og áhuga með hana Hildur Jónsdóttir ✝ Hildur Jóns-dóttir fæddist 4. desember 1947. Hún lést 18. apríl 2014. Útför Hildar fór fram 6. maí 2014. sér við hlið. Hildur var traust- ur félagi og alltaf tilbúin til að rétta hjálparhönd þegar til hennar var leitað. Hún var einn af stofnfélögum í „Grand Ladys“ eða deildinni Ísafold þar sem heldri dömurn- ar voru sem búnar voru að gera allt inn- an samtakanna eins og Hilla út- skýrði fyrir mér stolt á svip og starfaði hún þar í mörg ár. Það fór ekki fram hjá neinum þegar Hilla var á staðnum, alltaf stuð í kring- um hana og engin lognmolla. Það voru líka skýrar og ákveðnar en samt vinsamlegar ábendingar sem hún gaf og aldrei særði hún nokkurn mann. POWERtalk samtökin á Ís- landi sjá á bak öflugum félaga sem setti svip sinn á starfið um langt árabil. Við í samtökunum þökkum henni, hennar mikilvæga framlag. Blessuð sé minning Hild- ar Jónsdóttur. Lilja Guðný Friðvinsdóttir, landsforseti POWERtalk International á Íslandi. Þann 22. apríl sl. var hann Nonni, eins og hann var alltaf kallaður, bor- inn til grafar. Nonni var vinur allra, sem mér eins og mörgum öðrum þótti einstaklega vænt um því betri mann var vart að finna. Nonni kom nær daglega til okkar í Landsbankann í kaffispjall og mikið söknum við hans. Hann átti kannski ekki mikið af veraldlegum eigum en annað átti hann dýrmætara og það var heiðarleiki og ljúf- mennska. Börn hændust að honum og eiga margir krakkar góðar minningar um Nonna sinn. Hann heimsótti okkur næstum því daglega í Lands- bankann á Tálknafirði, hann kom í kaffisopa til okkar í smá spjall um allt og ekkert og eitt er víst að aldrei heyrði ég Nonna tala illa um nokkurn mann, það var ekki hans stíll og stundum sátum við bara og þögðum. Í lok þessara heim- sókna gerðum við Nonni það oft að gamni okkar að kveðjast með virktum og hneigðum okk- ur hvort fyrir öðru og hlógum í hvert skipti. Það var ekki erfitt að fá Nonna til þess að hlæja, hann var mjög hláturmildur, oft fór fólk hjá sér þegar hon- um fannst eitthvað fyndið í kringum sig og þá sagði hann „ég er ekkert að hlæja ég hósta bara svo mikið núna,“ þá hló fólk bara með, það var ekki hægt annað. Meðan ég skrifa þetta hef ég mynd af honum þar sem hann er brosandi og með húfuna sem Olga systir Guðbrandur Jón Herbertsson ✝ GuðbrandurJón Herberts- son fæddist 15. júlí 1946. Hann lést 12. apríl 2014. Jarðsett var 22. apríl 2014. hans gaf honum, en húfan er eins og sú sem bókarper- sóna Sveik í Góða dátanum Sveik klæddist, bók þessi var biblía hans, hann las hana reglulega aftur og aftur enda vitnaði hann oft í hana. Ég brosi alltaf að setn- ingunni okkar, þegar mér fannst ég þurfa að standa upp eftir kaffispjall og fara að vinna sagði ég stund- um: „Þetta gengur ekki,“ þá sagði Nonni: „Þú ert eins og síldarkaupmaðurinn sem snéri sér á hina hliðina og sofnaði aftur,“ og benti mér á að þessi fleygu orð væru neðarlega á blaðsíðu 82 í bókinni góðu. Að mörgu leyti var Nonni líkur góða dátanum því hann vildi alltaf gera gott úr öllu, vegna þess að það var bara til kær- leikur í sál hans og hjarta og smá þrjóska fylgdi með. Fallið lauf, eftir sit ég hljóð, tárin falla. Ég stari í kertalog- ann, það er þögn í hjarta mínu, ég bið í hljóðri bæn, bið fyrir þér, bið fyrir ykkur. Eitt skarð enn, ég rétti fram hönd mína. Kveiki á kertum horfi á logann hugsa í þögninni. Enn og aftur falla tárin, allt er hljótt, eitt lauf enn hefur fallið af fallega trénu. (Solla Magg) Elsku vinur, ég kveð þig með söknuði og vona að þér líði sem allra best. Ég veit þú ert í góð- um höndum hjá pabba þínum og mömmu og fjölskyldu Nonna sendum við hjónin okk- ar dýpstu samúðarkveðjur. Birna Sigurbj. Benediktsdóttir. Eins og gerist í lífinu kynntist ég þér seint, en kynntist þér ásamt öllu því góða fólki sem var í kringum þig. Ég vissi lítið um þig fram eftir ævinni en var þó forvitinn um hver þú værir og hvern mann þú hefðir að geyma. Þegar ég var að vinna á elliheimili norður í Skagafirði á síðustu öld var ég að sinna gömlum manni sem var byrjaður að týna minni og sagði ekki mikið fram eftir degi svona yfir höfuð. En ég vissi að gamli maðurinn hefði verið smiður og gröfumaður og unnið mikið af vegum og alls konar drasli um allt land. Ég vissi að þú hefðir verið ýtustjóri svo að ég spurði gamla manninn: „Þekkir þú mann sem heitir Stefán og á ýtu?“ Það var mjög sérstakt að horfa á hvernig ljóminn kom yfir andlit manns- ins og hann sagði: „Stefán Egg- ert Pétursson þekki ég, já hann var til dæmis að búa til Alex- andersflugvöll þarna.“ Eitthvað innra með mér hlýnaði því að ég hafði aldrei hitt eða einu sinni séð Stefán. Hann bætti við: „Afskaplega duglegur og skemmtilegur karl hann Stefán, þekkir þú hann?“ „Já,“ sagði ég, „hann er afi minn.“ En það breyttist, það var bara bankað heima á dyrnar vestur í sveit- Stefán Eggert Pétursson ✝ Stefán EggertPétursson fæddist 23. júní 1932. Hann lést 20. apríl 2014. Útför hans fór fram 2. maí 2014. inni og pabbi átti allt í einu haug af systkinum. Þú varst ljúfur og góð- ur karl, allt fólkið þitt er ljúft, gott og hlýtt. Mér þykir leitt að ég kom mér ekki til að segja þér það, enda feimnismál hjá hverjum og einum, en ég bað fyrir þér. Ég bað fyrir þér frá því að ég var barn og vissi að þú værir til. Það er minning þar sem ég spyr mömmu mína: „Af hverju er pabbi minn ekki með sama nafn og afi?“ og mamma sagði: „Sko, bla bla bla“ og útskýrði fyrir labbakútnum sem var bara fjögurra ára hvernig í pottinn var búið. Ég bætti þér því á ömmu- og afalistann eftir faðirvorið (sko, það er nefni- lega svona fjölskyldubæn sem ég samdi sjálfur þegar ég var púki fyrir ykkur, því að mér þykir svo vænt um ættingjana mína). Það er þó nokkuð af ömmum og öfum í bæninni því að pabbi minn átti nefnilega svolítið marga svona aukaforeldra í föðurstað, því sjáðu til hann var í sveit og í þorpi vestur á fjörð- um til skiptis o.s.frv. Sem sagt, ég hef beðið fyrir öllum í minni fjölskyldu frá því að ég var barn hvern einasta dag, þér meðtöldum, elsku afi minn, og áður en ég þekkti þig. Ég hef alltaf átt trúna þótt ekki sæki ég messur en trúmál fólks eru einkamál hvers og eins. Hérna er þessu deilt af hinni mestu auðmýkt að ég hef alltaf beðið fyrir þér og fjölskyldunni og mun gera það áfram. Það var gaman að skreppa til þín og hennar Jóhönnu þinnar í kaffi. Núna eruð þið bæði farin til himnaföðurins þangað sem við förum öll að lokum. Þú talaðir bara um vinnuna sem mér finnst langsamlega skemmtileg- asta umræðuefnið, alveg eins og hann pabbi, enda ekkert annað merkilegra í fullri alvöru því allt annað er bara andskot- ans tímaþjófur og eintóm vit- leysa, og mikið áttir þú erfitt með að vera kyrr! Það gengur margt í erfðir, það er ekki bara uppeldið. Megir þú ýta og plægja um jarðir himnaföður- ins. Hvíldu í friði elsku afi minn, þú átt góðan stað í hjarta mínu. Páll Jens Reynisson. Elsku afi. Þá kom að því að þú kveddir þennan heim, stuttu eftir að amma kvaddi okkur. Það hefur oft verið erfitt fyrir mig að vera svo langt frá þér og ömmu síðastliðin ár og sér- staklega síðasta hálfa árið og að hafa ekki getað kvatt ykkur almennilega, en hlutirnir gera víst ekki alltaf boð á undan sér. Mér hefur alltaf þótt ég vera náinn ykkur ömmu og þá sér- staklega á yngri árum, en afa ekkert síður seinni ár þegar ég fullorðnaðist því mér fannst alltaf gaman og heimilislegt að koma í Miðgarðinn og ræða hin ýmsu mál, þar á meðal allt sem viðkemur vegagerð og pólitík. Ekki var ég heldur spar á að spyrja þig út í þín yngri ár en ég veit að þú naust þess að segja sögur af þínum yngri ár- um sem sjómaður og þeim tíma sem þú vannst við vegagerð um landið allt. Mér verður títt hugsað til þín í mínu daglega starfi og hugsa ég oft hversu gott það væri nú að geta spurt hann afa út í ýmis mál varðandi hönnun vega. Oft hef ég einnig hugsað til þess að það væri nú fínt ef danskurinn fengi hann afa lán- aðan í eins og eina viku til að kenna þeim hvernig ætti að gera hlutina, þá myndi skratt- inn nú hitta ömmu sína og er ég ekki í vafa um að helming- urinn af dönskum vegavinnu- mönnum væri kominn ískaldur, blautur og jafnvel handleggs- brotinn út á Norðursjó að læra sína lexíu eftir þá viku. Ég á seint eftir að gleyma þeim tíma sem ég eyddi með þér í Brúarholti og þá sérstak- lega í fjárhúsunum og í ýtunni þinni. Ég man þegar ég var lít- ill að þá var ég ekki í vafa um að ég ætti þann allra magnað- asta afa sem fyrirfyndist, hann átti jarðýtu og Ford-traktora. Ég á heldur aldrei eftir að gleyma sviðalyktinni þegar þú varst að brenna sviðahausana, eða vindlalyktinni og lyktinni af rauðum Opal sem var alltaf í bílnum þínum. Þó að síðastliðin ár hafi vafa- laust verið þér erfið þá er margt sem þú getur verið stolt- ur af, því þú ert af þeirri kyn- slóð sem hefur gengið í gegnum svo miklar breytingar og hefur upplifað svo marga hluti í gegnum þína löngu ævi. Þín verður sárt saknað afi minn. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. Eg veit einn, að aldrei deyr; dómur um dauðan hvern. (Úr Hávamálum) Stefán Þór Pétursson. Nú þegar sum- arið hefur sigrað veturinn og lóan vappar um grundir kveður þú okkur, elsku besta mamma mín. Langri vegferð er lokið og hvíldin þér kærkomin. Þú undir þér ekki alltaf hvíldar þegar mannmargt var á heimilinu, varst fyrst á fætur og síðust í rúmið. Geislar morgunsólar glöddu ekki síður en sólarlagið sem blasti við úr eldhúsglugganum. Dásemdir náttúrunnar sem birtust jafnt í hinu smáa sem því stærra létu þig ekki ósnortna og þú kenndir mér og börnum mínum að njóta þess- ara gjafa lífsins. Það varð hreint ævintýri að setja niður kartöflur með þér og taka þær aftur upp að hausti. Ekki voru berjaferðirnar síðri og ótrúlegt hvað þið pabbi voruð dugleg að nýta ykkur gjafir jarðar. Í við- tali við þig í skólablaði Mennta- skólans á Akureyri, en þar varst þú í tvö ár, kemur fram að þér hafi fundist gaman að mála og teikna enda bera myndirnar þínar þess merki. Einnig varst þú dugleg að yrkja og semja sögur. Ömmu- börnin eiga margar uppáhalds- sögur og ævintýri eftir þig. Á þínum yngri árum var ekki mikið um fjallgöngur ef ekki var neitt erindið. Hér lést þú Elísabet Jóhanna Sigurðardóttir ✝ Elísabet Jó-hanna Sigurð- ardóttir fæddist 1. október 1911. Hún lést á Dvalarheim- ilinu Hlíð á Akur- eyri, 4. maí 2014. Útför hennar fór fram 9. maí 2014. löngun og þrár ráða för og vílaðir ekki við að skreppa upp á Tindastól þegar svo bar und- ir. Þetta fjallapríl heldur áfram hjá afkomendum þín- um. Það voru ekki bara fjöllin sem heilluðu. Bræður þínir voru duglegir og virtir sigmenn í Drangey og ekki linntir þú lát- unum fyrr en þú fékkst einnig að síga eftir eggjum. Sennilega fyrsta konan sem seig í Drang- ey. Ástúð, umhyggja og hlýja einkenndu þig alla tíð. Gest- risni var þér í blóð borin sem kom vel í ljós þegar vini og vandamenn bar að garði sem gerðist æði oft. En þig ein- kenndi einnig metnaður í garð okkar og þú fylgdist stolt með skólagöngu og vegferð barna minna og langömmubarna. Þú áttir sjálf þann draum að ganga menntaveg og verða kennari. Sá draumur rættist ekki vegna veikinda ömmu en þú hvattir óspart þá sem yngri voru til skólagöngu og þar komu kenn- arar á öllum skólastigum. Nú er dagur að kveldi kominn og tími til að kveðja. Kærar þakk- ir, elsku mamma fyrir allt sem þú gafst okkur. Þín dóttir, Ásta. Elsku amma mín. Nú er hið margrómaða ríkidæmi bernsku minnar orðið að fallegum minn- ingum, ei meir. Að eiga, auk ömmu og afa beggja vegna, tvær langömmur og tvo lang- afa, allt fram á fullorðinsár var ómetanlegt og man ég hvað ég stærði mig af ríkidæmi mínu sem barn. Og ekki voru það orðin tóm þegar ég fullvissaði forvitin eyru um að amma mín yrði nú örugglega 100 ára áður en hún kveddi okkur; ég var alltaf handviss um að svo yrði. Nú hefur þú sett okkur enn eitt fordæmið til að fylgja, því nú getum við hin sem eftir komum ekki farið að deyja heldur fyrr en fullum hundrað árum er náð! Elsku amma, þú varst fyr- irmynd á svo margan hátt og þrátt fyrir breitt kynslóðabil lítum við barnabarnabörnin alltaf upp til þín, þó að núna sé örlítið lengra upp til þín en bara upp á Klettaborgina. Þú varst alltaf „amma á Klettó“ í huga okkar barnabarna- barnanna, okkur þótti óþarft að vera að „lengja“ ömmu okkar á nokkurn hátt. Þú varst alltaf í huga mínum ímynd hinnar menntuðu og gáfuðu konu, ímynd góðmennsku og þolin- mæði, hlýju og botnslauss vís- dóms. Þú lagðir fyrir mig gátur, helst í vísnaformi og kenndir mér um fjöllin og náttúruna. Þú kenndir mér að slá gras með orfi og ljá og hjálpaðir mér að útbúa fyrstu ljóðabókina mína. „Hvurslags ljóð er þetta?“ spurðir þú stundum. „Þetta er bara ljóð um ljóð,“ var svarið eitt sinnið. „Jaaáá,“ svaraðir þú, hallaðir undir flatt og brostir, „um þau þarf víst að yrkja líka“. Þú hvattir mig allt- af við skrif og raunar allt sem ég gerði, og studdir mig á svo margan hátt, allt fram á full- orðinsár. Því gleymi ég aldrei og fyrir það get ég aldrei þakkað þér nógsamlega. Bréfin frá þér voru alltaf svo falleg og un- aðsleg aflestrar, þau gat ég les- ið aftur og aftur og óskaði ég þess alltaf að geta skrifað jafn fallega og þú. Mínar fyrstu minningar eru frá því ég var tveggja ára og bjó hjá ykkur afa á Klettaborg- inni. Að vera í fanginu á afa á meðan hann fékk sér brauð með appelsínum. Að fá eina te- skeið af mysingi og eina teskeið af hunangi hjá ömmu. Amma mín, þú sem aldrei settist niður í minningunni, flögraðir ýmist um eldhúsið, hrærðir í pottum og hagræddir katlinum, eða varst á einhvern undraverðan hátt komin beint fyrir utan eld- húsgluggann að hengja upp þvott út á snúru. Víst bjó mamma þarna líka, en henni bregður ekki fyrir í þessum minningabrotum. Hið fyrsta sem ég man í þessu lífi er að kúra í litlu rúmi, við hlið- ina á rúminu ykkar afa, og þú svæfðir mig með bæn. Því vil ég kveðja þig með sömu bæn: Vertu, guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson.) Þín dótturdótturdóttir, Ásta Sóley.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.