Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Ökufærni er lykilatriðið
þegar ungmenni hefja akstur.
Hvar fær ungmennið þitt kennslu?
Hluti námsins fer fram í fullkomnum ökuhermi
Áhersla lögð á færni nemenda og öryggi þeirra í umferðinni
Allt kennsluefni innifalið
Ökukennsla www.bilprof.is
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 • Opið 10-17 alla daga.
Hringdu
núna
og bóka
ðu
ökuskól
ann
ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD
– yfir 40 ár í fagmennsku.
Þekking og reynsla í fyrrirúmi
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Viðkomum skemmtiferðaskipa í
höfnum Íslands fjölgar verulega
frá síðasta ári. Þannig er reiknað
með 89 komum skipa til Reykja-
víkur á móti 80 á síðasta ári. Áætl-
að er að 98 þúsund farþegar verði
með skipunum á móti rúmlega 92
þúsund farþegum á síðasta ári.
Sama þróun er á Akureyri þar sem
flest skipin koma líka við og á
fleiri stöðum.
Vertíðin við móttöku skemmti-
ferðaskipa hefst heldur fyrr en áð-
ur. Þannig koma fjögur skip í maí,
það fyrsta næstkomandi mánudag.
Fyrsta risaskipið kemur 3. júní.
Vertíðin stendur síðan út sept-
ember. „Þetta dreifir álaginu yfir á
mánuði þegar minna er um að vera
í ferðaþjónustunni,“ segir Ágúst
Ágústsson, markaðsstjóri Faxa-
flóahafna.
Ísland orðið þekkt stærð
„Það er sífelld vinna í markaðs-
málum sem skiptir máli. Ísland er
orðið þekkt stærð í þessum heimi,“
segir Ágúst um ástæður stöðugrar
fjölgunar í viðkomum skemmti-
ferðaskipa.
Hann segir ánægjulega þróun að
sífellt fleiri skip hafi viðdvöl yfir
nótt við Skarfabakka. Það á við um
25 skip í ár. „Þá hafa farþegarnir
meiri tíma til að skoða Reykjavík
og nágrenni og verja meiri pen-
ingum í kaup á vörum og þjón-
ustu,“ segir Ágúst.
Þreföldun í Grímsey
Fjögur skip velja að hafa við-
komu í Hafnarfjarðarhöfn í stað
Reykjavíkur. Þar eru staðfestar 9
skipakomur en reiknað með að
þær verði 11 í heildina. Þetta eru
frekar minni skip sem gera út frá
Hafnarfirði og sigla hringinn í
kringum landið með viðkomu á
mörgum stöðum og skipta jafnvel
um farþega í Hafnarfirði.
Flest skipanna hafa einnig við-
komu á Akureyri. Von er á 78
komum skemmtiferðaskipa til
Hafnasamlag Norðurlands í sumar
með alls um 77 þúsund farþega.
Þar af eru 66 komur til Akureyrar
og 12 til Grímseyjar.
Margföldun er á skipakomum til
Grímseyjar í sumar því þangað
komu fjögur skip á síðasta sumri.
Skipin geta ekki lagst að bryggju
og eru farþegarnir ferjaðir með
skipsbátunum í land. Vinsælast er
að ganga norður fyrir heimskauts-
baug.
6. júlí verður væntanlega mesti
annadagurinn á Akureyri. Þá hafa
tvö skip með alls á fimmta þúsund
farþega viðdvöl þar sama daginn.
1. ágúst verða þar 4 skip sem öll
eru frekar í minni kantinum.
Pétur Ólafsson, markaðsstjóri
Hafnasamlags Norðurlands, segir
að aðstaðan leyfi að það sé tekið
við tveimur stórum skipum og
minni með. Það reyni hinsvegar á
alla þegar þjóna þurfi mörgum
skipum og farþegum á sama tíma.
„Þetta skiptir okkur miklu máli.
25-30% af tekjum hafnarinnar
koma af skemmtiferðaskipunum.
Þar fyrir utan eru öll þau umsvif,
tekjur og atvinna sem þetta skapar
í ferðaþjónustunni,“ segir Pétur.
Enginn „sprengidagur“
Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á aðstöðunni við Skarfa-
bakka í Reykjavík. Bakkinn var
lengdur á síðasta ári svo þar má
koma fyrir tveimur risaskipum í
einu. Í sumar hefur verið unnið að
merkingu bílastæða og aðstöðu
fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og
ýmsum frágangi.
Síðustu ár hafa komið einstaka
dagar þar sem mörg skip eru í
höfn á sama tíma. Ágúst á ekki
von á neinum slíkum „sprengidög-
um“ í sumar. „Þetta lítur út fyrir
að verða nokkuð þægilegt, oft tvö
skip á dag og stundum þrjú.“
Ágúst segir að 8. júlí verði anna-
samur, þá komi þrjú frekar stór
skip með alls á sjötta þúsund far-
þega. 3. ágúst og 4. september
verði líka stórir.
„Þetta er eins og í öðru, þegar
menn eru búnir að læra á þetta
verður þessi ógnvænlegi fjöldi sem
okkur þótti fyrir nokkrum árum
viðráðanlegur,“ segir Ágúst
Ágústsson.
Tæplega 100 þúsund farþegar
Fleiri skemmtiferðaskip hafa viðkomu á Íslandi en áður 98 þúsund farþegar á land í Reykjavík
Fyrsta skipið kemur nk. mánudag 3. júlí verður annasamasti dagurinn við Reykjavíkurhöfn
Komud. Skip Lega Komud. SkipStærð brt. Lega Stærð brt.
2014Komur skemmtiferðaskipatil Reykjavíkur í sumar
Royal PrincessAdventures of the Seas
19.maí THOMSON SPIRIT Skarfabakki 33.930
20.maí ASUKA II Skarfabakki 50.142
22.maí VOYAGER Miðbakki 15.343
25.maí FRAM Miðbakki 11.647
2. júní ADVENTURE OF THE SEAS Skarfabakki 137.276
3. júní SEA EXPLORER Miðbakki 4.200
4. júní BALMORAL Skarfabakki 43.537
4. júní FRAM Skarfabakki 11.647
6. júní CELEBRITY INFINITY Skarfabakki 90.940
8. júní EXPLORER Skarfabakki 24.318
9. júní ALBATROS Skarfabakki 28.518
10. júní AIDAsol Skarfabakki 71.304
12. júní CRYSTAL SYMPHONY Skarfabakki 51.044
15. júní ISLAND SKY Miðbakki 4.280
15. júní DISCOVERY Skarfabakki 20.216
16. júní AIDAcara Skarfabakk 38.557
18. júní BOUDICCA Skarfabakki 28.372
20. júní AMADEA Skarfabakki 29.008
20. júní ARCADIA Skarfabakki 83.781
23. júní MINERVA Miðbakki 12.449
24. júní AIDAsol Skarfabakki 71.304
26. júní ISLAND SKY Miðbakki 4.280
26. júní ALBATROS Skarfabakki 28.518
27. júní CELEBRITY INFINITY Skarfabakki 90.940
27. júní COSTA PACIFICA Skarfabakki 114.288
30. júní QUEEN VICTORIA Skarfabakki 90.049
30. júní HAMBURG Miðbakki 15.067
3. júlí MSC MAGNIFICA Skarfabakki 95.128
3. júlí AIDAcara Skarfabakki 38.557
5. júlí ORIANA Skarfabakki 69.153
8. júlí MEIN SCHIFF 2 Skarfabakki 77.302
8. júlí AIDAsol Korngarður 71.304
8. júlí CELEBRITY ECLIPSE Skarfabakki 121.878
10. júlí BOUDICCA Skarfabakki 28.372
13. júlí N G EXPLORER Miðbakki 6.471
14. júlí OCEAN PRINCESS Skarfabakki 30.277
16. júlí SAGA PEARL II Miðbakki 18.627
16. júlí HAMBURG Skarfabakki 15.067
17. júlí FUNCHAL Skarfabakki 9.563
17. júlí FRAM Miðbakki 11.647
17. júlí DISCOVERY Skarfabakki 20.216
18. júlí ARTANIA Skarfabakki 44.588
20. júlí AIDAcara Skarfabakk 38.557
21. júlí N G EXPLORER Miðbakki 6.471
22. júlí AIDAsol Skarfabakki 71.304
23. júlí BLACK WATCH Skarfabakki 28.613
25. júlí BREMEN Miðbakki 6.752
26. júlí ADONIA Skarfabakki 30.277
26. júlí NAUTICA Skarfabakk 30.277
28. júlí CELEBRITY INFINITY Skarfabakki 90.940
28. júlí SILVER EXPLORER Miðbakki 6.072
29. júlí N G EXPLORER Miðbakki 6.471
2. ágúst Mein Schiff 1 Skarfabakki 76.998
2. ágúst AZAMARA JOURNEY Skarfabakki 30.277
3. ágúst BRILLIANCE OF THE SEAS Skarfabakki 90.090
3. ágúst L’AUSTRAL Miðbakki 10.944
3. ágúst PRINSENDAM Sundabakki 38.848
5. ágúst AIDAsol Skarfabakki 71.304
6. ágúst VEENDAM Skarfabakki 57.092
8. ágúst MSC MAGNIFICA Skarfabakki 95.128
12. ágúst VOYAGER Miðbakki 15.343
13. ágúst SILVER CLOUD Miðbakki 16.927
15. ágúst SEABOURN QUEST Skarfabakki 32.346
16. ágúst MARCO POLO Skarfabakki 22.080
18. ágúst ARTANIA Skarfabakki 44.588
19. ágúst AIDAsol Skarfabakki 71.304
19. ágúst ALBATROS Skarfabakki 28.518
20. ágúst BOUDICCA Skarfabakki 28.372
23. ágúst SILVER CLOUD Skarfabakki 16.927
27. ágúst AMADEA Skarfabakki 29.008
30. ágúst THOMSON SPIRIT Skarfabakki 33.930
2. sept. EURODAM Skarfabakki 86.273
3. sept. ADVENTURE OF THE SEAS Skarfabakki 137.276
4. sept. CARIBBEAN PRINCESS Skarfabakki 112.894
4. sept. FRAM Miðbakki 11.647
4. sept. AIDAluna Korngarður 69.203
6. sept. BREMEN Miðbakki 6.752
7. sept. BRILLIANCE OF THE SEAS Skarfabakki 90.090
8. sept. OCEAN NOVA Miðbakki 2.118
11. sept. HAMBURG Miðbakki 15.067
11. sept. CRYSTAL SERENITY Skarfabakk 68.870
12. sept. AIDAbella Skarfabakki 69.203
14. sept. ROYAL PRINCESS Skarfabakki 139.000
15. sept. RUBY PRINCESS Skarfabakki 113.561
15. sept. LEGEND OF THE SEAS Skarfabakki 69.130
16. sept. SILVER WHISPER Skarfabakki 28.258
17. sept. EXPEDITION Miðbakki 6.172
20. sept. EUROPA Skarfabakk 28.890
29. sept. NORWEGIAN STAR Skarfabakki 91.740
Komur alls: 89
Heimild: Faxaflóahafnir
Ágúst Ágústsson Pétur Ólafsson
Enn stækka skemmtiferðaskipin
sem leggnast að bryggju í Reykja-
vík. Stærsta skip sem komið hefur til
landsins hefur viðdvöl í Reykjavík í
haust.
Royal Princess er nýtt skip, flagg-
skip Prinsessuflotans, sem fór sína
fyrstu ferð síðasta sumar en kemur í
fyrsta skipti til Íslands. Það er um
140 þúsund brúttótonn að stærð, 330
metra langt, og hefur svefnpláss fyr-
ir 3600 farþega.
Prinsessan kemur við í Reykjavík
sunnudaginn 14. september, á leið
sinni frá Bretlandi til Ameríku.
Adventure of the Seas sem enn er
stærsta skip sem hingað hefur kom-
ið er aðeins minna, rúmlega 137 þús-
und brúttóton. Koma þess og um
3000 farþega hefur verið boðuð til
Reykjavíkur í tvö skipti, 2. júní og 3.
september og það kemur síðan við á
Akureyri tveimur dögum síðar í báð-
um ferðunum.
Stærsta skip
sem hingað
hefur komið