Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 62
Morgunblaðið/RAX Náttúruundur Logi og fjölskylda ætla að ferðast um Vestfirði í sumar. Foss- inn Dynjandi í botni Arnarfjarðar er meðal þess sem þau ætla að heimsækja. Jón Agnar Jónsson jonagnar@mbl.is Sumarið byrjar sumardaginn fyrsta, það er ekki flóknara en það. Þá er grillið tekið út, hvernig sem viðrar, og þaðan í frá er sumarið í loftinu, hvernig sem viðrar,“ segir Logi Geirsson, fyrrverandi at- vinnumaður í handbolta og núver- andi eigandi Fjarform. Haft hefur verið á orði að Logi hafi verið í sannkölluðu sumarskapi á fésbók- arsíðu sinni undanfarna daga og því rétt að taka hús á honum og inna hann eftir áformunum fyrir sumarið. Landið skal sótt heim í sumar Rétt eins og Logi reynir að temja skjólstæðingum sínum þann lífsstíl að setja sér markmið fyrir líkamsþjálfun sína, þá hefur hann sett sér skýr markmið fyrir það sem hann ætlar að gera í sumar. „Það er ekki nóg að setja sér markmið í heilsuræktinni og vinnunni, heldur verður maður líka að setja sér markmið fyrir fjöl- skylduna. Í stuttu máli ganga markmiðin út á það að ferðast sam- an um landið í sumar.“ Logi, unn- usta hans, Ingibjörg Elva Vil- bergsdóttir, og sonur þeirra Vilberg ætla meðal annars að fara hringinn í kringum landið í sumar. „Margir eru alveg fastir á því að fara í sólina yfir hásumarið, sem er einmitt rétti tíminn til að fara um landið okkar. Til hvers að kaupa sér sólarlandaferð þegar hér heima nýtur sólar yfir nánast allan sólar- hringinn yfir sumarið?“ spyr Logi og hlær við. „Hér heima er líka hægt að fara í útilegu án þess að vera étinn lifandi af mosk- ítóflugum. Það er ótvíræður kost- ur.“ Aðspurður segir Logi að hann hafi ekki verið nægilega duglegur að sækja landið heim undanfarin ár. Þegar hann sneri heim eftir áralanga dvöl sem atvinnumaður í handbolta í Þýskalandi tók hann að eigin sögn törn í ferðalögum innan- lands en síðan hefur faraldsfót- urinn verið mestanpartinn í hvíld. „Svo tók ég reyndar ágætis skorpu þegar ég fór um landið við fyr- irlestrahald, á árunum 2012 og 2013, og þá kom ég næstum á hvert einasta byggða ból á landinu, enda hélt ég hátt í fimmtíu fyrirlestra. Að því verkefni loknu sagði ég við konuna að við tvö þyrftum að fara hringinn saman. Og litli guttinn kemur með.“ Að búa til minningar Ferðalög með fjölskyldunni eiga hug Loga allan um þessar mundir og hann hlakka til að leggja land undir fót í sumar. „Lífið snýst um að njóta augnabliksins með þeim sem manni þykir vænt um og búa þannig til minningar.“ Og hvað er betra en að búa til minningar með fjölskyldunni? „Þegar maður lítur yfir það sem maður með upplifað og lent í, þá er það lærdómur sem ég hef dregið út úr lífinu. Maður er búinn að átta sig á að þetta snýst um að búa til minningar.“ Orð að sönnu. En hvers vegna er Logi svona sannfærður um að þetta verði frábært sumar? „Ja, það verður ekki verra en síðasta sumar, svo miklu get ég lof- að,“ segir Logi og hlær, með vísan í veðurfarið sem landsmenn hér fyr- ir sunnan upplifðu í fyrra þegar eiginlegt sumar kom aldrei að heit- ið gat. „Annars hef ég bara tilfinn- ingu fyrir því að þetta verði gott sumar. Sjálfur er ég með mörg járn í eldinum og upplifi alltaf sum- arið sem bjart og skemmtilegt. Ég er náttúrlega að þjálfa fólk árið um kring og þegar sumarið kemur er hægt að færa hluta þjálfunarinnar út fyrir hússins dyr, senda fólkið út á hlaupa, á fjöll og svo framvegis. Þá er prógrammið brotið skemmti- lega upp og fyrir bragðið verður sumarið skemmtilegasti tíminn. Stundum þarf maður að bíða níu mánuði ársins eftir þremur góðum mánuðum svo það þýðir ekkert annað en að ákveða að þeir verði góðir,“ bætir Logi við. Dálæti á Dyrhólaey Einn er sá landshluti sem Logi hefur sérstakan augastað á fyrir sumarið. Það eru Vestfirðir. „Plan- ið er að þræða firðina, heimsækja Rauðasand, Hornstrandir og fleiri fallega staði. Við ætlum okkur góð- an tíma til að skoða okkur þar um. Af nægu er að taka fyrir vestan og ég hlakka mikið til að fara þar um og upplifa vestfirska náttúru.“ Uppáhaldsstaður Loga er aftur á móti Dyrhólaey og nágrenni. Þar hefur fjölskylda hans átt land um langan aldur og þar var okkar maður alinn upp á sumrin. Þar af leiðir að hann veit lengra nefi sínu þegar kemur að því að spá í veðrið. Byggt á því sem hann kann fyrir sér í þeim alþýðufræðum úr sveit- inni, þá lofa öll teikn sem á lofti eru að sumarið verði gott. Það er auð- heyrt að Logi kann að lesa í landið enda sveitastrákur inni við beinið. „Þó að ég segi sjálfur frá þá er ég orðinn nokkuð lunkinn að sjá út hvernig sumarið verður,“ útskýrir Logi kankvís. Hann bætir við að veðurspádómsgáfan sé ekki síst komin frá sjálfum Guðjóni Þor- steinssyni í Garðakoti við Dyrhóla- ey, þeim hinum sama og Ragnar Axelsson, ljósmyndari hjá Morg- unblaðinu, festi á filmu í magnaðri myndaröð fyrir um áratug. „Hann kenndi okkur krökkunum þetta þegar við röltum með honum á sandana, er við vorum í sveitinni á sumrin. Hann er auðvitað goðsögn þarna í sveitinni og lifir meðal fólksins þó að fallinn sé frá. Bless- uð sé minning hans,“ bætir Logi við en Guðjón lést 22. janúar 2006, þá 82 ára að aldri. Með annan eins lærimeistara í veðurfræðum blasir við að mark hlýtur að vera takandi á orðum Loga. „Fuglalífið og fleira felur í sér vísbendingar um að framundan sé gott sumar. Ég ætla því að leyfa mér að spá frábæru sumri þar sem landinn mun njóta lífsins.“ Gæfan gefi að þetta viti á gott sumar. Þetta verður frábært sumar  Silfurdrengurinn, einkaþjálfarinn og viðskiptafræðingurinn Logi Geirsson ætlar að ferðast um landið í sumar ásamt fjölskyldunni  Lærði veðurfræði sveitamannsins hjá Guðjóni í Garðakoti og spáir góðu sumri Morgunblaðið/RAX Goðsögn Guðjón í Garðakoti, hér með einu hrossa sinna, kunni að lesa veð- urteikn í landið. Logi lærði sitthvað af honum og spáir góðu sumri í ár. Morgunblaðið/Golli Saman „Það er ekki nóg að setja sér markmið í heilsuræktinni og vinnunni, heldur verður maður líka að setja sér markmið fyrir fjölskylduna.“ SUMARIÐer tíminn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.