Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 82

Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 82
82 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Eitt og annað virkar freistandi en það er svo margt í lífinu sem maður verður að neita sér um ef vel á að fara. Leiðbeindu vinum en varastu að gera vandann að þínum. 20. apríl - 20. maí  Naut Tengsl þín við félagasamtök eða ótil- greindan vin taka umtalsverðum breytingum um þessar mundir. Vertu sannfærandi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert undir smásjánni hjá öðrum svo þú skalt haga gjörðum þínum svo að þú gefir engan höggstað á þér. Nýttu þér þetta til fullnustu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú munt njóta þess að kaupa eitthvað fallegt í dag. Um leið og þú ert skemmtileg/ur gefur þú kennslustund í hvernig á að tengja saman lífið og húmorinn. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Góðverk eru aldrei til einskis. Leyfðu þér að njóta augnabliksins því það kemur ekki aft- ur. Gættu þess þó að ofmetnast ekki því dramb er falli næst. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þið skuluð ekki láta aðra marka ykkur völl. Einhverjir gætu haft áhuga á að kaupa sér vinsældir. Misskilningur og ruglingur virðast allsráðandi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér hefur ekki tekist að koma málstað þínum á framfæri skýrt og skorinort. En það er miður ef óhófleg eyðsla kemur niður á sam- bandinu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Sýndu maka þínum og nánustu vinum sérstaka þolinmæði í dag. Skýr mark- mið, áætlun og lagni gefa þér byr undir báða vængi. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Marga langar til þess að skipta við þig eða fá tíma þinn eða athygli. Vertu á varð- bergi. Það er óþarfi að ríghalda í hluti, sem þú hefur litla eða enga þörf fyrir. 22. des. - 19. janúar Steingeit Láttu ekki aðra gera þig að blóra- böggli þeirra eigin mistaka. Sýndu sanngirni. Það mun að minnsta kosti gefa til kynna hversu mikil alvara þér er að koma hlutunum í verk. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það hefur mikið að segja að sam- starfsmenn séu samhentur hópur. Hið sama á við á öðrum sviðum lífsins. Reynið að líta sem best út – hamingjan er besta hefndin. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þínir nánustu upplifa sígilt samviskubit, og þú nýtur góðs af því. Gerðu áætlun og láttu óttann við hið óþekkta ekki ná tökum á þér. Taktu á þig rögg og ljúktu verkefninu. Lífið er ljóð“ er skemmtilegljóðabók. Og ekki síður til- urð hennar. Höfundar kalla sig „Ljóðahóp Gjábakka í Kópavogi“, þeir eru 13 að tölu og er þetta 14. ljóðabókin sem þeir senda frá sér sameiginlega, auk þess sem sumir þeirra hafa gefið út ljóða- bók sjálfir. Þetta er merkilegt framtak og mikið úthald. Sér- staklega vegna þess að hver höf- undur hefur sinn persónulega stíl og þeir draga ekki dám hver af öðrum. Það eykur fjölbreytileik ljóðsins. „Tindar“ – þetta stutta ljóð eft- ir Ingu Guðmundsdóttur blasti við mér þar sem bókin opnaðist, og mætti vel kallast „martröð fjallgöngumannsins“: Fjöllin vefur þoka hvítu sjali byrgir þeim sýn er tróna á tindum. „Norðurljós“ heita þessar fer- skeytlur Hafsteins Reykjalíns: Nú um miðjan nóvember nýt ég stjörnugeimsins er norðurljósin leika sér með litagleði heimsins. Útlendingar ætíð hér undur þessi mynda. Allt sem fyrir augu ber undir brosin kynda. Ólöf Stefanía Eyjólfsdóttir yrk- ir „hækur“, japanskan bragar- hátt, og kallar „Vatnsmýrina“. Hækur hafa fimm atkvæði í 1. og 3. ljóðlínu en sjö í 2. ljóðlínu: Í Vatnsmýrina snýr lóan heim úr suðri syngur vorljóð þýð. Safnar í sarpinn við frændgarð Húsatjarnar dýrðin, dýrðin, dí. Við aftansönginn kyrrist borgarbragurinn við sólarlagið. Unnur Guttormsdóttir dregur upp þessa skemmtilegu mynd: „Allt búið“: Þá eru þingmennirnir hættir að heilsa. Kosningar yfirstaðnar Ég velti því fyrir mér hvort Kjartan Trausti Sigurðsson segi satt í „Satt“: Oft má satt kyrrt liggja sagði lygarinn og lá ekki á liði sínu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Allt verður Kópavogs- búum að yrkisefni Í klípu „ÞETTA ER GLÆSILEG FERILSKRÁ. LÖNG OG ÍTARLEG. HEFURÐU GERT EITTHVAÐ SEM ENDAÐI EKKI MEÐ HANDTÖKU?“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „NEI, EKKI NOTA ÞETTA APPARAT, ÉG SKAL NÁ Í SPREYIÐ.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fela skallablettinn hans. MUNDU ALLTAF ... AÐ LEMJA ÁÐUR EN ÞÚ ERT LAMINN! ÉG HEFÐI LÍKLEGA ÁTT AÐ ORÐA ÞETTA BETUR. LÍSA, ÉG ER PRINSIPPMAÐUR. MEÐ EINA GULLNA REGLU. ALDREI STINGA TUNGUNNI Í BRAUÐRISTINA. VIÐ LIFUM OG LÆRUM. Fastagestirnir eru farnir að sjástmeð plastpokana sína á bekkj- unum við Austurvöll. Það er eitt merki sumarkomu og allt gott um það að segja en einhverjir eru þó stöðugt að amast út í plastpokana. x x x Víkverji botnar hvorki upp né niðurí umræðunni um plastpoka. Þeir sem telja sig allt vita og sjálfkjörna til að hafa vit fyrir öðrum láta eins og himinn og jörð sé að farast vegna plastpokanotkunar og heimta nú að hún verði bönnuð með öllu. x x x Einn snillingurinn var í útvarps-viðtali á dögunum. Hann sagði að málið snerist ekki um pokana sem slíka heldur úrganginn. Fólk yrði að kunna sér hóf þegar að úrgangi kæmi. Ekki henda einum fullum poka á dag heldur kannski einum fullum poka á viku. Flokkun væri töfraorðið. x x x Þegar flokkun rusls komst í tísku ílok liðinnar aldar tók kona sig til á Miklubrautinni og flokkaði allt rusl. Pappír fór í eina tunnuna, aðrar um- búðir, plast og fleira í aðra og matar- úrgangur í þá þriðju. Konan brýndi fyrir nágrönnum sínum að taka upp sömu hætti, en hún áttaði sig ekki á því að þegar ruslið var tekið var því öllu saman blandað í ruslabílnum og urðað saman. Þetta var allt sama tób- akið. x x x Það hefur löngum sýnt sig að alltþetta „gáfaða“ plastfólk er ekki í góðum tengslum við veruleikann. Ekkert má framleiða nema það eyðist á svipstundu að lokinni notkun. Mað- urinn má ekki skilja eftir sig nein merki þess að hann hafi yfirhöfuð verið til. Við þurfum að skila landinu til barna okkar í betra ásigkomulagi en það var þegar við tókum við því, kyrjar kórinn. Allt saman gott og blessað en einhvers staðar verða vondir að vera. Líka plastpokar, þar til önnur betri lausn finnst. Meðan ekki er boðið upp á annan valkost undir ruslið verður fólk að fá að nota plastpoka til þess í friði. víkverji@mbl.is Víkverji Þið þekkið náð Drottins vors Jesú Krists. Hann gerðist fátækur ykkar vegna, þótt ríkur væri, til þess að þið auðguðust af fátækt hans. (Síðara Korintubréf 8:9) K R I N G L U N N I & S M Á R A L I N D ✆ 565 6050 ✆ 565 6070 ÚTSKRIFTARGJÖFIN HENNAR FÆST HJÁ OKKUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.