Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 55
55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Löggan deilir Lögreglumaður tekur mynd til að deila af félögum sínum á nýjum lögreglureiðhjólum sem kynnt voru í gær á Austurvelli og munu verða notuð við löggæslu í borginni.
Júlíus
Ekki eru mörg ár
síðan borgarfulltrúar
Samfylkingarinnar
létu ekkert tækifæri
ónotað til að gagnrýna
ríkisvaldið fyrir að lítið
fé rynni til vegamála í
Reykjavík í sam-
anburði við fjárveit-
ingar til annarra kjör-
dæma. Í ljósi þessarar
gagnrýni bjuggust ein-
hverjir við því að Sam-
fylkingin myndi bæta myndarlega
úr þegar hún sjálf kæmist í rík-
isstjórn og jafnvel sjá til þess að
Reykjavík fengi vegafé í samræmi
við íbúafjölda.
Heggur sá er hlífa skyldi
Raunin varð önnur. Samfylkingin
náði vissulega ríkisstjórninni í sínar
hendur um sex ára skeið, frá 2007-
2013. Þetta valdaskeið notaði Sam-
fylkingin hins vegar til að knýja
fram tíu ára stöðvun stórfram-
kvæmda í samgöngumálum í höf-
uðborginni með dyggum stuðningi
borgarfulltrúa Bjartrar framtíðar
og Vinstri grænna. Þessir flokkar
beittu sér fyrir því að gerður var
svokallaður samgöngusamningur
milli ríkisins og sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu, sem fól í sér að
hætt var við allar stór-
ar samgöngu-
framkvæmdir í
Reykjavík á árunum
2012-2022. Á sama
tímabili munu hins
vegar tugir milljarða
renna til samgöngu-
framkvæmda í öðrum
kjördæmum landsins.
Helsti forvígismaður
framkvæmdastoppsins
var Dagur B. Eggerts-
son, oddviti Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík
og þáverandi varafor-
maður flokksins á landsvísu. Mað-
urinn sem áður sparaði ekki stór-
yrðin í garð ríkisvaldsins fyrir að
veita of lítið fé til samgöngu-
framkvæmda í Reykjavík, beitti sér
síðan fyrir 10 ára framkvæmda-
stoppi í Reykjavík. Umræddar sam-
gönguframkvæmdir, sem vinstri
flokkarnir stýrðu þannig frá
Reykjavík, hefðu fækkað slysum í
borginni og skapað þar umsvif og
atvinnu.
Mikil arðsemi samgöngu-
framkvæmda í Reykjavík
Ég hef gagnrýnt þennan samning
frá upphafi og þá einkum í ljósi þess
að hann seinkar því um tíu ár að
ráðist verði í brýnar úrbætur í þágu
umferðaröryggis á stofnbrautum í
borginni. Auðvitað kosta slíkar ör-
yggislausnir sitt en ekki er um það
deilt að leitun er að arðsamari fram-
kvæmdum en þeim að auka umferð-
aröryggi á fjölförnum gatnamótum
þar sem alvarleg umferðarslys eru
tíð. Rétt er að geta þess að í samn-
ingnum eru ákvæði um framlög til
eflingar hjólreiðum og almennings-
samgöngum, sem Sjálfstæðisflokk-
urinn styður að sjálfsögðu.
Borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins lögðu til á borgarstjórn-
arfundi í síðustu viku að umræddur
samgöngusamningur yrði endur-
skoðaður með það að markmiði að á
samningstímabilinu yrði ráðist í
stórframkvæmdir í samgöngu-
málum í Reykjavík með umferðarör-
yggi og arðsemi að leiðarljósi.
Borgarfulltrúar Samfylkingar og
Bjartrar framtíðar lögðust gegn því
að tillagan yrði borin upp til at-
kvæða á fundinum. Í umræðum um
málið kom hins vegar skýrt fram að
fulltrúar vinstri flokkanna vilja ekki
endurskoða umræddan samning
með það að markmiði að á samn-
ingstímabilinu verði ráðist í fram-
kvæmdir á stofnbrautakerfinu í
Reykjavík með umferðaröryggi og
arðsemi að leiðarljósi.
Aukum umferðaröryggi
allra vegfarenda
Reykvíkingar! Hnekkjum að-
gerðaleysisstefnunni og hefjum á ný
framkvæmdir í þágu umferðarör-
yggis á stofnbrautum í Reykjavík.
Til þess þarf að koma borgarstjórn-
armeirihluta vinstri manna frá völd-
um og kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
Sem fyrr vill Sjálfstæðisflokkurinn
að Reykvíkingar eigi val um ólíka
samgöngukosti um leið og við bend-
um á að umræddar samgöngu-
framkvæmdir munu stuðla að auknu
umferðaröryggi allra vegfarenda,
hvort sem þeir nota almennings-
samgöngur, bifreiðar, hjól eða tvo
jafnfljóta.
Eftir Kjartan
Magnússon »Komum vinstri
meirihlutanum frá
völdum og hefjum á ný
framkvæmdir í þágu
umferðaröryggis á
stofnbrautum í Reykja-
vík.
Kjartan
Magnússon
Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn vill framkvæmdir
í þágu umferðaröryggis
Morgunblaðið/Eggert
Vegavinna Unnið að þrengingum á Snorrabraut í Reykjavík.