Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 42
42 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014 BAKSVIÐ Karl Blöndal kbl@mbl.is Trúnaður blaðamanna við heimildarmenn nýt- ur almennrar og afgerandi verndar og viður- kenningar nánast allra alþjóðlegra samtaka og stofnana. Þar á meðal eru Sameinuðu þjóð- irnar, Evrópuráðið, Öryggis- og samvinnu- stofnun Evrópu, Samtök Ameríkuríkja og Afr- íkusambandið. Talað er um að rétturinn til trúnaðar við heimildarmenn sé „nauðsyn- legur“, „grundvallaratriði“ og „grunnskilyrði fyrir frjálsri fjölmiðlun“. Iðulega er þó reynt að fá blaðamenn til að gefa upp heimildir sínar líkt og gert hefur ver- ið í yfirstandandi rannsókn á því hvernig gögn um hælisleitandann Tony Omos komust í hendur fjölmiðla. Lögreglustjórinn á höfuð- borgarsvæðinu krafðist þess að fréttastjóri mbl.is gæfi upp hvaðan skjal kom sem frétt miðilsins í málinu byggðist á. Fréttastjórinn neitaði að svara. Lögreglustjórinn óskaði þá eftir því við héraðsdóm að fréttastjórinn yrði látinn svara. Héraðsdómur hafnaði kröfu lög- reglustjórans og Hæstiréttur sömuleiðis. Í Evrópu hefur fjölda mála af þessu tagi verið vísað til Mannréttindadómstóls Evrópu og kemur fram í úrskurðum hans að rétturinn til verndar heimilda er mjög afdráttarlaus. Trúnaður við heimildarmenn er grundvall- aður á 19. grein mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna: „Allir skulu frjálsir skoðana sinna og að því að láta þær í ljós. Fel- ur sá réttur í sér frelsi til að hafa skoðanir óá- reittur og að leita, taka við og miðla upplýs- ingum og hugmyndum með hverjum hætti sem vera skal og án tillits til landamæra.“ „… hin umfangsmesta vernd“ Sambærilegt orðalag er í 10. grein mann- réttindasáttmála Evrópu. Á heimasíðu Mann- réttindadómstóls Evrópu kemur fram að dóm- urinn hafi þráfaldlega ítrekað að 10. greinin taki ekki aðeins til „inntaks og innihalds upp- lýsinga og hugmynda“ heldur einnig leiða til að koma þeim á framfæri: „Fjölmiðlum hefur verið veitt hin umfangsmesta vernd í dóma- sögu réttarins, þar á meðal hvað snertir trún- að við heimildir blaðamanna.“ Að auki segir í 10. greininni að þar sem þessu „frelsi fylgi skyldur og ábyrgð“ sé það „háð þeim formsatriðum, skilyrðum, takmörk- unum og refsingum, sem kveðið er á um í lög- um og eru nauðsynlegar í lýðræðisþjóðfélagi“. Í dómum réttarins er víða að finna afger- andi stuðning við vernd heimildarmanna. Árið 2000 kom í ljós við innri endurskoðun víðtæk spilling innan Eurostat, Hagstofu Evr- ópu. Hafði stofnunin verið með tvöfalt bókhald og ýmist skáldað samninga við fyrirtæki eða búið til reikninga. Málinu var vísað til rann- sóknarembættis fjársvikamála hjá Evrópu- sambandinu, sem á að verja fjárreiður ESB fyrir svikum og spillingu, en ekkert gerðist. Ári síðar var málið tekið fyrir í skýrslu Pauls van Buitenens, sem áður hafði afhjúpað frændhygli og spillingu innan framkvæmda- stjórnar ESB undir stjórn Jacques Santers. Enn tók embættið ekki við sér. Það var ekki fyrr en Hans-Martin Tillack skrifaði ítrekað um málefni Eurostat í þýska vikuritið Stern að farið var að spyrja spurninga. Við rannsókn málsins beindust sjónir hins vegar að Tillack. Hvaðan kom lekinn? Sagt var að grunur léki á að Tillack hefði mútað opin- berum embættismanni í skiptum fyrir trún- aðarupplýsingar um evrópskar stofnanir. Belgíska lögreglan handtók Tillack fyrir til- stuðlan Evrópusambandsins og hélt honum á meðan leitað var á vinnustað og heimili hans. Hluti af réttinum til upplýsinga Tillack fór með málið fyrir mannréttinda- dómstól Evrópu og hafði sigur. „Rétturinn leggur áherslu á að rétt blaðamanna til að gefa ekki upp heimildir sínar er ekki hægt að með- höndla einungis sem forréttindi, sem hægt er að veita eða taka eftir lögmæti eða ólögmæti heimilda, heldur er í einu og öllu hluti af rétt- inum til upplýsinga og á að umgangast af ýtr- ustu varfærni,“ sagði í úrskurðinum. „Það á ekki síst við í viðkomandi máli þar sem grun- semdir á hendur stefnanda byggðust á óljós- um, óstaðfestum orðrómi eins og síðar var staðfest með því að hann var ekki kærður.“ 1996 leitaði breski blaðamaðurinn William Goodwin, sem starfaði hjá fagblaði í verk- fræði, til dómstólsins eftir að hann hafði verið dæmdur fyrir að neita að gefa upp heimildir sínar um fjárhagsstöðu tiltekins fyrirtækis. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu í dómi, sem oft er vísað til, að ekki mætti réttlæta til- raunirnar til að fá Goodwin til að upplýsa um heimildir sínar með vísan til þess að frelsi fjöl- miðla sé „háð þeim formsatriðum, skilyrðum, takmörkunum og refsingum, sem kveðið er á um í lögum og eru nauðsynlegar í lýðræðis- þjóðfélagi“. Það hafi einfaldlega ekki átt við í máli hans. „Vernd heimilda í blaðamennsku er eitt af grundvallarskilyrðum frelsis fjölmiðla,“ segir í úrskurði dómstólsins í málinu og síðan er bætt við: „Án slíkrar verndar gætu heimildarmenn heykst á að aðstoða fjölmiðla við að upplýsa al- menning um mál, sem varða hagsmuni al- mennings. Þá yrði grafið undan nauðsynlegu hlutverki fjölmiðla sem varðhundur í almanna- þágu og það gæti haft öfug áhrif á burði fjöl- miðla til að veita réttar og áreiðanlegar upp- lýsingar.“ Segir svo að fyrirskipun um að gefa upp heimildir samræmist ekki 10. greininni nema hún verði „réttlætt með þungvægari þörf í almannaþágu“. Hvenær á rétturinn til verndar að víkja? Í leiðbeiningum Evrópuráðsins frá 2000 er fjallað um undantekningar frá réttinum til verndar heimildarmanna. Þar segir að aðeins megi skipa blaðamanni að greina frá nafni heimildarmanns ef hagsmunir almennings eru þungvægari réttinum til verndar. Segir síðan að það geti aðeins átt við ef afhjúpun er nauð- synleg til að vernda mannslíf, koma í veg fyrir alvarlegt afbrot, eða verja mann, sem sakaður er um að hafa framið alvarlegt afbrot. Ávallt verði að vega og meta hagsmunina af því að af- nema vernd heimildarmanns gagnvart skað- anum, sem tjáningarfrelsið yrði fyrir. Tekið er fram að meiðyrði geti ekki talist vega þyngra en rétturinn til að vernda heimildir. Í máli Tillacks var stjórnkerfið í vörn. Ann- að var uppi á teningnum þegar Judith Miller, blaðamaður New York Times, fór í fangelsi 2005 vegna þess að hún vildi ekki gefa upp heimildir sínar þrátt fyrir dómsúrskurð. Í Bandaríkjunum er rétturinn til að vernda heimildarmenn veikari en víða annars staðar. Forsaga málsins var sú að dálkahöfundur að nafni Robert Novak birti grein 2003 þar sem fram kom að Joseph Wilson, fyrrverandi stjórnarerindreki á eftirlaunum, væri kvæntur leynilegum erindreka bandarísku leyniþjón- ustunnar, CIA. Konan var nefnd á nafn, Valer- ie Plame. Wilson hafði farið til Níger á vegum CIA til að kanna hvort eitthvað væri hæft í því að Saddam Hussein, fyrrverandi leiðtogi Íraks, hefði reynt að kaupa úran þar í landi. Wilson fann engar vísbendingar um það og skrifaði síðar grein í New York Times þar sem hann hélt því fram að Bandaríkjastjórn hefði gefið ranga mynd af málinu. Haldið var fram að nafni hennar hefði verið lekið til að hræða aðra, sem kynnu að vilja gerast uppljóstrarar. Miller skrifaði aldrei um Plame, en saksókn- ari taldi að hún byggi yfir upplýsingum, sem skiptu sköpum fyrir rannsókn á lekanum. Miller neitaði að greina frá heimildum sínum og var stungið í fangelsi fyrir að sýna réttinum óvirðingu. Hún sat inni í 85 daga. Þá aflétti heimildamaður hennar, Lewis „Scooter“ Libby, starfsmannastjóri Dicks Cheneys, þá- verandi varaforseta, trúnaðinum. Í ljós kom að Libby hafði sagt henni að Plame væri kona Wilsons, en það gerðist áður en grein hans birtist í New York Times. Aldrei var gengið á Novak um heimildir hans með sama hætti og gert var við Miller. „Markmið þessarar baráttu er að tryggja að fólk með mikilvægar upplýsingar geti haft fullvissu um að tali það við blaðamann á for- sendu nafnleyndar njóti það verndar,“ sagði í leiðara New York Times þegar málið stóð yfir. Réttur til verndar heimilda skýr  Alþjóðlegar stofnanir leggja áherslu á réttinn til að vernda heimildir  Iðulega reynt að fá blaðamenn til að gefa upp heimildarmenn sína  Ekki forréttindi sem hægt er að veita og taka Morgunblaðið/Golli Í trúnaði Réttur blaðamanna til að vernda heimildir sínar er viðurkenndur af stofnunum á borð við Sameinuðu þjóðirnar og hefur ítrekað verið staðfestur hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Biophilia-tónvísindasmiðjur fyrir yngstu kynslóðina og lifandi vís- indaveisla fyrir alla fjölskylduna verður í boði þegar Háskólalest Há- skóla Íslands heimsækir Vest- mannaeyjar í dag og á morgun. Há- skólalestin fer nú í fjórða sinn um landið en hún fór í sínar fyrstu ferðir á aldarafmæli Háskóla Íslands árið 2011. Í ferðum lestarinnar er lögð áhersla á lifandi og skemmtilega vís- indamiðlun til ungs fólks og litríka dagskrá fyrir alla fjölskylduna að því er segir í fréttatilkynningu. Í dag sækja nemendur í elstu bekkjum Grunnskóla Vestmannaeyja valin námskeið í Háskóla unga fólksins. Á morgun verður svo slegið upp veg- legri vísindaveislu í Höllinni í Eyjum milli kl. 12 og 16. Þar verða m.a. sý- nitilraunir, japanskir búningar og skrautskrift, leikir og þrautir, legó- smiðja og ýmis tæki og tól, furðu- speglar og óvæntar uppgötvanir. Lifandi vís- indaveisla Sími 571 2000 | hreinirgardar.is Garðsláttur Láttu okkur sjá um sláttinn í sumar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.