Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 64
Morgunblaðið/Styrmir Kári Áskorun „Er það álit flestra sem reynt hafa að fyrstu fimmtán sundtökin séu erfiðust en eftir það er líkaminn búinn að jafna sig og byrjaður að aðlagast kuldanum,“ segir Ragnheiður. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Ekki þarf að leita svo langt aftur til að finna tíma þegar sjósund og sjóböð voru álitin iðja furðulegra sérvitringa. Margt hefur breyst síð- an þá og í dag er svo komið að fjöldi Íslendinga stundar það reglulega að taka sundsprett í köldum sjónum. Ragnheiður Valgarðsdóttir er for- maður Sjósunds- og sjóbaðsfélags Reykjavíkur og segir hún ekkert lát virðast ætla að verða á vinsældum þessarar iðju. „Ekki aðeins fjölgar í hópnum ár frá ári heldur er fjöl- breytnin orðin mjög mikil og fólk á öllum aldri sem stundar sjósund og sjóböð reglulega.“ Aðstaðan breytti miklu Aðspurð hvað geti helst skýrt vin- sældir sjósunds- og sjóbaða nefnir Ragnheiður fyrst bætta aðstöðu í Nauthólsvík. „Á sínum tíma var ráð- ist í töluverðar framkvæmdir á svæðinu, m.a. komið fyrir búnings- klefum heitum potti og nýlega var bætt við gufubaði. Stutt er fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins að fara niður í Nauthólsvík, botninn er þar sléttur og öruggur. Þar hittist fólk í dag til að fara í sjóinn og á svo skemmti- lega stund saman í pottinum eða gufunni.“ Þá hafa fjölmiðlar sýnt sportinu mikinn áhuga, flutt fréttir af árleg- um sjósundsferðum t.d. yfir Foss- voginn, og út í Viðey. Síðan er ekki ólíklegt að samfélagsmiðlarnir hafi hjálpað til við að breiða út jákvæða reynslu fólks af sundsprettinum. „Að svamla í köldum sjónum er eitt- hvað sem margir eru spenntir fyrir að reyna, þó að ekki væri nema einu sinni, og gaman að geta sett af því myndir og frásögn á Facebook. Þetta eru líka skemmtilegar myndir að deila, fólk kemur upp úr sjónum brosandi og frísklegt, og stolt af sjálfu sér enda er það ákveðin hetju- dáð að synda í sjónum í fyrsta sinn.“ Hægt er að stunda sjósund og sjó- böð árið um kring en sumarið er þó vinsælasti tíminn til þessarar iðju, enda bæði hiti sjávar og lofts þægi- legri. Sjósunds- og sjóbaðsfélagið er með skipulagða dagskrá allt sum- arið. „Eins og síðustu tvö sumur verður tekið sérstaklega vel á móti nýliðum í Nauthólsvík alla miðviku- daga kl. 17.30. Þar verða vanir sjósundsmenn sem leiða fólk í gegn- um fyrsta skiptið í sjónum og hjálpa því að eiga gefandi og ánægjulega upplifun,“ segir Ragnheiður. Fyrstu skrefin erfiðust Hún bætir við að gott sé að byrja sjósund og sjóböð undir tryggri leið- sögn. „Sumir spreyta sig á þessu einir og óstuddir og hlaupa þá út í sjóinn og svo strax til baka upp á land, en þannig eru þeir ekki að upplifa allt það sem sjórinn hefur upp á að bjóða.“ Segir Ragnheiður að það geti kallað á mikinn viljastyrk að stíga fyrstu skrefin út í kaldan sjóinn. „Þegar vatnið er komið upp að nafla þarf svo að byrja að taka fyrstu sundtökin. Er það álit flestra sem reynt hafa að fyrstu fimmtán sund- tökin séu erfiðust en eftir það er lík- aminn búinn að jafna sig og byrj- aður að aðlagast kuldanum,“ útskýrir hún og bæti við að hver og einn ráði því sjálfur hvort honum nægi að taka einfaldlega hressandi bað í sjónum eða vilji frekar synda. „Fara þarf rólega af stað og alls ekki stökkva beint út í sjóinn því þá geta áhrif kælingarinnar verið of kröftug fyrir líkamann.“ Hún segir ekki þurfa að óttast stungur frá marglyttum eða ígul- kerjum og að hákarlarnir í kringum Ísland séu flestir tannlausir og með engan áhuga á sundfólki. „Selir eru heldur ekki að ógna sjósundsfólki og hafa jafnvel stundum slegist í för með okkur á lengri sundferðum.“ Þarf samt að sýna hæfilega aðgát og t.d. forðast að stunda sjósund þar sem sterkir hafstraumar og flóð eða fjara kunna að færa sundfólk frá landi. Segir Ragnheiður jafnframt að fólk sem glímir við hjartavanda- mál eða háþrýsting ætti að ráðfæra sig við lækni áður en gerð er atlaga að sjósundinu. Sennandi ferðir framundan „Í sundferðum félagsins gætum við vandlega að örygginu og erum með björgunarsveitarmenn með í för á léttbátum og kajökum, og við- búnað í landi ef svo ólíklega vildi til að eitthvað kæmi upp á. Af sund- ferðum sumarsins má m.a. nefna nýja sundleið yfir Skerjafjörð, að vanda er synt út í Viðey föstudaginn fyrir Menningarnótt og lengsta sund sumarsins verður Bessa- staðasundið sem nær yfir 4,5 kíló- metra leið. Að auki verða farnar hópferðir út á land, m.a. í sjósund- sferð til Þorlákshafnar og að Kleif- arvatni þar sem synt er í fersk- vatni.“ Gott að byrja undir tryggri leiðsögn  Ekkert lát er á vinsældum sjósunds og sjóbaða og vel tekið á móti nýliðum í Nauthólsvík alla miðvikudaga í sumar Öruggt Ragnheiður segir ekki þurfa að óttast marglyttur eða ígulker í sjón- um og hákarlarnir við landið tannlausir og áhugalausir um sjósundfólk. 64 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Teppi á stigaganginn nú er tækifærið ! Komum á staðinn með prufur og mælum, ykkur að kostnaðarlausu Eitt verð niðurkomið kr. 5.980 m2 Gott fyrir líkama og sál Ragnheiður segir það laða marga að sjósundi og sjóböðum hvað þessi iðja getur haft jákvæð áhrif á heilsuna. Talar hún um að margir finni fyrir að vöðvabólga batni, ónæmiskerfið styrkist og lundin léttist. „Það virðist að það að fara ofan í kaldan sjóinn um skeið og svo ofan í heitan pott komi blóðrásinni mjög vel af stað. Um leið er heilinn að senda alls kyns kröftug hormón um líkamann og endorfínið flæðir um kroppinn eftir sjósundið.“ Sjálfri þykir Ragnheiði sjósundið ekki bara heilsubætandi heldur hin besta skemmtun og bjóði upp á mikla frelsistilfinningu og sterka tengingu við náttúruna. „Ég líki þessu stundum við muninn á að hlaupa á hlaupabretti inni í líkamsræktarstöð og hlaupa utandyra. Munurinn er svipaður á því að synda í sundlaug og synda í sjónum.“ SUMARIÐer tíminn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.