Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 64
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Áskorun „Er það álit flestra sem reynt hafa að fyrstu fimmtán sundtökin séu erfiðust en eftir það er líkaminn búinn að jafna sig og byrjaður að aðlagast kuldanum,“ segir Ragnheiður.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Ekki þarf að leita svo langt aftur
til að finna tíma þegar sjósund og
sjóböð voru álitin iðja furðulegra
sérvitringa. Margt hefur breyst síð-
an þá og í dag er svo komið að fjöldi
Íslendinga stundar það reglulega að
taka sundsprett í köldum sjónum.
Ragnheiður Valgarðsdóttir er for-
maður Sjósunds- og sjóbaðsfélags
Reykjavíkur og segir hún ekkert lát
virðast ætla að verða á vinsældum
þessarar iðju. „Ekki aðeins fjölgar í
hópnum ár frá ári heldur er fjöl-
breytnin orðin mjög mikil og fólk á
öllum aldri sem stundar sjósund og
sjóböð reglulega.“
Aðstaðan breytti miklu
Aðspurð hvað geti helst skýrt vin-
sældir sjósunds- og sjóbaða nefnir
Ragnheiður fyrst bætta aðstöðu í
Nauthólsvík. „Á sínum tíma var ráð-
ist í töluverðar framkvæmdir á
svæðinu, m.a. komið fyrir búnings-
klefum heitum potti og nýlega var
bætt við gufubaði. Stutt er fyrir íbúa
höfuðborgarsvæðisins að fara niður
í Nauthólsvík, botninn er þar sléttur
og öruggur. Þar hittist fólk í dag til
að fara í sjóinn og á svo skemmti-
lega stund saman í pottinum eða
gufunni.“
Þá hafa fjölmiðlar sýnt sportinu
mikinn áhuga, flutt fréttir af árleg-
um sjósundsferðum t.d. yfir Foss-
voginn, og út í Viðey. Síðan er ekki
ólíklegt að samfélagsmiðlarnir hafi
hjálpað til við að breiða út jákvæða
reynslu fólks af sundsprettinum.
„Að svamla í köldum sjónum er eitt-
hvað sem margir eru spenntir fyrir
að reyna, þó að ekki væri nema einu
sinni, og gaman að geta sett af því
myndir og frásögn á Facebook.
Þetta eru líka skemmtilegar myndir
að deila, fólk kemur upp úr sjónum
brosandi og frísklegt, og stolt af
sjálfu sér enda er það ákveðin hetju-
dáð að synda í sjónum í fyrsta sinn.“
Hægt er að stunda sjósund og sjó-
böð árið um kring en sumarið er þó
vinsælasti tíminn til þessarar iðju,
enda bæði hiti sjávar og lofts þægi-
legri. Sjósunds- og sjóbaðsfélagið er
með skipulagða dagskrá allt sum-
arið. „Eins og síðustu tvö sumur
verður tekið sérstaklega vel á móti
nýliðum í Nauthólsvík alla miðviku-
daga kl. 17.30. Þar verða vanir
sjósundsmenn sem leiða fólk í gegn-
um fyrsta skiptið í sjónum og hjálpa
því að eiga gefandi og ánægjulega
upplifun,“ segir Ragnheiður.
Fyrstu skrefin erfiðust
Hún bætir við að gott sé að byrja
sjósund og sjóböð undir tryggri leið-
sögn. „Sumir spreyta sig á þessu
einir og óstuddir og hlaupa þá út í
sjóinn og svo strax til baka upp á
land, en þannig eru þeir ekki að
upplifa allt það sem sjórinn hefur
upp á að bjóða.“
Segir Ragnheiður að það geti
kallað á mikinn viljastyrk að stíga
fyrstu skrefin út í kaldan sjóinn.
„Þegar vatnið er komið upp að nafla
þarf svo að byrja að taka fyrstu
sundtökin. Er það álit flestra sem
reynt hafa að fyrstu fimmtán sund-
tökin séu erfiðust en eftir það er lík-
aminn búinn að jafna sig og byrj-
aður að aðlagast kuldanum,“
útskýrir hún og bæti við að hver og
einn ráði því sjálfur hvort honum
nægi að taka einfaldlega hressandi
bað í sjónum eða vilji frekar synda.
„Fara þarf rólega af stað og alls
ekki stökkva beint út í sjóinn því þá
geta áhrif kælingarinnar verið of
kröftug fyrir líkamann.“
Hún segir ekki þurfa að óttast
stungur frá marglyttum eða ígul-
kerjum og að hákarlarnir í kringum
Ísland séu flestir tannlausir og með
engan áhuga á sundfólki. „Selir eru
heldur ekki að ógna sjósundsfólki og
hafa jafnvel stundum slegist í för
með okkur á lengri sundferðum.“
Þarf samt að sýna hæfilega aðgát
og t.d. forðast að stunda sjósund þar
sem sterkir hafstraumar og flóð eða
fjara kunna að færa sundfólk frá
landi. Segir Ragnheiður jafnframt
að fólk sem glímir við hjartavanda-
mál eða háþrýsting ætti að ráðfæra
sig við lækni áður en gerð er atlaga
að sjósundinu.
Sennandi ferðir framundan
„Í sundferðum félagsins gætum
við vandlega að örygginu og erum
með björgunarsveitarmenn með í
för á léttbátum og kajökum, og við-
búnað í landi ef svo ólíklega vildi til
að eitthvað kæmi upp á. Af sund-
ferðum sumarsins má m.a. nefna
nýja sundleið yfir Skerjafjörð, að
vanda er synt út í Viðey föstudaginn
fyrir Menningarnótt og lengsta
sund sumarsins verður Bessa-
staðasundið sem nær yfir 4,5 kíló-
metra leið. Að auki verða farnar
hópferðir út á land, m.a. í sjósund-
sferð til Þorlákshafnar og að Kleif-
arvatni þar sem synt er í fersk-
vatni.“
Gott að byrja undir tryggri leiðsögn
Ekkert lát er á vinsældum sjósunds og sjóbaða og vel tekið á móti nýliðum í Nauthólsvík alla miðvikudaga í sumar
Öruggt Ragnheiður segir ekki þurfa að óttast marglyttur eða ígulker í sjón-
um og hákarlarnir við landið tannlausir og áhugalausir um sjósundfólk.
64
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Teppi á stigaganginn
nú er tækifærið !
Komum á staðinn með prufur og mælum,
ykkur að kostnaðarlausu
Eitt verð niðurkomið
kr. 5.980 m2
Gott fyrir líkama og sál
Ragnheiður segir það laða marga að sjósundi og sjóböðum hvað þessi
iðja getur haft jákvæð áhrif á heilsuna. Talar hún um að margir finni
fyrir að vöðvabólga batni, ónæmiskerfið styrkist og lundin léttist.
„Það virðist að það að fara ofan í kaldan sjóinn um skeið og svo ofan í
heitan pott komi blóðrásinni mjög vel af stað. Um leið er heilinn að
senda alls kyns kröftug hormón um líkamann og endorfínið flæðir um
kroppinn eftir sjósundið.“
Sjálfri þykir Ragnheiði sjósundið ekki bara heilsubætandi heldur
hin besta skemmtun og bjóði upp á mikla frelsistilfinningu og sterka
tengingu við náttúruna. „Ég líki þessu stundum við muninn á að
hlaupa á hlaupabretti inni í líkamsræktarstöð og hlaupa utandyra.
Munurinn er svipaður á því að synda í sundlaug og synda í sjónum.“
SUMARIÐer tíminn