Morgunblaðið - 16.05.2014, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
F
A
S
TU
S
_H
_2
1.
04
.1
4
Verið velkomin í verslun okkar í Síðumúla 16, 2.h.
Fastus • Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900
fastus@fastus.is • www.fastus.is • Opið mán - fös 8.30 - 17.00
200ml
300
kcal
3g
trefjar
1000 IU
D3
vítamín
20g
prótein
Veit á vandaða lausn
Næringarvörur
eru í samningi við
Sjúkratryggingar
Íslands
Kominn í helstu
apótek -
Fæst einnig
í verslun Fastus
Sérhannaður
næringardrykkur
fyrir aldraða
Inniheldur öll helstu næringarefni sem líkaminn þarfnast.
Sérstaklega ríkur af:
• D-vítamíni
• Próteini
• B-vítamínum
• Omega3 fitusýrum
• Kalsíum
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Ný háspennulína í lofti, sunnan við Akur-
eyrarflugvöll, raskar ekki flugöryggi að mati
Landsnets. Guðmundur Ingi Ásmundsson, að-
stoðarforstjóri fyrirtækisins, greindi frá þessu
á vorfundi Samorku á Akureyri í fyrradag.
Lengi hefur verið deilt um málið og flugmenn
og flugrekendur á Akureyrarflugvelli eru
Landsneti mjög ósammála.
Guðmundur Ingi sagði að áhættumat
hefði verið unnið vegna nálægðar flugvallarins
og kynnti sýnileikagreiningu fyrir leiðarval
loftlínu þar sem búið er að taka tillit til áhættu-
matsins og draga úr sjónrænum áhrifum.
„Mér finnst þetta glannaleg túlkun hjá hon-
um og það stenst enga skoðun að háspennulína
þarna hafi engin áhrif á flugöryggi,“ segir
Víðir Gíslason, flugmaður á Akureyri, við
Morgunblaðið, en hann hefur lengi verið í far-
arbroddi þeirra sem berjast gegn því að há-
spennustrengur í lofti verði lagður á þessum
stað heldur verði komið fyrir í jörðu.
„Það kemur bæði fram í niðurstöðu Sam-
göngustofu og áhættumatinu sem framkvæmt
var fyrir Isavia, að háspennulína hafi neikvæð
áhrif á flugöryggi í Eyjafirði,“ segir Víðir.
Víðir var einn þriggja þátttakenda að norð-
an við gerð áhættumatsins sem áður var nefnt.
Hann segir málið flókið og margþætt. „Þeir
sem komu að áhættumatinu og gættu hags-
muna Akureyrarflugvallar eru ekki sammála
túlkun aðstoðarforstjóra Landsnets og svo er
reyndar um mun fleiri. Rannsóknarnefnd sam-
gönguslysa leggur til, vegna flugöryggis, að
lagður verði jarðstrengur svo dæmi sé tekið.
Landsnet horfir því ekki á málið frá bestu
sjónarmiðum um flugöryggi í Eyjafirði. Í úr-
skurði frá Isavia [sem er framkvæmdaraðili og
rekstraraðili flugvallarins] segir að háspennu-
lína hefði þolanleg áhrif, en samt áhrif og það
neikvæð. Það hefur komið fram að jarð-
strengur er miklu betri kostur með tilliti til
öryggis fyrir flug.“
Víðir Gíslason heldur því fram að verði há-
spennulína lögð í lofti svo nálægt flugvellinum
geti það haft truflandi áhrif á leiðsögubúnað á
jörðu niðri og í flugvélum í blindflugi. „Mér
finnst að það verði líka að koma fram að um-
fjöllun Isavia og Samgöngustofu tók ekki til-
lit til ísingar- og seltuhættu sem veldur áhrif-
um á Íslandi. Ráðgjafar mældu áhrif vegna
súldar í Hollandi, yfirfærðu á Eyjafjörð og
sögðu eftir það að línurnar hér yrðu í lagi.“
Víðir heldur áfram: „Fólk hefur margoft
séð myndir af mikilli ísingu á háspennulínum,
hún getur valdið bilun í einangrun sem getur
valdið neistaflugi og sá neisti veldur rafbylgj-
um sem geta farið á sömu tíðni og er á leið-
sögumerkjunum. Þetta er því mikið alvöru-
mál,“ segir Víðir Gíslason.
Guðmundur Ingi sagði á vorfundi Sam-
orku að sýnileikagreiningin, sem nefnd var í
upphafi, benti til þess að loftlína yrði ekki
mjög áberandi frá byggðinni á Akureyri.
Unnið er að frummati á jarðstrengs-
lögnum, að sögn Guðmundar Inga, vegna
möguleika á því að strengurinn yrði lagður í
jörðu þvert yfir fjörðinn skammt sunnan flug-
vallarins. Nefndi Guðmundur ýmsa þætti
sem hafa þyrfti í huga ef sú leið yrði farin, að-
allega atriði sem snúa að náttúrunni. Hann
nefndi til dæmis að jarðstrengur yrði að
mestu innan skipulags þéttbýlis og myndi því
þvera lagnir og vegi, og vera í nálægð við
íbúðarhúsnæði.
Í Kjarnaskógi myndi þurfa að ryðja um
20 metra breiða leið fyrir jarðstreng að sögn
Guðmundar og strengurinn myndi fara yfir
óshólma Eyjafjarðar, sem eru á náttúru-
minjaskrá, sagði hann. Hugsanlega þyrfti að
leggja þar nýjar vegslóðir, ef strengleiðin
yrði önnur en meðfram gamla veginum.
Guðmundur Ingi sagði að í leysingum
stæði vatn hátt í óshólmanum sem gæti tor-
veldað viðgerð jarðstrengja. Hann sagði að
einnig þyrfti að kanna áhrif segulsviðs á flug-
ið, í og við flugbrautina, gera ráðstafanir til
að gera við strengi ef farið yrði undir flug-
brautina og gera ráðstafanir vegna viðgerða
við enda flugbrautarinnar. Þá þyrfti að at-
huga áhrif strengjanna á lífríki Eyjafjarðarár
og huga sérstaklega að áhrifum lágs skamm-
hlaupsafls á svæðinu á mögulega streng-
notkun.
Glannaleg túlkun og stenst ekki skoðun
Ljósmynd/Hörður Geirsson
Akureyri Stenst ekki skoðun að háspennulína hafi ekki áhrif á flugöryggi, segir flugmaður.
Háspennulína raskar ekki flugöryggi, segir Landsnet Mikið alvörumál, segir flugmaður
Símenntun Háskólans á Akureyri
útskrifaði nýverið 30 nemendur úr
leiðsögunámi. Þetta er í fyrsta
skipti sem útskrifað er úr slíku
námi utan höfuðborgarsvæðisins.
Útskrifaðir nemendur geta fengið
aðild að Félagi leiðsögumanna og
var námið byggt á námskrá fyrir
leiðsögunám í samstarfi við Leið-
söguskólann og Samtök ferðaþjón-
ustunnar. Námið stóð í tvær annir.
Námið er víðfeðmt og fjölbreytt,
segir í tilkynningu, „en því er ætlað
að vera hagnýtt og taka mið af ólík-
um þörfum ferðaþjónustunnar í
takt við breytilegt ferðamynstur
ferðamanna. Nemendur eru frædd-
ir um leiðsögutækni, helstu ferða-
mannastaði, íslenskt samfélag,
jarðfræði landsins, sögu og menn-
ingu, gróður og náttúruvernd, at-
vinnuvegi, bókmenntir og listir auk
þjálfunar í erlendu kjörmáli svo
nokkuð sé nefnt. Flestir völdu
ensku en einnig voru þýska,
franska og norska valin sem kjör-
mál. Kennt var síðdegis eftir hefð-
bundinn vinnudag og farnar vett-
vangsferðir um helgar með SBA-
Norðurleið.“
Skortur hefur verið á menntuð-
um leiðsögumönnum í takt við
mikla fjölgun ferðamanna á síðustu
árum.
Leiðsögn Stærstur hluti þeirra sem útkrifuðust sem leiðsögumenn nyrðra.
Leiðsögumenn út-
skrifaðir norðanlands