Morgunblaðið - 16.05.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Aðalfundur Haga hf. 5. júní 2014
Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn
fimmtudaginn 5. júní 2014 og hefst hann kl. 09:00
áHilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu starfsári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu
endurskoðanda, lagður fram til samÞykktar.
3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu
2013/14.
4. Tillaga að breytingu á samÞykktum félagsins.
• Grein 2.1 um hlutafé félagsins verði breytt Þar sem
hlutafé verði lækkað úr kr. 1.217.585.840 að nafnverði
í kr. 1.171.502.190 að nafnverði og eigin hlutafé, að
nafnvirði kr. 46.083.650, Þannig eytt.
5. Ákvörðun um Þóknun til stjórnarmanna.
6. Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu.
7. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda.
8. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem
löglega eru upp borin.
Ársreikning og önnur gögn, ásamt upplýsingum um póstatkvæðagreiðslu, rétt
hluthafa til að bera fram tillögur og framboð til stjórnar er að finna á vefsíðu
félagsins, http://www.hagar.is/hluthafaupplysingar/adalfundur-/
Stjórn félagsins vill einnig árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn,
Þ.e. forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga og
annarra hluthafa ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn. Einnig verða
einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum.
Stjórn Haga hf.
Málflutningur Guðmundar Stein-grímssonar er ágætt dæmi um
hvernig samfylkingarmenn allra
flokka tala um Evrópusambands-
mál. Í viðtali við mbl.is sagðist hann
vonast til að stjórn-
armeirihlutinn hefði
lært það af ESB-
málinu að það verði
„að tala betur sam-
an“ og að það sé
„ekkert hægt að
hleypa þingstörfum
svona upp“.
Þá sagði hann að það sé „alvegsáttafarvegur“ í ESB-málinu og
að þar sem þetta sé deilumál þá
verði það að fara í sáttafarveginn.
Vandinn er þó sá að „sáttin“ semsamfylkingarmennirnir bjóða
er engin sátt heldur krafa um að
aðrir sætti sig við að samfylking-
arsjónarmiðin ráði þó að þau hafi
orðið undir í síðustu þingkosn-
ingum.
Þetta er svo sem ekki nýtt því aðsama krafa var uppi eftir kosn-
ingarnar 2009. Þá urðu samfylking-
arsjónarmiðin um ESB-aðild líka
undir en þeir sem urðu ofan á voru
knúnir inn á sáttafarveginn til
Brussel og eru þar enn.
Þá var aðild barin í gegnum þing-ið undirbúnings- og umræðu-
laust og þá töluðu samfylkingar-
menn ekki um að ríkisstjórnin yrði
að bæta samtalstæknina eða hleypa
þingstörfum ekki upp.
Nú er búið að ræða málið í þaulaog skrifa skýrslur en þá er tal-
að um skort á umræðum og upp-
hlaup.
Og þeir stjórnarliðar eru til semtelja ástæðu til að láta svona
rökleysu ráða ferðinni.
Guðmundur
Steingrímsson
Rökleysur Evrópu-
sambandssinna
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 15.5., kl. 18.00
Reykjavík 8 skúrir
Bolungarvík 5 skýjað
Akureyri 9 skýjað
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 10 þoka
Ósló 11 skýjað
Kaupmannahöfn 15 léttskýjað
Stokkhólmur 12 heiðskírt
Helsinki 11 heiðskírt
Lúxemborg 11 skýjað
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 17 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 18 heiðskírt
París 16 heiðskírt
Amsterdam 15 léttskýjað
Hamborg 13 skýjað
Berlín 16 léttskýjað
Vín 10 skúrir
Moskva 18 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 27 heiðskírt
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 13 skúrir
Aþena 21 léttskýjað
Winnipeg 7 léttskýjað
Montreal 25 léttskýjað
New York 17 skúrir
Chicago 7 alskýjað
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
16. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:09 22:40
ÍSAFJÖRÐUR 3:48 23:11
SIGLUFJÖRÐUR 3:30 22:55
DJÚPIVOGUR 3:33 22:16
Hæstiréttur stað-
festi í gær sak-
fellingu yfir Woj-
ciech Marcin
Sadowski sem
ákærður var fyrir
frelsissviptingu,
nauðgun og sér-
staklega hættu-
lega líkamsárás
gagnvart ástr-
alskri konu í
Reykjavík í apríl í fyrra.
Hann var dæmdur í fimm ára
fangelsi og til að greiða konunni
3.176.114 krónur í bætur.
Ríkissaksóknari ákærði manninn
þann 2. júlí síðastliðinn fyrir frelsis-
sviptingu með því að halda konunni
nauðugri í húsnæði Vídeóhallarinnar
að Lágmúla í Reykjavík í 30 til 40
mínútur. Allan þann tíma beitti hann
hana líkamlegu og kynferðislegu of-
beldi, veitti henni mörg högg og
sparkaði m.a. í höfuð hennar og and-
lit. Í dómi Hæstaréttar segir að
frelsisskerðingin hafi verið alvarleg
og „aðstæður brotaþola ógnvæn-
legar enda átti ákærði alls kostar við
hana í átökum þeirra“ eins og segir í
dómnum.
Sadowski hleypti konunni ekki út
þrátt fyrir að hún bæði hann um það.
Þá kemur fram að hún hafi reynt að
komast út úr húsnæðinu, sem var
læst, m.a. með því að brjóta gler í
útidyrahurð. Eftir að hún beit í kyn-
færi hans jókst ofbeldi hans til
muna.
Konan var á Íslandi í tveggja daga
helgarferð og þáði far hjá Sadowski.
Í stað þess að fara með hana á Kex
Hostel þar sem hún gisti ók Sa-
dowski sem leið lá að húsnæði
Vídeóhallarinnar í Lágmúla. Hús-
næðið stóð autt. Sökum ókunnug-
leika átti konan erfitt með að segja
hvar árásin hefði átt sér stað, en í
ökuferð með lögreglunni tók hún eft-
ir brotnu rúðunni. Haft var uppi á
eiganda húsnæðisins sem benti á Sa-
dowski.
Fimm ára
fangelsi
fyrir
nauðgun
Dómur Hús
Hæstaréttar.
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga