Morgunblaðið - 16.05.2014, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Verslunarhúsið á Kópaskeri er til leigu undir rekstur dagvöruverslunar.
Í húsinu eru til staðar kælar, hillurekkar og ýmiss annar búnaður sem þarf til
rekstrar slíkrar verslunar. Húsnæðið er rúmgott og gefur möguleika á að setja
upp veitingasölu samhliða verslunarrekstri. Fyrir liggur ítarleg greining og
rekstraráætlun fyrir slíka verslun, sem m.a. er byggð á eldri gögnum um rekstur
í þessu húsi. Fleira er hagstætt við að hefja reksturinn og byrjunin auðveldari en
margan gæti grunað.
Allar nánari upplýsingar fást hjá eftirtöldum:
Jón Grímsson: 894-0033
Sigurlína Jóhanna Jóhannesdóttir: 465-2169
Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga, Reinhard Reynisson: 464-0418
Verslunarhúsið á Kópaskeri e.h.f.
Spennandi tækifæri
fyrir duglegan
einstakling eða fjölskyldu
- góðar forsendur fyrir rekstri
Atvinnutækifæri
á Kópaskeri
Viltu fara í eigin rekstur?
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Óvenjumikill snjór er í Oddsskarði á
skíðasvæði Skíðamiðstöðvar Austur-
lands. Bæjarráð Fjarðabyggðar hef-
ur samþykkt að svæðið verði opið um
helgar fram eftir júní. Dagfinnur
Ómarsson, forstöðumaður skíða-
svæðisins, taldi að svæðið gæti orðið
opið út júní og jafnvel lengur. Hann
man ekki til þess að svæðið hafi áður
verið opið svo lengi.
„Snjódýptin nú er sú mesta sem
við munum eftir,“ sagði Dagfinnur.
Snjódýptin er um þremur metrum
meiri en venjulega á þessum árstíma.
Hann sagði að menn myndu nokkuð
glöggt eftir snjóalögum í Oddsskarði
allt aftur til ársins 1958 og snjórinn
hefði líklega aldrei verið meiri en
hann væri nú. Skíðasvæðið teygir sig
frá 500 metrum og upp í 840 metra
yfir sjávarmáli. Snjódýptin efst er nú
6-7 metrar en 4-5 metrar neðst.
Erfiðlega hefur gengið að halda
skíðasvæðinu opnu í vetur vegna veð-
urs. Rekstur Skíðamiðstöðvarinnar
hefur snúist um að halda svæðinu
opnu. Á þremur vikum í vetur þurfti
t.d. að ryðja burt um 70 þúsund rúm-
metrum af snjó.
Opið verður um helgar
Opið verður um helgar, föstudag
til sunnudags svo lengi sem opið
verður í sumar. Aðsóknin hefur verið
ágæt. Nú í maí hafa gjarnan komið
150-200 manns á dag á skíði. Sumir
koma langt að, eins og t.d. frá Horna-
firði.
Stefnt er að því að halda fjalla-
skíðahátíð um sjómannadagshelgina,
fyrstu helgina í júní. Þá er von á gest-
um af höfuðborgarsvæðinu og víðar
að, að sögn Dagfinns. Sjö starfsmenn
vinna á skíðasvæðinu þegar það er
opið en fastir starfsmenn allt árið eru
tveir.
Undirbúningshópur fer nú yfir
áform um frekari uppbyggingu á
skíðasvæðinu. Von er á nýjum snjó-
troðara í janúar á næsta ári. „Það er
allt á uppleið í olíubænum Fjarða-
byggð,“ sagði Dagfinnur.
Skíðasvæðið verður opið út júní
Gríðarmikill snjór í Oddsskarði og snjódýptin sú mesta í manna minnum Ákveðið var að fram-
lengja þann tíma sem svæðið verður opið fram á sumar 150-200 manns hafa komið á dag á skíði
Skíðamiðstöð Austurlands Skíðasvæðið er stundum kallað Austfirsku
alparnir. Á góðum dögum iðar þar allt af skíðafólki á öllum aldri.
Ljósmyndir/Fjarðabyggð
Oddsskarð Svæðið þykir eitt besta skíðasvæði landsins. Fjallið myndar skál þar sem eru margar skemmtilegar skíðaleiðir. Aðstæður eru þannig að sólbráð
verður ekki of mikil á sólríkum dögum. Unnið er að hugmyndum um framtíðarskipan svæðisins með tilliti til skíðaiðkunar og ferðaþjónustu.
Vinsælt skíðasvæði Fólk kemur víða að til að fara á skíði í Oddsskarði.
Jafnvel alla leið frá Hornafirði, sem er 2-3 klukkustunda akstur hvora leið.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Evrópusambandið er ákveðið í því að
halda virkni samningsins um Evr-
ópska efnahagssvæðið. Þetta kom
fram í máli Michael Barnier, sem fer
með málefni inni markaðarins í
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins, á fundi hans með Gunnari
Braga Sveinssyni utanríkisráðherra
í fyrradag, samkvæmt upplýsingum
utanríkisráðuneytisins.
Barnier sagðist á fundinum með
Gunnari Braga skilja stöðu Íslands
vegna gjaldeyrishaftanna og vonast
til þess að úr þeim leystist sem fyrst,
að því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu utanríkisráðuneytisins um fund
Barniers og Gunnars Braga.
Einnig kom fram að Evrópusam-
bandið væri tilbúið til samstarfs um
lausn gjaldeyrishaftanna innan
EES-samningsins.
„Samstarf ESB og EES-ríkjanna
um innri markað og framkvæmd
EES-samningsins er mikilvægt fyrir
okkur öll. Í 20 ár hefur samningur-
inn verið okkur farsæll og einfaldað
viðskipti innan Evrópusambandsins
og Evrópska efnahagssvæðisins,“ er
haft eftir Gunnari Braga eftir fund-
inn í tilkynningu ráðuneytisins.
Utanríkisráðherra fundaði einnig
með Kristni Árnasyni framkvæmda-
stjóra Fríverslunarsamtaka Evrópu,
EFTA, þar sem rætt var um stöðu
fríverslunarsamninga hjá samtökun-
um. „Einnig fundaði Gunnar Bragi
með Stine Andresen, framkvæmda-
stjóra uppbyggingarsjóðs EFTA.
Kom fram mikil ánægja með verk-
efni sem Íslendingar hafa unnið að
og þá sérstaklega mennta- og rann-
sóknastofnanir sem hafa tekið virk-
an þátt í starfi sjóðsins,“ segir enn-
fremur í fréttatilkynningu utanríkis-
ráðuneytisins í gær.
Viðræður Gunnar Bragi Sveinsson
og Michel Barnier ræddu um EES.
ESB ákveðið í að
halda virkni EES
Tilbúið til samstarfs um lausn haftanna