Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Skútuvogi 8 • 104 Reykjavík • Sími 567 6700 • www.vakahf.is
Dekkjasala
og þjónusta
Bifreiða-
verkstæði Varahlutir
Bifreiða-
flutningar
Endurvinnsla
bifreiða
VIÐTAL
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Nýjum og auðum íbúðum í Reykja-
nesbæ er farið að fækka verulega,
m.a. vegna aðflutnings fólks frá
höfuðborgarsvæðinu. Atvinnuhorfur
eru að glæðast
og um áramótin
má ætla að at-
vinnuleysi á
svæðinu verði
farið að nálgast
landsmeðaltalið.
Að sögn Árna
Sigfússonar,
bæjarstjóra
Reykjanesbæjar,
á hátt fast-
eignaverð á höfuðborgarsvæðinu
þátt í þessari þróun. Velta á leigu-
markaði þar er einnig að aukast,
eins og sýnt er á grafi hér á síð-
unni. „Hækkun fasteignaverðs hef-
ur þau áhrif að fólk leitar hingað og
það er vinnandi fólk sem sækir í
nýbyggingarsvæðin. Það sem af er
ári hefur íbúafjölgunin fyrst og
fremst orðið í nýju hverfunum í
Innri-Njarðvík. Það eru komnir yfir
14.650 íbúar í Reykjanesbæ. Fyrsta
maí sl. vantaði tvo íbúa upp á að við
værum búin að fylla þann fjölda
sem við áætluðum að yrði í lok árs
2014. Það er mjög mikil fjölgun. Sú
fjölgun á sér nær öll stað í nýju
hverfunum í Innri-Njarðvík. Þarna
er um að ræða autt húsnæði sem
fólk hefur flutt inn í,“ segir Árni en
samkvæmt upplýsingum Hagstofu
Íslands bjuggu 14.527 í Reykja-
nesbæ 1. janúar sl.
Vinna á höfuðborgarsvæðinu
Árni segir líka mörg dæmi um að
ungt fólk kaupi gömul hús í eldri
hverfum, geri þau upp og flytji inn.
„Þar eru á ferð einstaklingar, eða
fjölskyldur, sem hafa störf á höfuð-
borgarsvæðinu, en sjá færi á að
kaupa hér húsnæði á hentugum
tíma og setja upp sitt heimili í barn-
vænu umhverfi, jafnvel þótt önnur
fyrirvinnan sé gjarnan enn að störf-
um á höfuðborgarsvæðinu. Það er
þróunin. Fjöldi íbúa í Ásbrú er hins
vegar nær 2.000 og hefur verið
svipaður síðustu tvö ár. Þar af er
langstærsti hlutinn námsmenn. Þar
eru nú lausar um eitt þúsund íbúðir
en þær eru ekki allar tilbúnar. Það
þarf að taka út amerískt rafmagn,
eins og sagt er, og gera smávægi-
legar lagfæringar. Þær munu því
koma hægar inn. Þetta er hugsað
sem hverfi fyrir námsmenn. Þá hef-
ur svæðið verið opnað fyrir ferða-
þjónustuna. Fjögur fyrirtæki hafa
keypt blokkir og breytt þeim í gisti-
rými.“
Rúm fyrir þúsund íbúa
Árni áætlar aðspurður að enn sé
rúm fyrir um þúsund íbúa í Reykja-
nesbæ, án þess að til þurfi að koma
nýbyggingar. „Innviðirnir eru enn
mjög sterkir og það er vel hægt að
taka við hátt í þúsund íbúum í
Innri-Njarðvík.“
Að sögn Vinnumálastofnunar
voru 788 manns atvinnulausir á
landinu í mars og atvinnuleysið
7,5%. Landsmeðaltalið, samkvæmt
sömu skilgreiningu, var þá 4,5%.
Árni áætlar aðspurður að um
næstu áramót verði atvinnuleysi í
Reykjanesbæ á svipuðu róli og
landsmeðaltalið. Margt sé í píp-
unum. Til dæmis sé áætlað að
stækkun Keflavíkurflugvallar muni
skapa 100 störf. Kísilver sé að fara
af stað með framkvæmdir, gagna-
ver Verne sé að stækka og Advania
að byggja nýtt gagnaver á Fitjum.
Þá muni t.d. þörungaverksmiðja
Algalífs á Ásbrú og Stolt Seafarm
uppskera á næstu mánuðum.
Draugahverfin eru að fyllast af fólki
Verulega er farið að ganga á autt íbúðarhúsnæði á Suðurnesjum Bæjarstjóri Reykjanesbæjar
segir íbúafjölgunina mesta í Innri-Njarðvík Margir nýju íbúanna vinna á höfuðborgarsvæðinu
140
120
100
80
60
40
20
0
2009
(samt. 324)
2011
(samt. 301)
2013
(samt. 393)
2010
(samt. 337)
2012
(samt. 340)
2014
(samt. 468)
Heimild: Fasteignaskrá
Janúar Febrúar Mars Apríl
98
75
82
69
94
71
98
74
81
62
85
73
91 9
3 93
63
10
2
93 1
0
1
97
13
9
92
10
3
Aukning
milli ára: 4,0% 13,0% 15,6% 19,1%-10,7% 13
4
Þinglýstir leigusamningar um íbúðarhúsnæði á Suðurnesjum
Tímabilið 1.1. til 30.4. árin 2013 og 2014
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Nýir íbúar Fjölbýlishús í Innri-Njarðvík. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu sjá kauptækifæri í Reykjanesbæ.
Árni Sigfússon
Veltan að aukast
» Samkvæmt Fasteignaskrá
var velta kaupsamninga vegna
fasteigna á Suðurnesjum 8,07
milljarðar í fyrra, 7,44 ma.
2012, 4,53 ma. 2011 og 6,52
ma. árið 2010 og 6,46 ma.
2009, á verðlagi hvers árs.
Sævar Pétursson, rekstrarverk-
fræðingur og framkvæmdastjóri
Eignamiðlunar Suðurnesja, segir
söluna tekna að
glæðast.
Hann hefur
selt fasteignir á
svæðinu í 15 ár
og greinir sömu
þróun á mark-
aðnum og árið
2007.
„Það var mjög
rólegt á mark-
aðnum fyrir þann
tíma, en upp úr 2007 byrjaði hann að
lifna við. Þetta er það sama og er að
gerast nú á Suðurnesjum. Íbúðaverð
fór þá mikið upp í Reykjavík og það
varð of dýrt að búa þar fyrir marga.
Það hjálpaði dálítið að bensínið var
þá ódýrara. Fólki fannst ekkert mál
að aka þessa vegalengd, nú er fólk
farið að aka á sparneytnari bílum og
bensínið er ekki lengur jafnstór lið-
ur í rekstri heimilanna og var eftir
hrun,“ segir Sævar um þróunina.
Hann segir fólk úr öllum stéttum
leita að húsnæði suður með sjó, þar
með talið eldra fólk ásamt fjöl-
skyldum og einstaklingum sem eru
að leita eftir „skynsömum kaupum“.
„Suðurnesin eru í um 20 mínútna
akstursvegalengd frá höfuðborgar-
svæðinu og hafa upp á alla grunn-
þjónustu að bjóða og myndi ég telja
hana nánari og persónulegri en í
stóru samfélagi. Verðið hjá okkur er
lágt og það á þátt í að fólk ákveður að
flytjast hingað. Við erum að fá fólk af
höfuðborgarsvæðinu sem er að
stækka við sig. Það hefur selt sínar
eignir og vill losa sig út úr skuldum.
Dæmi er ungt par sem seldi
þriggja herberbergja íbúð í Reykja-
vík. Það þurfti eitt herbergi í viðbót
en átti ekki möguleika á að kaupa
fjögurra herbergja íbúð í Reykjavík.
Þau gátu fengið góða eign í Reykja-
nesbæ sem hentaði þeim á sama
verði og íbúðin sem þau seldu.“
Fermetraverðið „mjög lágt“
Að sögn Sævars er fermetraverð
á Suðurnesjum enn „mjög lágt“.
„Í því liggja mikil tækifæri því
verðið á eftir að hækka hér þegar
eftirspurnin eykst. Meðaltalið er frá
160 til 170 þús. kr. en hærra ef hús-
næðið er nýtt. Þá nálgast meðal-
verðið 180-190 þús kr. Það fer aldrei
yfir það, nema þegar um er að ræða
nýbyggingu. Leiguverð er líka lágt á
Suðurnesjum, að jafnaði um þúsund
krónur á fermetra.“
baldura@mbl.is
Sama þróunin á
markaði og 2007
Fasteignasali segir Reykjavík of dýra
Sævar Pétursson