Morgunblaðið - 16.05.2014, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Opnum á morgun
Ný og endurbætt
Opnum á morgun nýja, endur-
bætta verslun á Laugavegi 13.
Bjóðum upp á kaffi, kleinur
og Svala í tilefni dagsins.
Vertu velkomin!
Villidýr á verði · tiger.is
Sumarkort á
16.900.-
Gildir til 1. sept.
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Sumartilboð
Komdu þér í
gott form
í sumar
Persónulegt þjónusta og vinalegt umhverfi
Atli Vigfússon
Laxamýri
Sauðburður stendur sem hæst og
hafa sauðfjárbændur á Húsavík í
nógu að snúast þessa dagana.
Krakkarnir víkja ekki úr fjárhús-
unum eftir að skóla lýkur á daginn.
Það nóg að sjá og skemmtilegt fyrir
þau að taka þátt í ævintýrinu sem
svo margir hafa gaman af.
Torfi Aðalsteinsson er frístunda-
bóndi og félagi í Fjáreigendafélagi
Húsavíkur. „Við erum aldir upp
með kindum og höfum gaman af
kindum. Þetta er frábær félags-
skapur og það er mjög gefandi að
vera í þessu,“ segir Torfi.
Hann býr með nokkrar kindur í
Lækjarbrekku á Húsavík ásamt
föður sínum Aðalsteini Þórólfssyni
og bróður sínum Trausta Aðal-
steinssyni. Þá er Óskar Karlsson
þarna einnig með kindur og í næstu
húsum eru aðrir húsvískir fjár-
bændur. Það er því ekki langt á
milli manna og oft er farið í húsin
hjá nágrönnunum og litið á lömbin
og fleira sem gleður augað.
Hafa byggt sér reykhús
Fjáreigendafélag Húsavíkur hef-
ur verið starfandi í áratugi, en nú
eru þar yfir tuttugu frístundabænd-
ur sem eru með kindur. Áherslur
eru mismunandi í ræktuninni, en
víða má sjá mjög fjölbreytta liti og
vel aldar kindur.
Hátíðisdagar eru nokkrir svo sem
réttardagurinn og alltaf er fjöldi
fólks á hrútasýningu sem haldin er
á Mærudögum þ.e. bæjarhátíð Hús-
víkinga.
Torfi ólst upp í Stóru-Tungu í
Bárðardal og er því öllu vanur.
Undanfarið hefur hann unnið á Fil-
ippseyjum við jarðboranir, en er í
fríi heima í sauðburðinum. Hann
segir að Aðalsteinn faðir sinn og
Óskar Karlsson sjái mjög mikið um
kindurnar yfir veturinn og séu alltaf
komnir kl. hálfníu á morgnana í
húsin. Þeir séu lengi í verkunum og
mikið sé spjallað og síðan sé farið í
kaffi og sagðar sögur. Þeir fara
tvisvar á dag og seinna málið byrjar
klukkan fjögur og þá er enn spjallað
um kindurnar og fleira skemmti-
legt.
Torfi segir að þeir hafi allt til alls,
góð fjárhús, kæligeymslu undir kjöt
og svo hafa þeir félagar byggt sér
reykhús svo þarna verður til indælis
hangikjöt. Hann segir að þetta sé
heilsubætandi áhugamál sem öll
fjölskyldan tekur þátt í.
Heilsubætandi áhugamál
sem öll fjölskyldan tekur þátt í
Sauðfjárbændur á Húsavík hafa í nógu að snúast þessa dagana
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Falleg lömb Torfi Aðalsteinsson,
frístundabóndi og kindakarl, ásamt
syni sínum Gunnari Kjartani Torfa-
syni og Hildi Önnu Brynjarsdóttur.
Kindakarlar Óskar Karlsson, Torfi Aðalsteinsson og faðir hans Aðalsteinn
Þórólfsson. Yfir tuttugu frístundabændur eru með kindur á Húsavík. Sauðfé Víða má sjá mjög fjölbreytta liti og vel aldar kindur.
Einar K. Guðfinnsson, forseti Al-
þingis, var í gær viðstaddur hátíðar-
fund í norska Stórþinginu í tilefni
200 ára afmælis þingsins og stjórn-
arskrár Noregs, sem samþykkt var á
Eiðsvöllum 17. maí 1814. Einar var
viðstaddur fundinn í boði Olemics
Thommessens, forseta norska Stór-
þingsins, og afhenti Einar gjöf frá
Alþingi Íslendinga til norska Stór-
þingsins í tilefni tímamótanna. Gjöf-
in er endurgerður handritshluti
Konungsbókar Grágásar á kálf-
skinni sem varðveitir fyrsta samning
Íslendinga við erlent ríkisvald;
samninginn við Ólaf konung helga
Haraldsson um gagnkvæm réttindi
Íslendinga og Norðmanna í löndun-
um tveimur. Endurgerð handritsins
var í umsjón sérfræðinga, m.a frá
Árnastofnun, skv. upplýsingum Al-
þingis. Allir þingforsetar Norður-
landa voru viðstaddir.
Færði endurgerð
handrits að gjöf
Gjöfin afhent Olemic Thommessen,
forseti Stórþingsins, og Einar K.
Heilbrigðisstarfsmönnum verður
heimilt að veita heilbrigðisþjónustu
á eigin starfsstöð til 75 ára aldurs,
með möguleika á framlengingu, í
kjölfar breytinga á lögum um heil-
brigðisstarfsmenn sem Alþingi sam-
þykkti í fyrradag.
Auk þessa endurheimta áfengis-
og vímuefnaráðgjafar starfsheiti sitt
með lagabreytingunni, að því er seg-
ir í frétt á vef Velferðarráðuneyt-
isins. Lögin öðlast gildi 1. júlí.
Með lagabreytingunni hækka
starfsaldursmörkin í 75 ár og verður
heilbrigðisstarfsmönnum óheimilt
að veita heilbrigðisþjónustu eftir
þann aldur nema að fenginni undan-
þágu frá Embætti landlæknis.
Að uppfylltum skilyrðum getur
fengist undanþága til allt að þriggja
ára í fyrsta skipti en eftir það í eitt
ár í senn.
Starfsaldursmörkin
hækkuð í 75 ár