Morgunblaðið - 16.05.2014, Síða 36
Nýlega rann út frestur til að sækja
um tvö prestsembætti í Reykjavík,
við Háteigskirkju og Laugarnes-
kirkju. alls bárust 26 umsóknir um
embættin tvö.
Nítján umsækjendur voru um
embætti prests í Háteigskirkju.
Embættið veitist frá 1. september
næstkomandi.
Umsækjendur eru: Séra Arna
Ýrr Sigurðardóttir, séra Arndís G.
Bernharðsdóttir Linn, Davíð Þór
Jónsson cand. theol, séra Eiríkur
Jóhannsson, Elvar Ingimundarson
mag. theol, Fritz Már Berndsen
Jörgensson mag.theol, Grétar Hall-
dór Gunnarsson cand.theol, Guðrún
Áslaug Einarsdóttir cand. theol,
séra Gunnar Jóhannesson, séra
Halldór Reynisson, séra Hannes
Björnsson, séra Jón Ómar Gunn-
arsson, séra Jón Ragnarsson, séra
Karl V. Matthíasson, séra Leifur
Ragnar Jónsson, séra María
Ágústsdóttir, Oddur Bjarni Þorkels-
son cand. theol, séra Sigurður Grét-
ar Helgason og séra Skírnir Garð-
arsson.
Sjö umsækjendur voru um emb-
ætti sóknarprests í Laugarnes-
prestakalli. Embættið veitist frá 1.
september 2014.
Umsækjendur eru: Séra Arna
Ýrr Sigurðardóttir, séra Bryndís
Malla Elídóttir, Fritz Már Berndsen
Jörgensson mag.theol, séra Gunnar
Jóhannesson, séra Kristín Þórunn
Tómasdóttir, séra Sigurvin Lárus
Jónsson og séra Svanhildur Blöndal.
Biskup Íslands skipar í embættin
tvö að fenginni umsögn valnefnda.
sisi@mbl.is
26 sóttu um tvö
prestsembætti
Nýir prestar taka við í haust
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Bæði úti og inni
ÞURRKGRINDUR
Opið virka daga frá 9-18
og laugardaga frá 10-16
Laugavegi 29 - sími 552 4320
www.brynja.is - brynja@brynja.is
Frístandandi
þurrkgrindur og strauborð
Tvær stærðir
Minni grindin
Breidd 60 cm
Snúruhaf 3,60 m
tekur allt að 10 kg.
Verð kr. 5.100
Stærri grindin
Breidd 80 cm
Snúruhaf 6,70 m
tekur allt að 20 kg.
Verð kr. 9.440
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Laxinn er mættur í Kjósina; feðg-
arnir Ólafur Helgi Ólafsson og Ólaf-
ur Þór Ólafsson frá Valdastöðum
sáu nýrenning í Laxfossi í Laxá í
Kjós í vikunni, 10 til 12 punda fisk,
en það er heldur fyrr en venjulega.
Algengt er að fyrstu laxar sumarsins
sjáist á þessum stað, en ekki fyrr en
um 20. maí. Veiðin í Kjósinni hefst
20. júní og því hafa fyrstu laxarnir
þá verið upp undir í mánuð í ánni og
ættu að hafa dreift sér vel.
Meira sést af urriða
Sjónir veiðimanna hafa beinst að
Þingvallavatni síðustu vikur, eins og
algengt er á vorin, en kannski enn
meira nú en áður þar sem reglum
um veiðina var breytt fyrir landi
þjóðgarðsins og spennandi að vita
hvort það breyti einhverju. Aukinni
ásókn í urriðann, sem gefur einkum
færi á sér á vorin, var mætt að því að
einungis má veiða á flugu á þessum
tíma og skal veiddum fiski sleppt aft-
ur. Eftir að hafa rætt við allmarga
veiðimenn sem hafa kastað fyrir
þessa spretthörðu og á tíðum stór-
vöxnu fiska, ber öllum saman um
tvennt: að veiðin hafi verið góð og að
umgengni á bökkunum sé mun betri
en síðustu ár (þar sem mátti ganga
fram á poka með úldinni beitu og
nagaða beingarða og annað rusl sem
á alls ekki að sjást í þjóðgarði). Þá
segja sumir líka að meira sé að sjá af
urriða á góðum veiðistöðum. Mögu-
lega vegna þess að ekki sé verið að
moka honum upp og drepa.
Rauk út á dýpið
„Veiðin hefur verið góð í vor og
síðustu daga heyrist mér að menn
séu ekki að lenda í moki en þeir fá
einn og einn. Fiskurinn er líka í æ
betri holdum,“ segir Haraldur Ei-
ríksson, sölustjóri Hreggnasa, sem
hefur farið nokkrum sinnum í Þing-
vallavatn í vor. Og gengið ágætlega.
„Fyrstu dagana voru menn að
hluta til að veiða slápa, nú veiðast
færri og betur haldnir urriðar, og þá
á ég við þjóðgarðinn. Annað mál er í
Þorsteinsvíkinni, sem ION selur
leyfi í, nú er besti tíminn þar. Hlýjar
uppsprettur eru í víkinni og urriðinn
kemur þar inn til að koma melting-
unni í gang.“
Haraldur var við veiðar þar á
sunnudaginn var. „Ég var í því að
missa þá,“ segir hann. „Ég setti
meðal annars í einn sem við sáum
aldrei. Hann rauk eitthvað út á dýp-
ið. Þegar reynt er að stoppa þessi
dýr þá rífur maður út úr þeim. En ég
hef fengið mjög fína fiska í vor.“ Sá
stærsti var um 50 cm í ummál og 85
cm langur. „Það er fínn fiskur,“ seg-
ir hann. „Það var hrygna, þær eru
styttri og sverari. Það er drjúgt
pundið í hrygnunum.“
Oft er sagt að urriðinn taki best í
ljósaskiptunum en Haraldur segir
allan gang á því. „Þar sem er djúpt,
jafnvel gjár, má veiða allan daginn.
En ef menn vilja ná þessum stóru
fiskum á grynningum þá þarf að
reyna á kvöldin.“
Bætt veiðimenning
Haraldur er einn þeirra sem segja
umgengni hafa batnað stórlega á
bökkum vatnsins. „Mér finnst þessi
bætta veiðimenning í þjóðgarðinum
standa upp úr,“ segir hann. „Nú er
gaman að koma þar. Menn geta líka
staðið nokkuð þétt því allir eru að
nota flugu. Nú er meiri sátt meðal
manna, svo ekki sé talað um hvað
umgengnin er margfalt betri en und-
anfarin ár. Nú sér maður ekki rusl
og það er bylting.“
Þá blæs Haraldur á það tal að
margir fiskar drepist þegar þeim er
sleppt, enda hefur verið sýnt fram
það í Kanada og Noregi að fiskur
veiddur á flugu og sleppt varlega lifi
af í 98 prósentum tilfella.
Helgi Guðbrandsson veiðileið-
sögumaður þekkir vel til vorveiði á
Þingvöllum. Hann hefur komist
nokkrum sinnum í vor og hefur feng-
ið fína urriða. „En Þingvellir eru
þannig að stundum þarf maður að
fara nokkrum sinnum áður en maður
lendir í bingói,“ segir hann og tekur
undir að umgengnin hafi breyst.
„Þvílíkur munur! Menn eru
ánægðir með það hvernig ástandið
er núna, mótlætið var minna en
margir bjuggust við en það er eins
og veiðimenn skilji að þetta þurfti að
gerast. Auk þess sem veiðin hefur
verið frábær í vor og margir hafa
fengið flotta fiska. Það er óskandi að
svona verði það áfram í framtíðinni.“
Þrátt fyrir þessi orð heyrist af og
til af veiðiþjófum. Í síðustu viku
komu félagar sem höfðu leyfi til
veiða í Þorsteinsvík að veiðimönnum
sem „stóðu úti í tökustaðnum“ og
beittu makríl. Voru þeir komnir með
fullan poka af fiski og þurfti að beita
fortölum áður en þeir hurfu á braut.
En bleikjan er líka farin að gefa
sig á Þingvöllum, sem er með fyrra
fallinu. Oft hefur verið sagt að
bleikjan komi þar að landi þegar
birkið brumi, í síðustu viku maí, en
nú fréttist af mönnum sem eru að fá
nokkrar fínar í hverri ferð.
100 í bók við Hlíðarvatn
Sérfræðingar Veiðimálstofnunar
segja bleikju fara fækkandi um land
allt. Hlíðarvatn í Selvogi er eitt
þeirra vatna sem margir halda upp á
og hafa veiðitölur verið lækkandi.
Veiðin hefur þó farið ágætlega af
stað í vatninu og á fyrstu ellefu dög-
unum eftir að veiðin hófst, var búið
að skrá um 100 fiska í bókina í veiði-
húsi Ármanna en þeir hafa þrjár
stangir í vatninu. Talvert veiðist að
smárri bleikju, sem er ekki skráð og
er góðs viti fyrir framtíðina, en einn-
ig hafa allt að 60 cm bleikjur veiðst.
„Það er drjúgt pundið í hrygnunum“
Góð urriðaveiði hefur verið í Þingvallavatni Umgengni veiðimanna í þjóðgarðinum er sögð hafa
batnað mikið Bleikjan er farin að taka Veiði í Hlíðarvatni fer ágætlega af stað Laxinn mættur
Miklar sviptingar hafa verið
með leigu Fossár í Þjórsárdal
undanfarin misseri en þar má
veiða bæði lax og silung. Hregg-
nasi, sem meðal annars fer með
veiðina í Grímsá og Laxá í Kjós,
hafði leigt veiðiréttinn en land-
eigendur buðu ána síðan aftur
út, án vitundar leigutakans sem
taldi sig vera með fimm ára
samning.
Nú hefur áin verið leigð nýj-
um aðilum, Helga Guðbrands-
syni veiðileiðsögumanni og fé-
lögum hans, sem leigja
Laugardalsá við Djúp. Greindu
þeir frá því á heimasíðu sinni að
þeir hefðu gengið frá samningi
um ána. Á annað hundrað laxar
veiddust í Fossá í fyrra, þótt
ástundun hafi verið hófleg.
Nýir leigutak-
ar að Fossá
VENDINGAR Í LEIGUMÁLUM
Ljósmynd/Haraldur Eiríksson
Þurrfluguveiði Óskar Páll Sveinsson með fallegan urriða sem hann veiddi í Þorsteinsvík í sunnanverðu Þingvalla-
vatni. Hann tók þurrflugu, Black Gnat númer 12. „Það var bullandi klak í gangi og mikið af fiski,“ sagði hann.
Fjórir umsækjendur voru um emb-
ætti sóknarprests í Skagastrand-
arprestakalli, Húnavatns- og
Skagafjarðarprófastsdæmi. Emb-
ættið veitist frá 1. ágúst 2014.
Umsækjendur eru: Arnaldur
Máni Finnsson, cand. theol., séra
Bryndís Valbjarnardóttir, Elvar
Ingimundarson mag. theol. og Ólöf
Margrét Snorradóttir cand. theol.
Biskup Íslands skipar í embættið
að fenginni umsögn valnefndar.
Valnefnd skipa níu manns úr
prestakallinu auk prófasts í Húna-
vatns- og Skagafjarðarprófasts-
dæmi.
Fjórar umsóknir um Skagaströnd