Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 52
52 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Laugavegi 25, 101 Reykjavík. Sími 552-7499 | Hafnarstræti 99-101, 600 Akureyri. Sími 461-3006
www.ullarkistan.is
Gæða ullarfatnaður á góðu verði
Hlýr og notalegur í útivistina
Nýja herralínan frá
Barack Obama Bandaríkjaforseti vígði í gær safn um hryðjuverkaárás-
irnar 11. september 2001 en það stendur í grunni tvíburaturnanna í New
York. Á safningu er að finna tvær sýningar; In Memoriam, til minningar
um fórnarlömb voðaverkanna, og Historica, þar sem gerð er grein fyrir at-
burðum dagsins og eftirmálum þeirra. Meðal safngripa eru tröppur sem
stóðu á Vesey Street en um þær fór fjöldi fólks þennan örlagaríka dag, á
flótta úr brennandi turnunum. Safnið verður opnað almenningi 21. maí nk.
AFP
Til minningar um 9/11
Sagan varðveitt í grunni tvíburaturnanna
Bangkok. AFP. | Yf-
irmaður taílenska
heraflans, hers-
höfðinginn Pra-
yut Chan-O-Cha,
varaði við því í
gær að herinn
myndi ekki láta
það viðgangast að
ofbeldi og vopn-
um væri beitt
gegn almennum
borgurum. Ummælin lét hann falla
eftir að þrír létust og 23 særðust þeg-
ar vopnaðir menn köstuðu hand-
sprengjum og skutu á mannfjöldann í
mótmælum stjórnarandstæðinga í
Bangkok. Hershöfðinginn hótaði því
að herinn myndi grípa til aðgerða til
að stilla til friðar og koma á lögum og
reglu en fylgismenn stjórnarinnar,
svokallaðir rauðstakkar, hafa varað
við því að valdarán hersins sé yfirvof-
andi.
Rauðstakkar hafa sömuleiðis sagt
að borgarastyrjöld muni brjótast út
ef stjórnarandstæðingar fá sínu
framgengt en mótmælendur vilja að
efri deild taílenska þingsins útnefni
nýjan forsætisráðherra á grundvelli
ákvæða stjórnarskrárinnar.
Sitjandi forsætisráðherra, Niwatt-
umrong Boonsongpaisan, sem var út-
nefndur af stjórninni þegar Yingluck
Shinawatra var vikið úr embætti
vegna spillingar í síðustu viku, var
tilneyddur að flýja í gær þegar mót-
mælendur trufluðu fund ráðherra og
yfirkjörstjórnar landsins. Kosninga-
yfirvöld sögðu í samtali við AFP í
gær að ómögulegt yrði að halda
kosningar 20. júlín nk. líkt og til stóð
vegna óróans í landinu en mögulega
yrði efnt til kosninga í byrjun ágúst.
Stjórnarandstæðingar hafa tekið
yfir eina álmu stjórnarráðsbygging-
arinnar í Bangkok, þar sem þeir
halda blaðamannafundi til að sýna
fram á að ríkisstjórnin sé óstjórnhæf.
Þeir hafna því að efnt verði til kosn-
inga fyrr en ákveðnum umbótum hef-
ur verið komið í gegn en hafa þó ekki
skilgreint nákvæmlega hverjar þær
eiga að vera.
Hótar
inngripi
hersins
Niwattumrong
Boonsongpaisan
Sao Paulo. AFP | Víðtæk mótmæli
fóru fram í Brasilíu í gær og vildu
þátttakendur lýsa yfir óánægju sinni
með há útgjöld vegna heimsmeist-
aramótsins í knattspyrnu, sem hefst
12. júní. Sögðu fréttaskýrendur að
mótmælin væru prófsteinn á örygg-
isviðbúnað fyrir mótið.
Yfirstandandi verkföll lögreglu og
kennara og hótun um verkfall alrík-
islögreglunnar hafa valdið áhyggj-
um um að Brasilíumenn muni ekki
ráða við að halda HM.
5.000 félagar í Hreyfingu heim-
ilislausra verkamanna gengu í gær
að leikvangi liðsins Corinthians í Sao
Paulo þar sem fyrsti leikur mótsins
milli Brasilíu og Króatíu fer fram og
kveiktu í hjólbörðum.
Brasilía hefur varið rúmlega 11
milljörðum dollara (tæplega 1.250
milljörðum króna) í undirbúning fyr-
ir mótið. Mótmælendur segja að því
fé hefði verið betur varið í að bæta
grunnþjónustu á borð við almenn-
ingssamgöngur, menntun, húsnæð-
ismál og heilbrigðisþjónustu.
Mótmælin í Sao Paulo í gær
tepptu umferð og náðu bílaraðir allt
að 150 km.
Hreyfingar mótmælenda höfðu
boðað til 50 mótmæla í 10 af þeim 12
borgum þar sem leikirnir fara fram.
Alríkislögreglan sér um landa-
mæraeftirlit og vegabréfaskoðun.
Verkfall hennar skylli á um leið og
búist er við 600 þúsund gestum á
HM.
Mótmæli í Brasil-
íu vekja ugg
Óttast glundroða þegar heimsmeist-
aramótið í knattspyrnu fer fram
AFP
Mótmæli Lögregla fylgist með mót-
mælendum í Sao Paulo í gær.
Mótmælendur hafa beint kröfum
sínum til Dilmu Rousseff, forseta
Brasilíu, sem sækist eftir endur-
kjöri í kosningum í október.
„Dilma, hvar er húsið okkar?“
kölluðu mótmælendur úr röðum
Hreyfingar heimilislausra verka-
manna í Sao Paulo í gær.
Fyrir nokkrum árum var mikill
uppgangur í Brasilíu og landið fyr-
irmynd svokallaðra nýmarkaðs-
landa. Nú hefur dregið úr hagvext-
inum og
stöðnun blasir
við. Millistéttin
stækkaði á tím-
um velmeg-
unarinnar, en
nú býr hún við
aukna skatt-
byrði á meðan
grunnþjónusta
situr á hakanum í spilltu stjórn-
kerfi.
„Dilma, hvar er húsið okkar?“
ÞRÝST Á FORSETANN
Dilma Rousseff
Helmut Kohl,
fyrrverandi
kanslari Þýska-
lands, hvatti í
gær til frekari
sameiningar
Evrópu og sagði
að Evrópa ætti
að vera íbúum
álfunnar hjart-
ans mál.
„Evrópa er framtíð okkar,“
sagði Kohl í viðtali við dagblaðið
Bild. „Evrópa er örlög okkar. Evr-
ópa er spurning um stríð og frið,
með öllu sem það felur í sér, þar á
meðal ekki bara frið heldur frelsi,
velmegun og lýðræði.“
Kohl, sem er 84 ára, sagðist
uggandi vegna ástandsins í Úkra-
ínu og sagði mikilvægt að taka
upp viðræður að nýju. Hann sagði
reynsluna hafa kennt sér að það
væri mögulegt, ef menn hefðu
raunverulega vilja til þess.
Kanslarinn fyrrverandi sagði
enn fremur að hann vonaðist eftir
sigri íhaldsflokkanna á Evrópu-
þinginu og að vinur hans Jean-
Claude Juncker yrði næsti forseti
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins. Hann sagði brýnt að
koma efnahagsmálum aðildarríkj-
anna á réttan kjöl en því næst ætti
að setja pólitískan samruna aftur á
dagskrána.
ÞÝSKALAND
Hvetur til frekari samruna Evrópuríkjanna
Helmut Kohl
Skipstjórinn Lee Joon-seok og þrír áhafnarmeðlimir
ferjunnar sem sökk undan ströndum Suður-Kóreu í
apríl sl. voru í gær ákærðir fyrir manndráp. Að
minnsta kosti 284 létust þegar ferjan fór á hliðina og
sökk og eiga ákærðu yfir höfði sér dauðarefsingu ef
þeir verða fundnir sekir.
Ákærðu eru m.a. sakaðir um vítaverða vanrækslu,
þar sem þeir aðhöfðust ekkert þrátt fyrir að hafa
fengið leiðbeiningar um að aðstoða farþega við að
komast frá borði og yfirgáfu skipið í einum af fyrstu
björgunarbátunum sem komið var á flot.
Ellefu aðrir áhafnarmeðlimir hafa verið ákærðir
fyrir minni brot, þ.á m. fyrir að hafa yfirgefið skipið,
en 20 er enn saknað.
SUÐUR-KÓREA
Skipstjóri ferjunnar og þrír áhafnar-
meðlimir ákærðir fyrir manndráp
Lee Joon-seok bjarg-
að frá borði.