Morgunblaðið - 16.05.2014, Qupperneq 59
UMRÆÐAN 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Má ekki halda því
fram með rökum að
forvitni sé grunnur
menntunar? Forvitnin
hlýtur að vera það afl
sem knýr einstakling-
inn áfram til að svala
fróðleiksfýsn sinni. Í
ljósi þess ætti að vera
keppikefli allra skóla
að viðhalda og örva
forvitni nemenda.
Nýta sér hana til að nemandinn
spyrji og leiti svara – mennti sig.
Nú getum við spurt hvort skóla-
kerfið sé sá heilsubrunnur sem
fróðleiksþyrstir fái svalað þorsta
sínum. Líklega eru fleiri en bréf-
ritari er telja að svo sé alls ekki. Í
raun er dapurlegt að sjá hvernig
hin skapandi og forvitna sál
barnsins er kæfð á ótrúlega
skömmum tíma eftir að skólagang-
an hefst. Hvað veldur? Fyrir því
eru margar ástæður enda um að
ræða flókið samspil margra þátta.
Einn drjúgur þáttur þar í er
örugglega kerfið sjálft.
Öll eins?
Menntakerfi okkar byggir í
grunninn á skipulagi iðnaðarsam-
félags þar sem leitað er eftir því
að flokka fólk eftir fyrirfram gef-
inni kunnáttu. Þeir sem ekki féllu/
falla að henni lenda utan kerfis –
sum hver eftir mismiklar uppá-
komur. Þannig má segja að list-
greinar, verklegar og nýsköpun
falli ekki að „kerfinu“ enda erfitt
að mæla þær á hefðbundinn hátt.
Samræmd próf og áherslur í
skólastarfi byggja á normi sem
býr fólk undir samfélag sem er og
var en síður undir óljósa framtíð.
Allt kerfi okkar er sniðið að þess-
um markmiðum – kjarasamningar,
próf, skólabyggingar o.s.frv. Og til
þess notum við löngu úr sér
gengna kennsluhætti. Við röðum í
bekki eftir aldri fremur en þroska
og hæfileikum, kennsluhættir gera
ráð fyrir kennaranum sem mið-
punkti kennslustundar. Bara heit-
ið KENNSLUstund segir allt sem
segja þarf og lýsir verknaðinum.
Kennarinn er virkur megnið af
tímanum og nem-
endur eiga að þiggja
fróðleiksmolana af
borði hans. Væri ekki
nær að tala um lær-
dómsstund þar sem
áherslan væri á nem-
andanum fremur en
kennaranum?
Prófin valda kvíða
Margar rannsóknir
sýna að hræddur ein-
staklingur eða kvíð-
inn nýtur sín ekki til
fulls. Of mikil orka hans rennur til
að yfirvinna óttann. Samt sem áð-
ur ríghöldum við í gamla próf-
aformið. Við fyllumst ofurtrú á
samræmdum prófum, Pisa-prófum
og öðru slíku sem í raun gera lítið
annað en að mæla afmarkaða
færni við afmörkuð skilyrði. Verra
er jafnvel að ofurtrú okkar á próf-
um leiðir til þess að við látum þau
stýra menntakerfinu í þágu hinnar
dáðu normalkúrfu. Fróðlegt væri
að vita hve margir einstaklingar
hafa orðið fórnarlömb normalkúrf-
unnar og hvað það hefur kostað
samfélagið. Próf sem leið til að
sanna kunnáttu er algjörlega á
skjön við daglegt líf okkar. Á
vinnustöðum, í fjölskyldum, fé-
lagasamtökum og víðar talar fólk
sig saman um viðfangsefni. Gagn-
kvæm samskipti um málefni örvar
hugsun og hugmyndir. Þannig
vinnur fólk í daglegu lífi sínu.
Skólakerfið í raun hafnar þeirri
leið af ótta sínum við að fólk
svindli eða í bjargleysi sínu til að
komast að kunnáttu einstaklinga.
Þannig má segja að með svipunni
sem nefnist próf er kvíði fjöl-
margra einstaklinga vakinn um
leið og hafnað er möguleikanum á
að maður verði manns gaman við
úrlausn viðfangsefna. Um leið og
herpist að nýsköpun meðal nem-
enda, tækifærum þeirra til að
njóta þess að skapa og skreyta þá
herðist á prófalotum. Svo er auð-
vitað ekkert rúm eða leið að prófa
nýsköpun, listir eða annað sem
fellur utan rammans.
Hættum prófalotum!
Fjölmargir hafa orðið til þess á
liðnum árum að benda á einhverja
af ofanrituðum þáttum. Í raun eru
þeir færri sem hafa stigið fram til
að verja gamla kerfið. Samt lifir
það betra lífi en nokkru sinni.
Löngu er orðið tímabært að
stokka upp. Byrjum á að fella nið-
ur hefðbundin próf og leyfum
nemendum að sanna kunnáttu sína
með aðferðum sem eru nær raun-
veruleikanum. Hættum að láta
kjarasamninga stjórna skólastarf-
inu. Færum kennsluhætti að veru-
leika nemendanna og þeirri ein-
földu staðreynd að tæknin hefur
opnað nýja leið til þekkingaröfl-
unar. Notum hana og gefum kenn-
urunum nýtt og spennandi hlut-
verk í vendinámi og hlítarnámi
þar sem nemandinn er hinn virki
sem nýtur aðstoðar kennarans.
Búum til óttalaust umhverfi þar
sem hlutverk kennarans verður
m.a. það að svara spurningum for-
vitinna nemenda sinna í stað þess
að kæfa þær. Þá hygg ég fleiri
nemendur muni finna sig í skólum,
starfsgleði þeirra muni vaxa í
réttu hlutfalli við lifandi forvitni
og sköpunargleði. Þar með værum
við að leggja grunn að lifandi
skóla.
Drepur skólinn?
Eftir Hjálmar
Árnason » Í raun er dapurlegt
að sjá hvernig hin
skapandi og forvitna sál
barnsins er kæfð á ótrú-
lega skömmum tíma eft-
ir að skólagangan hefst
Hjálmar Árnason
Höfundur er framkvæmdastjóri
Keilis.
- með morgunkaffinu
Fyrirtæki og verslanir
Sumarleikföng í úrvali
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fötur
Sápukúlur
Boltar
45cm boltar
Flottir á trampólín
Vatnsbyssur
YooHoo
Kútar
VINNINGASKRÁ
2. útdráttur 15. maí 2014
345 10529 18017 27668 36474 46743 58345 71055
377 10691 18061 28026 37196 46809 59060 71397
720 10833 19023 28062 37221 47195 59170 71826
989 10921 19167 28565 37338 47749 60043 72117
998 11340 20042 28856 38183 48903 60546 72575
1101 11588 20347 29201 38873 48992 61513 73217
1345 11778 20755 29393 38920 49091 62170 73488
1474 11790 20764 29848 39196 49129 62420 73632
2542 12026 21125 29925 39413 49587 62593 74162
2971 12208 21634 30538 39761 49677 62617 74487
3375 12843 22253 30545 39798 50046 63104 74858
3509 13091 22368 30763 39867 50155 63198 75210
3655 13299 22484 31782 40771 50391 63572 75385
3674 13581 22530 32240 40921 50436 63773 75407
3744 13611 22566 32670 41191 50935 63974 75640
3859 13613 22936 32709 41304 51257 64426 76233
4346 13778 23732 33003 41456 51956 64785 77319
4400 13928 23931 33408 41470 53082 64832 77369
4471 14176 24026 33700 41902 53498 65884 77590
4774 14331 24036 33802 42042 53684 66574 77644
5079 14855 24067 34187 42121 53749 66744 77784
5712 15298 24324 34246 42594 53929 67584 78053
9081 15502 24730 34422 42639 54060 67636 78610
9389 15864 25286 34508 42862 54469 68051 78680
9631 16136 25780 34660 43139 55068 68237 79444
9977 16796 25831 34818 43296 55174 68382 79902
10010 17259 25991 35056 43895 55796 69089
10245 17346 26101 35070 44163 55939 69168
10394 17398 26123 35198 44465 56547 69208
10398 17579 26530 35275 44812 57015 69993
10427 17623 27174 35782 46437 57676 70130
10457 17719 27605 36248 46540 58149 70296
1085 10883 18717 29981 39843 51397 66633 73904
5449 10893 19858 30724 40654 55092 66878 74449
6085 11206 20628 31812 40742 56883 66997 76178
6289 11583 21620 32544 42428 56905 68436 76373
6868 11744 22901 32753 44087 57280 69018 76738
7551 12659 23388 33853 44343 57577 69992 77901
7978 13169 23944 35553 45151 57900 70191 77932
8038 14004 24152 35717 45485 58606 70352 78359
8106 14213 25054 35822 45556 59099 70984 79762
9548 15380 26949 37269 46603 60500 71712
9574 17262 28395 37626 49383 62558 72942
9752 17600 28924 38089 49668 63417 73006
10881 18451 29004 38121 51145 65402 73658
Næstu útdrættir fara fram 22. maí & 30. maí 2014
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
11952 60701 67980 69291
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
1301 5703 18146 31508 50896 69973
2072 10286 21091 37000 52184 77355
2839 11061 23538 38096 55197 78960
3525 13468 29964 38504 56273 79270
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
9 5 2 5
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.