Morgunblaðið - 16.05.2014, Qupperneq 61
UMRÆÐAN 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur
eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta
lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur
í eindaga til og með 15. maí 2014, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til
og með 5. maí 2014 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er
fallið hafa í eindaga til og með 15. maí 2014, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og
tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á
gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi,
launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti,
fjársýsluskatti, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila,
skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af
innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum,
skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum,
fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót
á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis og
álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar,
sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur,
fjármagnstekjuskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald,
búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í
framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði,
ofgreiddar barnabætur, ofgreiddar vaxtabætur og útvarpsgjald.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum
eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu
skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan
kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert
fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.000 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru
gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds,
vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast
við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er
skulda bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði
tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld
þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir
gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði
þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki
í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. maí 2014
Tollstjóri
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í
Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Reykjavíkurborg
þarf að hrista af sér
slenið. Við þurfum
miklu skýrari stefnu
og markvissari að-
gerðir til að fólk sjái
ástæðu til að búa
áfram í borginni. Upp
hefur safnast gríðar-
legur velferðarvandi
og vinnandi fólki
fjölgar ekki í Reykja-
vík eins og í ná-
grannasveitarfélögunum. Í borgina
vantar fleiri og jafnframt verð-
mætari störf og forsenda þess er
að hér búi fólk sem hefur þekk-
ingu og hæfileika til að drífa áfram
öflugan vinnumarkað. Nauðsynlegt
er að beina sjónum að þessum
hlutum, ef ekki á illa að fara.
Gagnrýna má margt. Við eigum
ekki að sætta okkur
við að námsárangur
barna hér sé lakari ár-
angri jafnaldranna í
öðrum löndum. Það er
merkilegt að fylgjast
með borgarfulltrúum
meirihlutans hamla
gegn breytingum og
skýla sér á bak við
það, að börnum líði vel
í skólunum. Auðvitað
er gott að börnum líði
vel en það er engin
ástæða til að telja að
ekki sé líka hægt að
ná ásættanlegum árangri. Þegar
skólakerfið stenst ekki samkeppni
erum við illa stödd. Samkeppn-
ishæfi þjóðarinnar allrar stendur
og fellur með því.
Huga þarf að því að í borginni
sé frjór jarðvegur fyrir atvinnu-
lífið.
Sérstaklega þarf svo að huga að
því hvernig borgaryfirvöld geta
auðveldað frumkvöðlum eða nýjum
fyrirtækjum að koma sér fyrir og
hefja rekstur. Einfalda verður
samskiptaleiðir við borgina og for-
gangsraða málum þannig að íbúar
þurfi ekki að standa í biðröð og ei-
lífu stappi til að fá niðurstöðu í
einföldum afgreiðslumálum. Stund-
um virðast hlutirnir vera orðnir
allt of flóknir og að stjórnkerfið
standi í vegi fyrir umbótum.
Það sem aðgreinir frambjóð-
endur sjálfstæðismanna í borginni
skýrt frá öðrum framboðum er að
við viljum að fólk hafi athafnafrelsi
á sem flestum sviðum. Hinir flokk-
arnir leggja allir áherslu á að
grunnþjónustan þurfi í öllum til-
fellum að vera á vegum borg-
arinnar og enginn geti rekið þá
þjónustu nema borgarstarfsmenn.
Þarfir viðskiptavinarins eru ekki í
forgangi af því að samkeppnin um
þjónustuna er engin. Viðskiptavin-
urinn á engra kosta völ og verður
að bíða eftir að honum sé sinnt.
Þetta ástand má bæta með meiri
samkeppni.
Góð hugmynd er að gefa hæfu
fólki tækifæri til að spreyta sig á
rekstri grunnþjónustu. Hægt er að
gera slíkt með samningum eins og
ríkið hefur gert með afar góðum
árangri í heilsugæslunni. Um leið
gefst tækifæri til að innleiða nýja
nálgun í rekstur þjónustunnar og
viðskiptavinurinn verður aðalatriði.
Þetta á við um velferð sem og
menntun. Ungt fólk með reynslu
af slíku fyrirkomulagi erlendis, t.d.
annars staðar á Norðurlöndum,
kallar eftir því að við hefjum slíkt
breytingarferli hér. Og þetta skap-
ar tækifæri og mun leiða af sér
meiri nýsköpun.
Skapa þarf umhverfi sem fær
fólk til að vilja setjast að. Við njót-
um öll kraftsins sem slíkir ein-
staklingar bera með sér. Und-
anfarin ár hefur Reykjavík verið
að dragast aftur úr. Í stað þess að
vera kraftmikil og skapandi er hún
þreytt og þung. Stöðnun og hnign-
un er á næsta leiti. Afar mikilvægt
er að á næsta kjörtímabili komist
að ný sjónarmið og breytt vinnu-
brögð í Reykjavík. Þannig stönd-
um við vörð um velferðina og bæt-
um lífsgæðin í framtíðinni.
Hristum af okkur slenið, Reykvík-
ingar.
Reykvíkingar, hristum af okkur slenið
Eftir Áslaugu Mar-
íu Friðriksdóttur » Afar mikilvægt er að
á næsta kjörtímabili
komist að ný sjónarmið
og breytt vinnubrögð í
Reykjavík.
Áslaug María
Friðriksdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Vesturbærinn í
Reykjavík er heillandi
borgarhluti, misgam-
alla en heilsteyptra
íbúðahverfa og rótgró-
ins mannlífs. Hann á
sér langa og fjölbreytta
sögu og þar má ljóslega
lesa reykvíska bygging-
arsögu, allt frá elstu
húsunum við Vest-
urgötu frá því á 19. öld,
og fikra sig til nútímans, upp Stýri-
mannastíginn, yfir Landakotshæðina
og suður á Haga og Ægisíðu.
Nýtt aðalskipulag Reykjavíkur og
útfærslur þess í nýlegum hugmyndum
að hverfaskipulagi, eru alvarleg ögrun
við mörg íbúðahverfi þessa borg-
arhluta, sérkenni þeirra og yfirbragð.
Þrenging – ekki þétting
Innan skamms eiga að rísa drunga-
legir íbúðakassar við Mýrargötu í hróp-
andi misræmi við gömlu húsin við Ný-
lendugötu, Bakkastíg og Vesturgötu.
Þrengja á mjög að byggðinni í full-
byggðum hverfum með því að fara inn
á lóðir íbúa og nýta þær til uppbygg-
ingar. Þannig er gert ráð fyrir bygg-
ingum á bílskúrslóðum og bílastæðum
við Hjarðarhaga, Meistaravelli og á
KR-svæðinu við Flyðrugranda. Gert
er ráð fyrir að byggt verði á lóð skóla-
garðanna við Þorragötu. Fá græn
svæði eru orðin eftir í hverfinu og með
þessu skipulagi fær ekki einn einasti
grænn blettur að vera í friði.
Hringbraut þrengd og henni
breytt eins og Hofsvallagötunni
Einnig er gert ráð fyrir miklum
breytingum á gatnakerfinu í hverfinu.
Opna á götur og þrengja stofnæðar.
Grenimelur og Reynimelur verða opn-
aðir út á Hofsvallagötu, Kaplaskjóls-
vegur út á Hringbraut, Víðimelur út á
Birkimel, Hagamelur út á Hagatorg
sem gerir Melskólann að umferð-
areyju og síðast en ekki síst þá verður
Hringbrautin þrengd og gerð að svo-
kallaðri borgargötu eins og Borg-
artúnið og Hofsvallagatan er.
Þessar þrengingar munu beina bíla-
umferð í síauknum mæli inn í íbúða-
hverfin. Þrengingar við Hofsvallagötu
hafa nú þegar aukið umferð ökutækja
gegnum íbúðahverfi Melanna um
1.000 bíla á dag. Hvað ætli þeir verði
margir þegar búið er að þrengja
Hringbrautina líka?
Ekki hætt við hverfaskipulagið
Vesturbæingum var illa brugðið þeg-
ar þeir sáu þessar hugmyndir og urðu
agndofa og gagnrýndu þetta skipulag
harðlega. Þá brá borgarstjórnarmeiri-
hlutinn á það ráð að svæfa málið. Það
er ekki nýlunda hjá þeim að svæfa
óþægileg mál og það er heldur ekki til-
viljun að bakkað er í málinu einmitt á
þessum tímapunkti rétt fyrir kosn-
ingar. Það er augljóst mál að Samfylk-
ingin og Björt framtíð
ætla sér að halda áfram
að vinna að þessu um-
deilda hverfaskipulagi
fái þeir stuðning til þess
í komandi borgarstjórn-
arkosningum. Enda
byggist hverfaskipulag-
ið á Aðalskipulaginu
sem Dagur B. Eggerts-
son fullyrti á borg-
arstjórnarfundi 6. maí
sl. að ekki ætti að bakka
með. Meirihlutinn hefur
unnið að þessu skipulagi
allt kjörtímabilið og kostnaðurinn við
það verður kominn upp í 150 milljónir
á þessu ári. Það er því ekki trúverðugt
að Samfylkingin og Björt framtíð séu
hætt við þessi áform sín, það er ein-
faldlega verið að kaupa sér tíma rétt
fram yfir kosningar og svo verður
skipulagið keyrt í gegn, ekki bara í
Vesturbænum heldur um alla borg.
Lýðræði borgaryfirvalda
Borgarbúar hafa því miður reynslu
af slíkum vinnubrögðum Samfylk-
ingar og Bjartrar framtíðar. Þegar
12.000 foreldrar mótmæltu skólasam-
einingum í borginni þá var málið
svæft rétt á meðan mestu mótmælin
áttu sér stað og voru svo keyrðar í
gegn. Vesturbæingar muna líka fund-
inn í Hagaskóla þegar þess var kraf-
ist að breytingarnar á Hofsvallagötu
yrðu dregnar til baka. Á þessum
sama fundi lýstu íbúar yfir áhyggjum
sínum af stóraukinni umferð inn í
hverfið eftir breytingarnar á Hofs-
vallagötunni og bentu á að öryggi
barna sem eru að leik eða á leið í og
úr skóla væri ógnað. Á þetta hefur
ekki verið hlustað og þessar fram-
kvæmdir hafa ekki verið dregnar til
baka að fullu þrátt fyrir vilja íbúa og
nú stendur til að setja 150 milljónir í
að breyta götunni enn meira. Þá hef-
ur heldur ekki verið hlustað á þá 70
þúsund einstaklinga sem mótmælt
hafa lokun Reykjavíkurflugvallar í
Vatnsmýrinni. Undirskriftasöfn-
uninni var stungið undir stól og látið
eins og hún hafi aldrei átt sér stað.
Þetta er nú allt samráðið og íbúa-
lýðræðið sem Samfylkingin og Besti
flokkurinn/Björt framtíð boðuðu og
staðfestir hvernig farið er gegn hags-
munum og vilja borgarbúa í hverju
málinu á fætur öðru.
Eftir Mörtu
Guðjónsdóttur
» Samfylkingin og
Björt framtíð ætla
að halda áfram að vinna
að þessu umdeilda
hverfaskipulagi fái þeir
stuðning til þess í borg-
arstjórnarkosningum.
Marta Guðjónsdóttir
Höfundur er varaborgarfulltrúi og
skipar 6. sæti á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins.
Vegið að Vesturbænum