Morgunblaðið - 16.05.2014, Síða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
-VOTTUÐ FRAMLEIÐSLA
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is
Hjá okkur fáið þið allar
gerðir af gleri og speglum
n slípun
n sandblástur
Allt í gleri
úti og inni
SUMARIÐer tíminn
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Með sumrinu fara bakkar Elliðaáa og
Elliaðvatns að fyllast af alsælum
stangveiðimönnum. Ofan í vatninu
eða ánni standa þeir í veiðivöðlunum
og sveifla stönginni af mikilli fimi.
Árni Friðleifsson hefur engar
áhyggjur af því að vinsældir stang-
veiði kunni að dvína á tímum há-
skerpusjónvarps, snjallsíma og int-
ernets. „Þetta eru bestu
sumardagarnir: úti í á með veiði-
stöngina, hlustandi á árniðinn og
fuglasönginn, í náinni snertingu við
íslenska náttúru.“
Árni er formaður Stangaveiði-
félags Reykjavíkur en þar er sum-
arstarfið núna að fara af stað. Veiðar í
Elliðavatni hófust venju samkvæmt á
sumardaginn fyrsta og Elliðaár verða
opnaðar 20. júní. Núna um helgina
verður svo haldin afmælisveisla en þá
verða liðin 75 ár frá stofnun félagsins,
en það var stofnað 17. maí 1939.
Pulsur og fluguhnýtingar
„Laugardaginn 17. maí verður opið
hús á skrifstofu okkar á Rafstöðv-
arvegi milli kl. 13 og 16 og ýmislegt
um að vera. Flugukastsmenn verða
með kastsýningu, gestum gefst tæki-
færi á að spreyta sig sjálfir á að
kasta, og mælt hver nær að kasta
lengst. Innandyra verða fluguhnýt-
ingamenn að störfum, boðið verður
upp á grillaðar pylsur og gos. Upp úr
kl. 15 mun stórveiðimaðurinn Ásgeir
Heiðar ganga með gestum með Ell-
iðaánum, fræða um svæðið og miðla
af reynslu sinn um hvernig best er að
bera sig að við veiðarnar á hverjum
stað. Þeir sem eiga veiðileyfi í ánni í
sumar ættu endilega að mæta og
hlusta á hvað hann hefur að segja. Þá
verður Jóhannes Sturlaugsson frá
Laxfiskum á bökkum Elliðaáa við
Rafstöðvarveg um kl. 14 og mun sýna
gestum hvernig seiði eru merkt en
það er liður í rannsóknum á lífríki
Elliðaáa.“
Í Stangaveiðifélaginu eru samtals
um 3.500 félagsmenn og starfar fé-
lagið allt árið. Þegar ekki er hægt að
veiða eru haldin fræðslukvöld og sýn-
ingar, og á sumrin er staðið fyrir
metnaðarfullu barna- og unglinga-
starfi. „Börnum og unglingum sem
eru meðlimir í félaginu er boðið að
veiða í Elliðaánum yfir fimm daga
tímabil á sumrin og einnig eigum við í
nánu samstarfi við Klettaskóla og
bjóðum nemendum þar að koma í
urriðaveiði í maí ár hvert, í samvinnu
við Orkuveitu Reykjavíkur.“
Hjartað í starfsemi félagsins er El-
liðaárnar og Elliðavatn en félagið hef-
ur gert samninga við bændur víða um
land um aðgang að veiðiám. „Fé-
lagsmenn hafa aðgang að á fjórða tug
veiðisvæða á borð við Sogið, Anda-
kílsá, Langá á Mýrum, Hítará á Mýr-
um, Varmá og hinum geysifallegu
urriðasvæðum í Laxá í Mývatns-
sveit.“
Árni reiknar með góðu veiðisumri
og virðist lífríkið við Elliðaár koma
vel undan vetri. „Ágætisveiði hefur
verið í Elliðavatni. Fiskarnir sem ég
hef séð hefa verið feitir og patt-
aralegir og seiðabúskapurinn er góð-
ur.“
Árni vill hvetja alla sem áhuga hafa
á veiði að skoða þá veiðimöguleika
sem í boði eru. Laxveiðileyfin í Ell-
liðaám geti kostað sitt en ódýrara sé
að veiða í vatninu og hægt að gera
mjög góð kaup með veiðikortinu. „Þá
fá börn undir 12 ára aldri að veiða
frítt í Elliðavatni ef þau eru í fylgd
með fullorðnum. Sömuleiðis að reyk-
vískir ellilífeyrisþegar fá að veiða án
endurgjalds í Elliðavatni.“
„Þetta eru bestu
sumardagarnir“
Stangaveiðifélag Reykjavíkur 75 ára á
laugardag Lífríkið kemur vel undan vetri
Morgunblaðið/Kristinn
Hjarta Árni segir Elliðárnar perlu sem Reykvíkingar geti verið stoltir af.
Morgunblaðið/Einar Falur
Kátur Árni Friðleifsson segir
fiskana sem veiðst hafa í Elliðavatni
í vor vera feita og pattaralega.
Háskóli fluguveiðimannsins
Árni segir Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Reykjavíkurborg og Orku-
veituna eiga í nánu og góðu samstarfi um uppbyggingu og ásýnd
veiðisvæðisins í kringum Elliðaár og Elliðavatn. Um einstakt svæði sé
að ræða í hjarta borgarinnar og hvergi annars staðar sé hægt að
finna laxveiðiá í þessum gæðaflokki sem renni gegnum miðja borg.
„Elliðaárdalur er sannkölluð perla sem Reykvíkingar mega vera
stoltir af,“ segir hann.
Að veiða í Elliðavatni þykir líka skemmtileg áskorun fyrir veiði-
manninn. Kannski eru það vinsældir þessa veiðisvæðis sem hafa kennt
fiskinum að fara varlega: „Menn vilja meina að fiskurinn í Elliðavatni
sé mjög vandfýsinn á agn og flugur. Veiðimenn þurfa að haga sér rétt
til að komast í tæri við hann og þeir sem náð hafa góðum tökum á
veiðum í Elliðavatni þykja miklir sérfræðingar. Fyrir vikið er Elliða-
vatn oft kallað háskóli fluguveiðimannsins.“
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Núna er skemmtilegasti tími ársins
að ganga í garð hjá fuglaskoðurum.
Tilhugalífið og hreiðurgerðin í full-
um gangi, egg að klekjast út og
ungar komnir á kreik, og hver veit
svo nema einhver framandi flæk-
ingur berist til
landsins sunnar
úr álfunni.
Hólmfriður
Arnardóttir er
framkvæmda-
stjóri Fugla-
verndarfélags Ís-
lands. Segir hún
að fuglaskoðun
sé hin skemmti-
legasta iðja, og
eitthvað sem áhugamenn um útivist
og hreyfingu ættu alveg sér-
staklega að skoða. „Þegar komið er
út í íslenska náttúru, hvort sem það
er upp á fjallstind eða inn í gróinn
birkiskóg er næsta skref oft að
verða forvitinn um það lífríki sem
þar þrífst og þá ekki síst fuglalífið.“
Fuglavernd stendur bæði fyrir
fuglaskoðunarferðum og fræðslu-
starfi og í sumar verður ýmislegt í
boði jafnt fyrir óreynda byrjendur í
fuglaskoðun og lengra komna.
„Skráðir félagsmenn eru um 1.200
talsins og felst starfsemin m.a. í út-
gáfu tímarits, fræðslufundum og
myndasýningum. Félagið hefur
einnig lagt ríka áherslu á gerð og
dreifingu fræðsluefnis fyrir börn í
leik- og grunnskólum og stöndum
við m.a. fyrir útgáfu kennslurits um
haförninn sem dreift er til allra
skóla á búsvæði íslenska arnarins,“
útskýrir Hólmfríður. „Félagið gæt-
ir líka hagsmuna villtra fugla og
hefur auga með því að fram-
kvæmdir valdi ekki raski á heim-
kynnum þeirra. Að auki safna sjálf-
boðaliðar félagsins upplýsingum
um ástand mikilvægra fuglasvæða
og höfum við eftirlit með friðlandi
fugla Í Flóa.“
Þeir sem vilja kynnast fugla-
skoðun betur ættu að leggja leið
sína í Norræna húsið í sumar en
þaðan verður farið í fuglaskoð-
unarferðir um Vatnsmýrina alla
laugardaga í júní kl. 4, undir leið-
sögn fuglafræðings sem leiðbeinir
gestum um hvernig má bera sig að
við fuglaskoðunina. Einnig verða
skipulagðar ferðir í fuglafriðlandið í
Flóa einhverja sunnudaga í júní og
í lok maímánaðar er á döfinni hóp-
ferð um Suðurland. Verður sú ferð
auglýst nánar á www.fuglavernd.is.
Hólmfríður segir fuglaskoðun að-
gengilegt áhugamál og auðvelt að
byrja. „Góður sjónauki kemur að
gagni en hann þarf þó ekki að vera
mjög fullkominn. Gott er að hafa
meðferðis skrifblokk og blýant til
að skrifa hjá sér einkenni s.s.
stærð, lögun, lit og flughátt, og
eiga greiningarbók til að fræðast
um þær tegundir fugla sem fyrir
augu ber eða greina hvort fuglinn
er karl- eða kvenfugl, ungur eða
gamall.“
Þeir sem komnir eru lengra í
áhugamálinu hafa margir gaman af
að eiga lítið hefti með lista yfir all-
ar fuglategundir landsins og haka
þar við þá fugla sem þeir hafa séð.
„Tæknin hefur gert það enn auð-
veldara að stunda fuglaskoðun og á
vefnum er með einföldum hætti
hægt að finna fjölda greina og leið-
beininga sem nýtast fuglaskoðand-
anum. Jafnvel snjallsíminn getur
komið að gagni við fuglaskoðun því
til eru forrit sem nota má til að
greina fuglategundir eftir útliti eða
jafnvel eftir hljóði. Skilst mér að
eitt slíkt sé í smíðum, gert með ís-
lenska fuglafánu í huga.“ ai@mbl.is
Fuglaskoðun er mjög
aðgengilegt áhugamál
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Fljúgandi Kríur í Vatnsmýrinni. Hólmfríður segir auðvelt að stíga fyrstu
skrefin í fuglaskoðun. Góður sjónauki og glósubók komi sér þá vel.
Farið verður í fuglaskoðunarferðir frá Norræna húsinu alla
laugardaga í júní og margt fleira um að vera hjá Fuglavernd í sumar
Hólmfríður
Arnardóttir