Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Side 4
Hvað er ÁHK?
Árleg hlutfallstala kostnaðar er
prósentutala sem segir til um
vexti, gjöld og allan kostnað við
töku láns, reiknuð upp á ársvexti.
Talan er hugsuð þannig að
neytendur geti borið saman
þessa einu tölu og fundið út
hvaða lán er hagstæðast.
Því lægri sem talan er því
hagstæðara er lánið.
ÁHK segir ekki til um vexti. Sem
dæmi getur ÁHK af láni sem ber
vexti verið lægri en ÁHK af láni
sem ber enga vexti.
Allur kostnaður við lántökuna er
tekinn inn í dæmið þegar ÁHK
er reiknuð út.
ÁHK má ekki fara yfir 50% að
viðbættum stýrivöxtum.
Neytendur eiga oft erfitt með að
bera saman kostnað við ólík lán. Í
nýjum lögum um neytendalán er
lögð meiri áhersla en fyrr á að lán-
veitendur birti svokallaða árlega
hlutfallstölu kostnaðar, skamm-
stafað ÁHK. Talan er reiknuð út
samkvæmt reglugerð byggðri á
Evróputilskipun. Einhverjir hafa ef-
laust rekið augun í þessa skamm-
stöfun í bæklingum og vefsíðum fyr-
irtækja sem veita kortalán fyrir
vörukaupum. En hvaða tala er þetta
og hvernig geta neytendur vitað
hvort lán er „dýrt“ eða „ódýrt“?
Kortanotkun Íslendinga tók smá-
vægilega dýfu eftir hrun en hefur
verið að aukast síðustu fjögur ár.
Samkvæmt upplýsingum frá korta-
fyrirtækjunum hefur einnig færst í
vöxt að nýju að fólk taki kortalán
eða skipti greiðslum. Svokölluð
vaxtalaus lán eru vinsæl en um er
að ræða sama fyrirbæri og áður var
kallað raðgreiðslur. Neytendur átta
sig oft ekki á þeim kostnaði sem
fylgir því að taka kortalán sem aug-
lýst eru sem vaxtalaus eða „0%.“
Nokkir þúsundkallar í kostnað við
lánið virðast ekki svo mikil fórn í
skiptum fyrir að að eignast nýtt
sjónvarp hratt og örugglega. Eina
sem þarf að gera er að mæta í
verslunina með kreditkortið á lofti
og að lokinni snöggri samningsgerð
og nokkrum undirskriftum er hægt
að halda heim með varninginn.
Lántökugjöld og greiðslu-
gjöld vega þungt
Sunnudagsblað Morgunblaðsins
skoðaði kjör á vaxtalausum korta-
lánum og yfirdráttarlánum til 6 og
12 mánaða. Þegar borin eru saman
svo ólík lán er hlutfallstalan ÁHK
það sem neytendur ættu að horfa á.
Lán með ÁHK = 20% er tvöfalt
dýrara en lán með ÁHK = 10%.
Eins og sjá má í töflunni að ofan
eru lán sem auglýst eru sem vaxta-
laus lán oft dýrari en ef neytandinn
færi hreinlega í bankann og óskaði
eftir að fá yfirdrátt fyrir sömu upp-
hæð og greiða niður á jafnlöngum
tíma. Þó skal bent á að yfirdrátt-
arlán eru ekki jafn aðgengileg, fyrst
þarf að fá samþykki útibús og það
getur tekið lengri tíma en að fá kor-
talán sem er afgreitt í versluninni
sjálfri. Í fimm dæmum af átta í töfl-
unni eru kortalánin dýrari kostur en
yfirdráttarlán. Lántökugjöld af
vaxtalausum lánum eru 3,5% og
gjöld eru tekin af hverri greiðslu.
Breki Karlsson hjá Stofnun um
fjármálalæsi bendir á að best sé
auðvitað að eiga fyrir hlutnum áður
en hann er keyptur. „Ef hins vegar
á að taka lán á annað borð þá er
ágætt að hafa í huga að það er
ákveðin þumalputtaregla að því auð-
veldara sem er að fá lánið því óhag-
stæðara er það. Oft hefur verið mið-
að við það að yfirdráttarlán séu þau
dýrustu á markaðnum. Fólki ætti
því að hugsa sig tvisvar um áður en
það tekur lán sem er enn dýrara en
yfirdráttarlán,“ segir Breki.
Vaxtalaust en ekki ókeypis
VAXTALAUS LÁN SEM HÆGT ER AÐ FÁ TIL AÐ FJÁRMAGNA KAUP Á ÝMSUM VARNINGI ERU Í SUMUM TILVIKUM DÝRARI
EN YFIRDRÁTTARLÁN. NEYTENDUR ÆTTU AÐ KYNNA SÉR FYRIRBÆRIÐ ÁHK TIL AÐ BERA SAMAN LÁNAKOSTI. ÞVÍ
LÆGRI SEM ÁHK = ÁRLEG HLUTFALLSTALA KOSTNAÐAR ER – ÞEIM MUN HAGSTÆÐARA ER LÁNIÐ.
Hvað kostar að fjármagna stóru innkaupin?
Heimild: Borgun,Valitor, Landsbankinn, Íslandsbanki og Arion banki. Útreikningar eru lánveitenda sjálfra. * Borgun veitir sams konar lán til sinna viðskiptavina: 0% vextir, 3,5% lántökugjald, 340 króna gjald á hverja greiðslu. ** Í dæmunum er miðað við vexti
samkvæmt vaxtatöflum hvers banka og gert ráð fyrir að neytandi greiði yfirdráttinn niður með mánaðarlegum greiðslum. Vextir á yfirdráttarlánum geta verið hærri eða lægri allt eftir því hvaða þjónustuleið er valin. Miðað var við vexti af sambærilegum
þjónustuleiðum: Vextir Vörðufélaga í Landsbankanum eru 12,10%, hjá Íslandsbanka eru vextir í Platínum þjónustu 12,05% og hjá Arion eru vextir í Platinum þjónustu 11,80%. Tekið skal fram að aðgengi að kortalánum er jafnan auðveldara en að yfirdráttarlánum.
Auk þess eru mánaðargreiðslur ekki alltaf jafnar í tilfelli yfirdráttarlána. ***Hjá Arion banka þarf viðskiptavinur að öllu jöfnu að greiða skjalagerðargjald sem nemur 750 krónum ef sótt er um yfirdráttarlán í netbanka en 1.950 krónum (750 + 1.200 krónur) ef
sótt er um í útibúi. Það gjald er innifalið í útreikningum á ÁHK.
Dæmi 1
Þvottavél
100.000 kr. stgr.
Dæmi 3
42” sjónvarp
200.000 kr. stgr.
Dæmi 2
Gasgrill
150.000 kr. stgr.
Dæmi 4
Sófi
300.000 kr. stgr.
Vaxtalaust kortalán* Yfirdráttarlán**
Vaxtalaust lán
hjá Borgun: 0%
vextir, 3,5% lán-
tökugjald, 340 kr.
gjald pr. greiðslu
Vaxtalaust lán
hjáValitor : 0%
vextir, 3,5% lán-
tökugjald, 330 kr.
gjald pr. greiðslu
Yfirdráttarlán
með 12,10%
vöxtum hjá
Landsbankanum
Yfirdráttarlán
með 12,05%
vöxtum hjá
Íslandsbanka
Yfirdráttarlán
með 11,80%
vöxtum hjá
Arion banka***
Alls greitt
Greiðsla á mánuði
Heildarkostnaður
ÁHK
12
m
án
. 107.580 kr. 107.460 kr. 106.674 kr. 106.527 kr. 108.466 kr.
8.965 kr. 8.955 kr. 8.890 kr. 8.877 kr. 9.039 kr.
7.580 kr. 7.460 kr. 6.674 kr. 6.527 kr. 8.466 kr.
14,6% 14,1% 12,8% 12,8% 16,7%
Alls greitt
Greiðsla á mánuði
Heildarkostnaður
ÁHK
6
m
án
. 105.540 kr. 105.480 kr. 103.559 kr. 103.515 kr. 105.459 kr.
17.590 kr. 17.580 kr. 17.260 kr. 17.253 kr. 17.577 kr.
5.540 kr. 5.480 kr. 3.559 kr. 3.515 kr. 5.459 kr.
20,2% 19,6% 12,8% 12,8% 20,3%
Alls greitt
Greiðsla á mánuði
Heildarkostnaður
ÁHK
12
m
án
. 159.330 kr. 159.210 kr. 160.012 kr. 159.791 kr. 161.662 kr.
13.278 kr. 13.268 kr. 13.334 kr. 13.316 kr. 26.944 kr.
9.330 kr. 9.210 kr. 10.012 kr. 9.791 kr. 11.662 kr.
11,9% 11,6% 12,8% 12,8% 15,3%
Alls greitt
Greiðsla á mánuði
Heildarkostnaður
ÁHK
6
m
án
. 157.290 kr. 157.230 kr. 155.338 kr. 155.272 kr. 157.180 kr.
26.215 kr. 26.205 kr. 25.890 kr. 25.879 kr. 26.197 kr.
7.290 kr. 7.230 kr. 5.338 kr. 5.272 kr. 7.180 kr.
17,8% 17,2% 12,8% 12,8% 17,7%
Alls greitt
Greiðsla á mánuði
Heildarkostnaður
ÁHK
12
m
án
. 211.080 kr. 210.960 kr. 213.349 kr. 213.054 kr. 214.858 kr.
17.590 kr. 17.580 kr. 17.779 kr. 17.755 kr. 17.905 kr.
11.080 kr. 10.960 kr. 13.349 kr. 13.054 kr. 14.858 kr.
10,6% 10,3% 12,8% 12,8% 14,6%
Alls greitt
Greiðsla á mánuði
Heildarkostnaður
ÁHK
6
m
án
. 209.040 kr. 208.980 kr. 207.117 kr. 207.029 kr. 208.900 kr.
34.840 34.830 kr. 34.520 kr. 34.505 kr. 34.817 kr.
9.040 kr. 8.980 kr. 7.117 kr. 7.029 kr. 8.900 kr.
16,5% 16,0% 12,8% 12,8% 16,3%
Alls greitt
Greiðsla á mánuði
Heildarkostnaður
ÁHK
12
m
án
. 314.580 kr. 314.460 kr. 320.024 kr. 319.581 kr. 321.250 kr.
26.215 kr. 26.205 kr. 26.669 kr. 26.632 kr. 26.771 kr.
14.580 kr. 14.460 kr. 20.024 kr. 19.581 kr. 21.250 kr.
9,2% 9,2% 12,8% 12,8% 13,9%
Alls greitt
Greiðsla á mánuði
Heildarkostnaður
ÁHK
6
m
án
. 312.540 kr. 312.480 kr. 310.676 kr. 310.544 kr. 312.342 kr.
52.090 kr. 52.080 kr. 51.779 kr. 51.757 kr. 52.057 kr.
12.540 kr. 12.480 kr. 10.676 kr. 10.544 kr. 12.342 kr.
15,2% 15,0% 12,8% 12,8% 15,0%
Lægsta ÁHK
Hæsta ÁHK
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.6. 2014
Neytendastofa hefur eftirlit með því
að lögum um neytendalán sé fram-
fylgt. Fram til þessa hefur stofnunin
einbeitt sér að því að fylgjast með
því að fyrirtæki birti neytendum
þær upplýsingar sem lögin gera ráð
fyrir. Að sögn Þórunnar Önnu Árna-
dóttur, sviðsstjóra hjá Neyt-
endastofu, hefur mikil vinna fylgt
innleiðingu löggjafarinnar. Stofn-
unin hafi ekki getað haldið úti eins
virku eftirliti með lögunum og lagt
hafi verið upp með við gildistöku
þeirra. Það komi meðal annars til
vegna þess að
ekkert fjármagn
hafi fylgt frá inn-
anríkisráðuneyt-
inu þegar Neyt-
endastofu var
falið að hafa eft-
irlit með því að
lögunum væri
framfylgt. Þá séu
breytingar, til
dæmis á skil-
málum lána og
samningum, sem fyrirtækin sjálf
þurfi að gera vegna breyttra laga
mjög umfangsmiklar. Vafatilvik við
túlkun laganna hafa einnig verið
fleiri en gert var ráð fyrir. „Alþingi
taldi þörf á að heilu stöðugildi yrði
bætt við hjá Neytendastofu í kjölfar
lagasetningarinnar en innanrík-
isráðuneytið setti enga fjármuni í
það. Við höfum reynt eftir fremsta
megni að fylgjast með því að lög-
unum sé framfylgt miðað við þá fjár-
muni sem við höfum.
Mesta púðrið hefur farið í að
fylgja því eftir að fyrirtækin veiti
þær upplýsingar sem lögin gera ráð
fyrir. Lögin snúast að miklu leyti um
aukna upplýsingagjöf til neytenda
og einnig er sett hámark á þann
kostnað sem má innheimta af neyt-
endum með hámarki á ÁHK. Neyt-
endastofa hefur orðið vör við að fyr-
irtæki eigi í erfiðleikum með að
reikna út ÁHK. Stofnunin vinnur að
leið til að geta yfirfarið útreikninga
frá fyrirtækjunum þannig að hægt
sé að staðfesta að útreikningar séu
réttir. Þá ættu neytendur að geta
treyst því að uppgefin ÁHK frá fyr-
irtækjum sé rétt,“ segir Þórunn.
Fé skortir til
að fram-
fylgja lögum
Alþingi taldi þörf
á að heilu stöðu-
gildi yrði bætt við
hjá Neyt-
endastofu í kjöl-
far lagasetning-
arinnar en
innanríkisráðu-
neytið setti enga
fjármuni í það
ÁHK er gefin upp fyrir vörur
sem hægt er að kaupa með
vaxtalausu láni Borgunar í
ELKO bæklingum. Athuganir
blaðamanns leiddu í ljós að
þær tölur eru of lágar miðað
við reglugerð um ÁHK.
Samkvæmt upplýsingum frá
Óttari Erni Sigurbergssyni,
innkaupastjóra ELKO, er beð-
ið eftir því að Borgun útbúi
reiknivél fyrir árlega hlutfalls-
tölu kostnaðar. Tekin hefur
verið ákvörðun um að ELKO
muni ekki birta upplýsingar
um ÁHK fyrr en réttur út-
reikningur frá lánveitanda ligg-
ur fyrir. Að sögn Hauks Odds-
sonar forstjóra Borgunar er
vinna nú þegar hafin við að
leiðrétta útreikninga á ÁHK.
ELKO HÆTTIR AÐ
BIRTA ÁHK VEGNA
VILLU HJÁ BORGUN
*Ný lög um neytendalán tóku gildi 1. nóvember 2013.Meiri kröfur eru gerðar til lánveitenda um að veita neyt-endum upplýsingar um alla mögulega kostnaðarliði lána. ÞjóðmálEYRÚN MAGNÚSDÓTTIR
eyrun@mbl.is