Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Blaðsíða 12
UM ALLT LAND
HÓLMAVÍK
Nemendur og starfsfólk
Grunnskólans á Hólmavík
tíndu á mánudaginn rúm
2,5 tonn af rusli í bænum
ásamt starfsmönnum áhal h tti til ð
taka til og setja rusl fyrir
sér. Sveitarstjórn Strandab
fyrir hvert kíló af rusli sem
því að segja að verkefnið
metið var 500 kg og var þ
ÓAJÖKULSÞJVATN
yrstaÍ maí lauk f
verkefnisinsáfanga
á austursvæ,,Fossar
atnajökulV
verkef
stað
fl
FLATEYRI
Arctic Oddi og útgerðarfé
ÍS 47 gáfu björgunar-
sveitinni Sæbjörgu á
Flateyri eina milljón króna
sjómannadaginn. „Framlag
tilvera björgunarsveitarinn
byggðinni mikilvæg og ver
þeim sem í stafni standa s
fullþakkað fyrir framlag sit
öryggis- og menningarmá
segir Bryndís Sigurðardót
framkvæmdastjóri Arctic
við Bæjarins besta.
SIGLUFJÖRÐUR
Gæruhús verður reist
við Síldarminjasafnið
á Siglufirði, á milli
söltunarstöðvarinnar
og verksmiðjunnar.
Gæruhúsið var byggt
á Patreksfirði seint á 19. öld og flutt til
Akureyrar 1946 en talið er að það hafi
einnig staðið á Siglufirði á fyrri hluta 20.
aldar. Húsið var tekið niður og hefur verið
em fyrirhugaðymslu á Akureyri, þar s
því verður ekkireisa það aftur. Af
úsið rísa á lóð Síldarminjasafnsi
du nnlaugsson tó
HÖRGÁRSVEIT
Leikfélag Hörgdæla hefur eignast
félagsheimilið Mela að fullu. Hörgársveit
og Kvenf
móti leikfélaginu, en skr
amninginn með því m
ú starfsemi sem fram
stuðlaði að blómlegu sta
styddi við menningarlífið
aðalnotandi Mela lengi og
Hjónin Birgir ValdimarHauksson og SteinunnÓsk Stefánsdóttir eru
bændur á Hellu. Birgir er fæddur
og uppalinn á Grímsstöðum, þétt-
býliskjarnanum sem Hella er hluti
af, hefur búið þar alla tíð og þekk-
ir því vel til vatnsins.
Ytri flói er ekki síst þekktur
fyrir að þaðan var kísilgúr dælt á
meðan verksmiðjan sú var og hét.
Guði sé lof ...
„Við veiddum ágætlega af urriða í
vor. Höfum að vísu ekki mikinn
veiðirétt í vatninu, en hefðum ekki
veitt neitt á þessum slóðum ef
ekki hefði verið búið að gera vatn-
ið aðgengilegt fyrir okkur; guði sé
lof fyrir það. Áður var ekki einu
sinni hægt að fara út á bát því
vatnið var orðið svo grunnt og
innar í flóanum, þar sem kísilgúr
var ekki dælt, er ekki hægt að
fara út á bát nema kannski
snemma á vorin. Annars er vatnið
eins og mýrarfláki þegar kemur
fram á sumar, gróðurinn stendur
upp úr,“ segir Steinunn Ósk við
Morgunblaðið. Fólk er mjög á
öndverðum meiði um áhrif dæl-
ingar kísilgúrsins úr vatninu og
best að eyða ekki meira plássi í
það að sinni ...
Hjónin hófu sauðfjárbúskap
haustið 1998. „Við erum með 300
kindur á vetrarfóðrum sem er ekki
sérlega mikið en það þarf ekki
endilega stórt bú til að selja beint
frá býli. Við vinnum ekki fram-
leiðsluna; öll okkar lömb fara í
sláturhús Norðlenska á Húsavík,
við tökum um það bil fjórðung
þess heim og vinnum hér. Ég sé
ekki endilega að það verði meira
því við erum bara tvö og tíminn
verður ekkert meiri hjá okkur. “
Félagið Beint frá býli var stofn-
að í lok febrúar 2008 og hjónin
voru með frá byrjun. „Um haustið
vorum við komin með öll tilskilin
leyfi og byrjuðum formlega á
þessari vinnslu. Við höfðum reynd-
ar reykt fisk í mörg ár en höfum
síðan stækkað aðstöðuna smátt og
smátt. Byrjuðum með reykkofa
sem fljótt varð of lítill og byggð-
um þá hús sem við lögðum hraun-
hellur ofan á [sjá mynd] þannnig
að það er eins og falið inni í
hrauninu.“
Þegar þau hófu að selja eigin
framleiðslu komst Steinunn að því
að lénið hangikjot.is var laust og
keypti það í snarhasti. Vel gengur
að selja kjötið á netinu en sú leið
hentar ekki fólki á fartinni og þess
vegna innréttuðu þau litla búð á
Hellu: Litlu sveitabúðina, eins og
hún er kölluð, og Steinunn segir
mikið um að ferðalangar reki inn
nefið. „Fyrst var markmið okkar
að selja þá úrvalsvöru, hangikjötið
okkar, en hlutirnir hafa þróast
hægt og bítandi og nú seljum við
alls kyns afurðir, tilbúnar í pottinn
eða á pönnuna,“ segir hún og sýn-
ir blaðamanni alls kyns girnilegar
vörur í búðinni.
Greinarhöfundur keypti dýrindis
reyktan silung og þurrverkað
hangikjöt sem kallað er Hellubiti:
hluti af lambahrygg. „Við höfum
ekki mikinn veiðirétt í vatninu,
bleikjan er friðuð eins og er en
við veiddum urriða í vor og reykj-
um það sem við veiðum, en yfir
90% af því sem við reykjum er
eldisfiskur frá Laxmýri í Reykja-
hverfi, mjög góður fiskur. Veiðin
er meira sport en atvinna,“ segir
Steinunn Ósk Stefánsdóttir.
MÝVATNSSVEIT
Reykkofinn
í hrauninu
BÆRINN HELLA STENDUR VIÐ HINN MARGUMTALAÐA
YTRI FLÓA MÝVATNS. BÆNDURNIR ÞAR HAFA VERIÐ Í
SAMTÖKUNUM BEINT FRÁ BÝLI FRÁ STOFNUN OG SELJA
EIGIN FRAMLEIÐSLU Á NETINU OG Í LITLU SVEITABÚÐINNI.
Steinunn Ósk Stefánsdóttir markaðsstjóri og bóndi við reykhúsið á Hellu sem er eins og grafið inn í hraunið.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Steinunn með silung og annað góðgæti sem hún selur í Litlu sveitabúðinni.
* Þetta er tónlist sem fólk getur smellt fingrum í taktvið og á að vera góður félagi í amstri dagsins.Sigurður Gunnarsson útvarpsmaður á K100, sem farin
er að senda út á Akureyri, hans gamla heimabæ.
Landið og miðin
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.6. 2014