Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.6. 2014 BÓK VIKUNNAR Innri rödd úr annars höfði er ljóðabók eftir Ásdísi Óladóttur. Vigdís Grímsdóttir segir rödd hennar vera einstaka í ljóðaheiminum, hún sé frumleg, heit og litrík. Bækur KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR kolbrun@mbl.is 20 tilefni til dagdrykkju er fjórðabók Tobbu Marinós, en áður hef-ur hún sent frá sér skáldsögurnar Makalaus og Lýtalaus og handbókina Dömusiði. Í nýju bókinni fjallar Tobba um ýmis atvik á ævi sinni frá fimm ára aldri þar til hún er 24 ára blaðakona í sífelldum vand- ræðum með sjálfa sig og fólkið í kringum sig. „Mig langaði að skrifa bók án þess að þurfa að dulbúa sögurnar. Segja þær bara eins og þær gerðust enda er raunveruleikinn oft mun ótrúlegri en skáldskapur,“ segir Tobba. „Ég rakst á skemmtilega erlenda smásagnabók þar sem höfundur sagði skemmtisögur af sjálfum sér og þar sem mér fannst þetta skemmtilegt form ákvað ég að nýta mér það. Mig langaði líka til að skrifa bók sem væri ekki hugsuð sem menningar- legt stórvirki sem breytir lífi fólks heldur bók sem skemmti fólki og fengi það til að skella upp úr nokkrum sinnum. Bókin heitir 20 tilefni til dagdrykkju af því það eru tutt- ugu kaflar í henni sem allir gefa tilefni til dagdrykkju, þótt ég hafi þurft að leggja þá iðju á hilluna þar sem ég er ólétt. Mér fannst mjög gaman að skrifa bókina en að sama skapi var það nokkuð snúið því þarna gat ég ekki skýlt mér á bak við skálduð nöfn og aðstæður því allir atburðir sem sagt er frá gerðust í raun og veru og persónurnar eru allar raunverulegar.“ Þar sem persónur bókarinnar eru raun- verulegar er Tobba spurð hvort hún hafi fengið leyfi þeirra til að segja af þeim sögur. „Þeir sem spila hvað stærst hlutverk í bók- inni fengu að lesa yfir þá kafla sem tengjast þeim,“ segir hún. Svo er alltaf eitthvað sem skolast til í minni manns þannig að ég leitaði jafnvel til þeirra sem nafngreindir eru í bók- inni til að fá staðfestingu á því sem gerðist. Ég sendi til dæmis Eiríki Jónssyni blaða- manni kafla sem fjallar um hann og spurði hann hvort ekki væri örugglega rétt með farið og hann staðfesti að svo væri. Sá kafli fjallar um það þegar ég starfaði á Séð og heyrt. Þegar ég var að skrifa þann kafla fór ég hreinlega að velta fyrir mér hvort þetta hefði allt gerst í alvöru. Eiríkur og aðrir vinnufélagar mínir staðfestu að mig hefði ekki dreymt öll þessu stórundarlegu atvik.“ Spurð hvort hún sé með hugmyndir að fleiri bókum segir Tobba: „Mig langar til að gera eitthvað allt öðruvísi næst, skrifa ann- aðhvort skáldsögu í þyngri kantinum eða gera matreiðslubók.“ Tobba á von á sínu fyrsta barni, stúlku, eftir tvær vikur. „Þetta er fyrsta barn mitt og mannsins míns og fyrsta barnabarn for- eldra minna þannig að tilhlökkunin er mikil,“ segir Tobba. „Ég er vön að vinna 10-12 tíma á dag og hef gert í mörg ár, en nú þegar barn er á leiðinni sé ég að þótt það sé gam- an og gott að vera í góðri vinnu og hafa metnað þá er það ekki það eina sem skiptir máli. Forgangsröðunin breytist töluvert við tilkomu barns og það sem manni fannst óskaplega mikilvægt áður er það kannski ekki núna. Ég hef oft sprellað þó nokkuð en er núna að ritskoða mig dálítið í þeim efnum því eftir einhver ár fer lítið kríli að fletta upp myndum af mömmu sinni og þá vil ég að það sem ég hef gert standist skoðun. En auðvitað má maður ekki tapa gleðinni og gríninu og stundum þarf maður líka að fá að vera eins og flón. Hlátur og sprell verður því í hávegum haft við uppeldið á þessu barni.“ HLÁTUR OG SPRELL Í HÁVEGUM HAFT VIÐ BARNAUPPELDIÐ Sögur án dulbúnings „Mig langar til að gera eitthvað allt öðruvísi næst, skrifa annaðhvort skáldsögu í þyngri kant- inum eða gera matreiðslubók,“ segir Tobba Marinós sem fljótlega verður móðir. Morgunblaðið/Styrmir Kári NÝJASTA BÓK TOBBU MARINÓS ER 20 TILEFNI TIL DAGDRYKKJU OG HÚN SEGIR MARKMIÐIÐ VERA AÐ SKEMMTA FÓLKI OG FÁ ÞAÐ TIL AÐ SKELLA UPP ÚR. Bækurnar þær sem ég glugga hvað mest í eru skruddur, gamlar bækur um lífið og tilveruna hjá forfeðrum okkar og -mæðrum. Bókaflokk- urinn Skrudda eftir Ragnar Ásgeirsson forsetabróður er einna efst í bunkanum, en líka söguleg skáldverk náskyld, eins og Hraunfólkið og Falsarinn eftir Björn Th. Björnsson (sem of oft gleymast á listum yfir önd- vegisverk). Stirðbusaleg frásögn í landsyfirréttardómum getur falið í sér meiri fegurð og ljótleik en viðurkenndustu fagurbókmenntir fyrir mínar móttökustöðvar. Ég nýt þess að lesa beint og á milli línanna um fólkið sem var að kveðja margra alda áþján við lok nítjándu ald- ar og upphaf þeirrar tuttugustu, fólkið sem heilsaði framförum og nýju lífi hinna uppreistu – fólkið sem loks gat rétt úr bakinu og náði að klæða sig sómasamlega gegn hríð- inni, slabbinu og kuldanum. Hversu velkomin voru ekki stígvélin á Mýrunum? Og hversu óendanlega mikill léttir var það ekki óstöndug- um leiguliðum að geta verslað framhjá kaupmönnunum og selt í út- lensk skip fé á fæti fyrir sjóð silfurs? Þjóðinni varð það mikill fjár- sjóður að komast undan oki aldanna, losna undan valdbeitingu og hafa í höndunum ríkulegar auðlindir og harðduglegar hendur. Í skruddunum eru margir sjóðir silfurs og ég fæ mér reglulega handfylli. Í UPPÁHALDI FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON KENNARI Friðrik Þór Guðmundsson er hér að glugga í eina af sínum eftirlæt- isbókum, Skruddu eftir Ragnar Ásgeirsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg Björn Th. Björnsson BÓKSALA 1. MAÍ TIL 31. MAÍ Allar bækur Listinn er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 Grillréttir HagkaupsHrefna Rósa Sætran 2 HM 2014 : hetjurnarIllugi Jökulsson 3 Átta gönguleiðir í nágrenniReykjavíkur Einar Skúlason 4 30 dagar - leið til betri lífsstílsDavíð Kristinsson 5 5:2 mataræðið með Lukku í HappUnnur Guðrún Pálsdóttir 6 Eða deyja ellaLee Child 7 Frosinn : þrautabókWalt Disney 8 Iceland small world : small ed.Sigurgeir Sigurjónsson 9 5:2 mataræðiðDr. Michael Mosley / Mimi Spencer 10 Stjörnurnar á HM 2014Illugi Jökulsson Kiljur 1 Eða deyja ellaLee Child 2 Húsið við hafiðNora Roberts 3 20 tilefni til dagdrykkjuÞorbjörg Alda Marinósdóttir 4 ParadísarfórnKristina Ohlsson 5 HHhHLaurent Binet 6 Og fjöllin endurómuðuKhaled Hosseini 7 LífsmörkAri J. Jóhannesson 8 Sannleikurinn um mál HarrysQuebert Joël Dicker 9 Marco-áhrifinJussi Adler-Olsen 10 Sögusafn bóksalansGabrielle Zevin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.