Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Blaðsíða 41
8.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
Þ
eir sem horfðu á kosningasjónvarpið á RÚV tóku væntanlega
eftir því að lítið fór fyrir störfum stílista þegar kom að klæða-
burði þáttastjórnenda í útsendingunni. Ég veit að ég er ekki
eina manneskjan á plánetunni jörð sem tók eftir þessu þótt
„umburðarlynda fólkið“ (takk Bergur Ebbi) vilji ekki ræða þetta.
Þar sem ég lá eins og hakkabuff uppi í sófa, gjörsamlega buguð af
þreytu og eurovisionlögum að reyna að fylgjast með nýjustu tölum, með
tölvuna í fanginu, voru þónokkrir vinir mínir á samfélagsmiðlunum sem
voru afar hissa á útganginum.
Þess vegna hringdi ég í Láru Ómarsdóttur, sem er nota bene af-
bragðsfréttakona, og spurði hana út í klæðaburðinn og hvort þau hefðu
fengið einhverja faglega hjálp. Í fréttinni sem ég birti á mínum vandaða
og lekkera vef sagði Lára:
„Mér finnst skondið að fólk sé að hugsa út í þetta. Ég var bara í mín-
um eigin fötum og reyndi að vera snyrtilega til fara. RÚV er ekkert með
stílista og ég vil endilega taka það fram að mér finnst innihaldið skipta
meira máli,“ segir Lára Ómarsdóttir fréttamaður og bætti við: „Það
hefur aldrei neinn spurt mig út í þetta enda erum við bara blankir
fréttamenn,“ segir hún.
Ég er sammála Láru, innihaldið þarf að vera gott og auðvitað eiga
fréttamenn að einbeita sér að því að vera vel inni í málum svo þeir geti
spurt réttu spurninganna. En er ekki óeðlilegt að stofnun eins og RÚV
skuli ekki vera með fagmanneskju á sínum snærum sem gætir þess að
útgangurinn á fréttamönnunum sé jafn vandaður og fréttaflutningurinn
sjálfur.
Í öllum hraðanum á fréttastofunni er náttúrlega enginn tími til að spá
í eitthvað svona en heildarmynd skiptir engu að síður mjög miklu máli.
Sjónvarp er þess eðlis að það þarf að lúkka vel – jafnvel þótt hér hafi
orðið hrun.
Við Egill Helgason venjum komur okkar á sama morgunkaffihúsið og
í vikunni spurði ég hann auðvitað hvort hann hefði einhvern tímann ver-
ið stíliseraður. Hann fór nú bara að hlæja þegar ég nefndi þetta og sagði
að Ragna Fossberg, förðunarmeistari stofnunarinnar, sæi til þess að
fólk mætti ekki blettótt í útsendingu.
Fólk hefur mismikinn áhuga á klæðaburði enda er ég ekki að mæla
með því að allir starfsmenn RÚV verði settir í „Extreme Makeover“.
Ég geri samt sem áður þá kröfu að yfirbragðið sé vandað – ekki eins og
fólk hafi sofnað í partíi og mætt beint í beina útsendingu.
Út frá faglegu sjónarhorni ætti stofnun eins og RÚV að leggja sig
fram við að hafa áhöfnina á móðurskipinu prýðilega til fara og það ætti
að vera jafn sjálfsagt að hafa stílista, fagfólk í tónlistinni, sviðsmyndinni
og málfarsráðunaut.
Nú ef það er ekki stemning fyrir stílistanum og fólki finnst við vera
að synda í of grunnri tjörn með þessa umræðu þá má velta fyrir sér
hvort förðunarmeisturum stofununarinnar sé ekki ofaukið. Og hár-
greiðslumeisturunum? Bara hafa þetta allt 100% náttúrulegt …
martamaria@mbl.is
Lára Ómarsdóttir og Jóhann Hlíðar Harðarson í kosningasjónvarpi RÚV.
Kosninga-
sjónvarpið
Edda Andrésdóttir fréttakona er meðvituð um klæðaburð sinn á skján-
um og er alltaf til fyrirmyndar.
Morgunblaðið/Golli
SPORTÍS
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS
KAYANO - DÖMU CUMULUS - DÖMU NIMBUS - DÖMU
Verð: kr. 30.990.-Verð: kr. 26.990.-Verð: kr. 32.990.-
KAYANO - HERRA
Verð: kr. 32.990.-
CUMULUS - HERRA
Verð: kr. 26.990.-
NIMBUS - HERRA
Verð: kr. 30.990.-
MIKIÐ ÚRVAL AF ASICS SKÓM OG FATNAÐI
SUMAR 2014
0 kr. útborgun
Langtímaleiga
Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram
allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða.
Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun,
tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert
vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald.
Losnaðu við vesenið með langtímaleigu
Kynntu þér málið í síma 591-4000
Á
R
N
A
S
Y
N
IR