Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Page 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Page 41
8.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 Þ eir sem horfðu á kosningasjónvarpið á RÚV tóku væntanlega eftir því að lítið fór fyrir störfum stílista þegar kom að klæða- burði þáttastjórnenda í útsendingunni. Ég veit að ég er ekki eina manneskjan á plánetunni jörð sem tók eftir þessu þótt „umburðarlynda fólkið“ (takk Bergur Ebbi) vilji ekki ræða þetta. Þar sem ég lá eins og hakkabuff uppi í sófa, gjörsamlega buguð af þreytu og eurovisionlögum að reyna að fylgjast með nýjustu tölum, með tölvuna í fanginu, voru þónokkrir vinir mínir á samfélagsmiðlunum sem voru afar hissa á útganginum. Þess vegna hringdi ég í Láru Ómarsdóttur, sem er nota bene af- bragðsfréttakona, og spurði hana út í klæðaburðinn og hvort þau hefðu fengið einhverja faglega hjálp. Í fréttinni sem ég birti á mínum vandaða og lekkera vef sagði Lára: „Mér finnst skondið að fólk sé að hugsa út í þetta. Ég var bara í mín- um eigin fötum og reyndi að vera snyrtilega til fara. RÚV er ekkert með stílista og ég vil endilega taka það fram að mér finnst innihaldið skipta meira máli,“ segir Lára Ómarsdóttir fréttamaður og bætti við: „Það hefur aldrei neinn spurt mig út í þetta enda erum við bara blankir fréttamenn,“ segir hún. Ég er sammála Láru, innihaldið þarf að vera gott og auðvitað eiga fréttamenn að einbeita sér að því að vera vel inni í málum svo þeir geti spurt réttu spurninganna. En er ekki óeðlilegt að stofnun eins og RÚV skuli ekki vera með fagmanneskju á sínum snærum sem gætir þess að útgangurinn á fréttamönnunum sé jafn vandaður og fréttaflutningurinn sjálfur. Í öllum hraðanum á fréttastofunni er náttúrlega enginn tími til að spá í eitthvað svona en heildarmynd skiptir engu að síður mjög miklu máli. Sjónvarp er þess eðlis að það þarf að lúkka vel – jafnvel þótt hér hafi orðið hrun. Við Egill Helgason venjum komur okkar á sama morgunkaffihúsið og í vikunni spurði ég hann auðvitað hvort hann hefði einhvern tímann ver- ið stíliseraður. Hann fór nú bara að hlæja þegar ég nefndi þetta og sagði að Ragna Fossberg, förðunarmeistari stofnunarinnar, sæi til þess að fólk mætti ekki blettótt í útsendingu. Fólk hefur mismikinn áhuga á klæðaburði enda er ég ekki að mæla með því að allir starfsmenn RÚV verði settir í „Extreme Makeover“. Ég geri samt sem áður þá kröfu að yfirbragðið sé vandað – ekki eins og fólk hafi sofnað í partíi og mætt beint í beina útsendingu. Út frá faglegu sjónarhorni ætti stofnun eins og RÚV að leggja sig fram við að hafa áhöfnina á móðurskipinu prýðilega til fara og það ætti að vera jafn sjálfsagt að hafa stílista, fagfólk í tónlistinni, sviðsmyndinni og málfarsráðunaut. Nú ef það er ekki stemning fyrir stílistanum og fólki finnst við vera að synda í of grunnri tjörn með þessa umræðu þá má velta fyrir sér hvort förðunarmeisturum stofununarinnar sé ekki ofaukið. Og hár- greiðslumeisturunum? Bara hafa þetta allt 100% náttúrulegt … martamaria@mbl.is Lára Ómarsdóttir og Jóhann Hlíðar Harðarson í kosningasjónvarpi RÚV. Kosninga- sjónvarpið Edda Andrésdóttir fréttakona er meðvituð um klæðaburð sinn á skján- um og er alltaf til fyrirmyndar. Morgunblaðið/Golli SPORTÍS MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS KAYANO - DÖMU CUMULUS - DÖMU NIMBUS - DÖMU Verð: kr. 30.990.-Verð: kr. 26.990.-Verð: kr. 32.990.- KAYANO - HERRA Verð: kr. 32.990.- CUMULUS - HERRA Verð: kr. 26.990.- NIMBUS - HERRA Verð: kr. 30.990.- MIKIÐ ÚRVAL AF ASICS SKÓM OG FATNAÐI SUMAR 2014 0 kr. útborgun Langtímaleiga Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða. Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun, tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald. Losnaðu við vesenið með langtímaleigu Kynntu þér málið í síma 591-4000 Á R N A S Y N IR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.