Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Blaðsíða 15
til baka var þessi tími sá skemmti-
legasti og mesti gefandi á ævi
minni hingað til.“
Hrönn á átján ára gamla dóttur
og er spurð hvort hún myndi ráð-
leggja henni að leggja fyrir sig
sýningastörf. „Ég myndi ekki vilja
að dóttir mín færi út jafn ung og
ég gerði. Fimmtán og sextán ára
stelpur eru börn. Þegar ég var í
Elite-keppninni hér heima fannst
mér ég ekki hafa þroska til þess,
ég var svo óskaplega ung. Strax
tveimur árum seinna var ég orðin
mun þroskaðri og vissi mun meira
um þennan bransa. Þá fór ég aftur
út og fann að ég var betur undir
það búin,“ segir hún. „Mér finnst
reyndar að stúlkur þurfi að huga
að námi og sinna því með þessum
störfum, það gerði ég ekki og sé
eftir því.“ Spurð hvort hún hafi átt
og eigi sér fyrirmyndir í módel-
bransanum segir Hrönn: „Enn
þann dag í dag er Heidi Klum mín
fyrirmynd. Hún er ótrúlega flott
kona og það sama má segja um
Claudiu Schiffer og Cindy Craw-
ford. Allt eru þetta venjulegar kon-
ur sem voru ekki eins horaðar og
margar fyrirsætur í dag. Mér
finnst margar tískusýningarsúlkur
í dag óeðlilega grannar, mér finnst
ekkert kvenlegt við það. Stundum
finnst mér þær beinlínis vera anor-
exíulegar.“
Hún er spurð hvort hún stundi
heilsurækt og hugi sérstaklega að
mataræðinu og svarar: „Ég hugsa
vel um líkama og sál. Ég stunda
líkamsrækt, kenndi á tímabili lík-
amsrækt, er mikil skíðamanneskja
og er í frábærum skíðahóp með
góðum vinum og hreyfi mig mikið.
Mér finnst gott að borða góðan og
hollan mat en verð þó að viður-
kenna að ég elska hamborgara. Ég
er afar heimakær og finnst ákaf-
lega notalegt að vera bara heima
með fjölskyldunni.“
Spurð nánar um fjölskylduhagi,
segir Hrönn: „Ég á átján ára dótt-
ur með manni sem ég var með í
stuttan tíma. Ég ól dóttur mína
upp ein og það er vissulega barátta
að vera einstæð móðir. Ég flutti til
Keflavíkur árið 2000 og kynntist
þar manni og eignaðist með honum
yndislegan dreng, Loga, sem er að
verða þrettán ára en við skildum
2006. Skilnaðurinn tók á mig og ég
varð stefnulaus í nokkurn tíma. Í
dag er ég í sambandi með yndis-
legum manni. Hann á tvö börn og
ég er mjög ánægð með líf mitt í
dag.“
Hrönn starfar á tannlæknastofu
auk þess að sinna módelstörfum.
Spurð hvort hún ætli sér að halda
áfram að vinna sem módel, segir
Hrönn: „Ég hef haft nóg að gera
síðustu ár og á meðan einhver vill
fá mig í auglýsingar þá er ég
ánægð.“
Myndir frá módelferlinum sem hófst þegar Hrönn var á ung-
lingsaldri en hún starfaði um tíma á Ítalíu. Henni var boðið að
taka þátt í fegurðarsamkeppni hér á landi en hafði ekki áhuga.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
* „Fimmtán og sextán árastelpur eru börn. Þegarég var í Elite-keppninni hér
heima fannst mér ég ekki
hafa þroska til þess, ég var
svo óskaplega ung. Strax
tveimur árum seinna var ég
orðin mun þroskaðri og vissi
mun meira um þennan
bransa. Þá fór ég aftur út og
fann að ég var betur undir
það búin,“
8.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Ert þú búin að prófa nýja
lágkolvetnabrauðið okkar?
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.