Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Blaðsíða 55
8.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 55
Rúnar er atkvæðamikill á ljósmynda-
vefnum Flickr og hýsir þar á þriðja tug
sería. „Þarna er meðal annars að finna Café
París-seríuna sem ég hef unnið að undan-
farin sex til sjö ár. Níu af persónunum sem
tilheyra þeim hópi eru nú fallnar frá. Svo
eru þarna seríur sem ég næ líklega aldrei
að klára, eins og Skammidalur, Grjótaþorpið
og Pósturinn. En það gerir svo sem ekkert
til.“
Eins og Lasse Virén
Framan af ferlinum myndaði Rúnar aðallega
fólk. Mannlífið var honum efst í huga, ekki
síst á götunni. „Í blaðaljósmyndun er óhjá-
kvæmilegt að mynda fólk. Það er ekkert
forvitnilegra en fólk.“
Eftir að hann hætti á Sjónvarpinu fyrir
fáeinum árum sneri Rúnar sér alfarið að
ljósmynduninni. „Ég fór inn í þetta af mik-
illi ástríðu. Mér fellur ekki verk úr hendi og
eftir eitt og hálft ár verð ég með aðra sýn-
ingu, í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Hver
veit nema önnur bók sé jafnvel handan við
hornið,“ segir hann en bókin Einskonar
sýnir kom út fyrir bráðum tuttugu árum.
Enda þótt hann sé orðinn sjötugur er
Rúnar alls ekki að setjast í helgan stein.
„Það geri ég vonandi aldrei. Skilningur
manns ætti að aukast og dýpka með aldr-
inum. Reynslan hlýtur að skila sér einhvers
staðar. Ég er staðráðinn í að taka góðan
endasprett, eins og Lasse Virén á Ólympíu-
leikunum í München 1972.“
Hann skellir upp úr.
Rúnar er hæstánægður með gróskuna í
íslenskri samtímaljósmyndun. Spurður
hvort ljósmyndin njóti sannmælis kinkar
hann kolli. „Ég hef aldrei heyrt neinn hall-
mæla góðri ljósmynd.“
Sjálfur kvíðir hann ekki sínum eigin
dómi. „Ég renni alveg blint í sjóinn með
þessa sýningu og það verður mjög spenn-
andi að fá viðbrögð. Verði þau góð er það
auðvitað ánægjulegt en floppi sýningin er
það mér líka að meinalausu. Mín listsköpun
snýst nefnilega um að þora. Allt annað er
óviðunandi.“
Morgunblaðið/Eggert
Rúnar Gunnarsson nýbyrjaður sem ljósmyndari á Alþýðublaðinu 1963.
Mynd úr bókinni Einskonar sýnir sem kom út árið 1995.
Forvitinn um fólk. Þessi mynd var á fyrstu sýningu Rúnars í Unuhúsi árið 1969.
Frá sýningunni í Gallery Bakaríi á Skólavörðustígnum. Hún stendur til 22. júní.
Morgunblaðið/Eggert
* Skilningur manns ætti að aukast ogdýpka með aldrinum. Reynslan hlýtur aðskila sér einhvers staðar. Ég er staðráðinn í að
taka góðan endasprett, eins og Lasse Virén á
Ólympíuleikunum í München 1972.