Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Blaðsíða 39
8.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
* Tæknin er nytsamlegur þjónn en hættulegur húsbóndi – Christian Lous Lange nóbelsverðlaunahafi
Nú styttist óðum í heimsmeist-
arakeppnina í fótbolta og því til-
valið að rifja upp einn fyrsta
tölvuleikinn sem kom út fyrir
leikjatölvur með nafni keppn-
innar. Nintendo World Cup kom
út árið 1990 og tóku Íslendingar
leiknum strax fagnandi enda var
hægt að skora með „arnarspark-
inu“ líkt og Kalli í knattspyrnu
gerði í ABC-blöðunum. Reyndar
voru fimm „arnarspörk“ í
boði í leiknum, allt eftir
því hvaða lið var valið.
Í grunninn fór leik-
urinn eftir knattspyrnu-
reglum, þó alls ekki öll-
um. Hvert lið hafði sex
leikmenn og aðeins
hægt að stýra einum
þeirra – þótt það væri
hægt að gefa hinum
leikmönnunum skip-
anir eins og að gefa
boltann eða tækla. Ekki
voru dæmdar rang-
stöður
eða auka-
spyrnur.
Meira að
segja var
hægt að
brjóta svo
oft á sama
leikmanni
andstæðingsins
að hann meiddist. Lék sá ekki
meir eftir það heldur lá óvígur
eftir.
Nintendo kynnti í kjölfar vin-
sælda leiksins fjögurra manna
brettið þar sem hægt var að
tengja fjórar fjarstýringar við
leikinn og spila. Sátu því fjórir
vinir saman og léku tveir gegn
tveimur.
GAMLA GRÆJAN
Nintendo World Cup
Martin Cooper er maðurinn sem
hringdi fyrsta GSM-símtalið. Það
gerði hann þriðja apríl 1973 þegar
hann gekk inn á blaðamannafund
sem hann hafði boðað og hringdi í
dr. Joel S. Engel sem stýrði rann-
sóknarstofu Bell. Engel var erki-
óvinur Cooper í farsímastríðinu á
árum áður.
Cooper vann fyrir Motorola og
síminn sem hann hringdi úr var
kallaður DynaTAC 8000x sem var
1,1 kíló að þyngd, var 25 senti-
metrar og aðeins var hægt að tala í
20 mínútur áður en síminn þurfti
að fara í tíu klukkutíma hleðslu.
„Þetta skapaði enginn vandræði þá.
Síminn var svo þungur að það gat
enginn haldið á honum svo lengi,“
sagði Cooper þegar hann fékk
doktorsviðurkenningu frá Stanford
háskóla í tilefni af áttræðisafmæli
sínu. 1983 var Dynatac-síminn
orðinn helmingi léttari. Símtalið
sem Cooper hringdi stóð ekki
lengi. Blaðamenn horfðu furðu
lostnir á hann velja tölurnar og
taka upp tólið. Símtalið fór í gegn-
um stöð sem Motorola hafði sett
upp á þaki Alliance Capital bygging-
arinnar og þaðan fór það inn á
landlínukerfi AT&T-símafyrirtæk-
isins. „Joel, þetta er Marty. Ég er að
hringja í þig úr alvöru farsíma.“ Svo
lagði hann á. Fyrsta símtalið hafði
verið afgreitt.
Cooper er af flestum kallaður
faðir GSM-símans. Hans sýn á
þráðlaus samskipti breyttu heim-
inum, enda er kona hans, Arlene
Harris, kölluð forsetafrú þráðlausa
kerfisins.
TÖFF TÆKNISTAÐREYND
Símtalið sem breytti heiminum
Cooper með DynaTAC 8000x.
Bílaframleiðandinn Kia frá Suður-Kóreu byrjaði ekki
að framleiða bíla heldur var fyrirtækið stofnað árið
1944 til að selja varahluti í reiðhjól. Árið 1951 byrjaði
KIA svo að gera sín eigin reiðhjól og fyrsti bíllinn
rúllaði af færibandi Kia árið 1974.
Á mótorsýningunni í Genf í marsbyrjun sýndi KIA
tvö ný rafmagnsreiðhjól, MTB og City. Fengu þau
afar jákvæð viðbrögð og hefur bílaframleiðandinn
ákveðið að setja þau í framleiðslu. Bæði hjólin sem
sýnd voru í Genf voru með 250 vatta mótor og voru
rúmlega 20 kíló að þyngd. Hámarkshraðinn verður í
kringum 25 kílómetrar á klukkustund.
City-hjólið er á 28 tommu dekkjum og þykir minna
á fyrstu hönnun Kia að reiðhjólum. MTB-hjólið er
töluvert frábrugðið í hönnun og minnir helst á nú-
tíma fjallahjól.
Grindin á báðum hjólunum verður úr áli og öðrum
léttmálmum. Bremsurnar og gírarnir koma frá fyr-
irtæki í Japan en lokafrágangur fer fram í Þýska-
landi.
HÖNNUN OG UPPFINNINGAR
Kia til
upprunans
Mikil gróska er í framleiðslu rafmagnshjóla og léttari öku-
tækja, enda vilja flestir draga úr eldsneytisnotkun.
SDF
Smáralind | Sími 512 1330
Opið Sunnudaga 13-18
iPadmini
Nettur ogflottur
Verð frá:49.990.-
iPadAir
Kraftmikill og léttur
Verð frá:84.990.-
iPad
hvarsemer,
hvenærsemer
Hágæðaheyrnartól
Sol Republic
Verð frá:6.990.-