Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.6. 2014
Ferðalög og flakk
J
örð mun skjálfa í Þýskalandi um
helgina, alltént í bænum Nür-
burg og borginni Nürnberg en
þar standa nú yfir systur-
rokkhátíðirnar Rock am Ring og
Rock im Park. Heildaraðsókn liggur
ekki ennþá fyrir að þessu sinni en
fyrir tveimur árum keyptu samtals
162 þúsund manns og 500 betur sig
inn á hátíðirnar tvær sem gera þær
að einni stærstu tónleikahátíð í
heimi.
Venjan er að allar hljómsveitir
leiki á báðum sviðum en hvor hátíð
stendur í fjóra daga. Rock am Ring
hófst síðastliðinn fimmtudag og lýk-
ur að kvöldi sunnudags en Rock im
Park byrjaði í gær, föstudag, og
lýkur á mánudaginn.
Aðalnúmerin eru ekki af verri
endanum að þessu sinni: Iron Mai-
den, Linkin Park, Kings of Leon og
Metallica.
Byrjaði, dalaði og
reis upp aftur
Rock am Ring-hátíðin var fyrst
haldin árið 1985 á kappaksturs-
brautinni Nürburgring í bænum
Nürburg í Rheinland-Pfalz. End-
urbótum við brautina var nýlokið og
sáu menn því ástæðu til að gera sér
glaðan dag. Blésu til rokkveislu með
U2, Joe Cocker, Foreigner og REO
Speedwagon í broddi fylkingar.
Löðrandi eitís-stemning. Nürborg-
arar og nærsveitamenn létu sig
heldur ekki vanta. Samtals keyptu
75 þúsund manns sig inn á svæðið
og bæjaryfirvöld þurftu ekki frekari
vitna við – endurtaka yrði hátíðina
að ári.
Simple Minds og David Bowie
trekktu prýðilega að næstu tvö árin
en Marius Müller-Westernhagen
gerði af einhverjum ástæðum ekki
eins gott mót sumarið 1988. Aðeins
30 þúsund manns ómökuðu sig til að
sjá hann. Þá var Rock am Ring
hætt.
Enginn veit hvað átt hefur fyrr
en misst hefur og þremur árum síð-
ar var hátíðin endurvakin með
INXS, Toto og Sting í broddi fylk-
ingar. Það gekk vel og allar götur
síðan hefur aðsókn oftast verið yfir
65 þúsund og síðustu átta árin yfir
80 þúsund. Iðulega uppselt í forsölu.
Hannaður af Albert Speer
Systurhátíðin, Rock im Park, var
fyrst haldin í Vínarborg árið 1993
og eftir stutta viðkomu í München
hefur heimavöllur hennar verið Zep-
pelinvangurinn í Nürnberg í Bæj-
aralandi. Hann var á sínum tíma
hannaður af Albert gamla Speer
foringjanum og öðrum oddvitum
Þriðja ríkisins til dýrðar. Það er
önnur saga. Nafnið er vitaskuld
dregið af lendingu Zeppelin-loftfars
á staðnum á því herrans ári 1909.
Nokkru færri sóttu þá hátíð
fyrstu árin en 2007 var 60 þúsund
gesta múrinn rofinn og fyrir tveim-
ur árum lögðu 76 þúsund manns
leið sína á Rock im Park.
Eins og nöfn aðalnúmeranna í ár
gefa til kynna á rokk í þyngri kant-
inum upp á pallborðið á Rock am
Ring og Rock im Park. Af öðrum
hljómsveitum sem troða upp í ár má
nefna Avenged Sevenfold, Baby-
shambles, Fall Out Boy, Mastodon,
Nine Inch Nail, Opeth, Queens of
the Stone Age, The Offspring, Ant-
hrax og Slayer.
Hvað í ósköpunum er maður að
gera í Reykjavík um hvítasunnu-
helgina?
Rokkað í
hringi
SYSTURHÁTÍÐIRNAR ROCK AM RING OG ROCK IM PARK Í
ÞÝSKALANDI NJÓTA MIKILLAR LÝÐHYLLI ENDA ERU ÞÆR
MEÐ STÆRSTU ROKKHÁTÍÐUM Í HEIMI. ÞEIR SEM SÆKJA
HÁTÍÐIRNAR HEIM UM HELGINA ERU Í MEIRA LAGI ÖF-
UNDSVERÐIR. HVERT EÐALBANDIÐ REKUR ANNAÐ.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Gríðarlegur fjöldi sækir Rock am Ring-hátíðina. Hátt í 90 þúsund manns síðustu árin og uppselt í forsölu. Vel gert.
James Hetfield og félagar í Metallica ljúka Rock am Ring-hátíðinni með hvelli að
kvöldi sunnudags. Myndin var tekin í Finnlandi, þar sem sveitin lék á dögunum.
AFP
Kings of Leon verða á aðalsviði Rock im Park í kvöld, laugardagskvöld.
TÓNLISTARHÁTÍÐASUMARIÐ HAFIÐ
*Nafnið er vita-skuld dregið aflendingu Zeppelin-
loftfars á staðnum á
því herrans ári
1909.
Lífið verður fótbolti í Brasilíu (og víðar) næstu vikurnar
en heimsmeistaramótið hefst þar á fimmtudaginn. Að
sjálfsögðu verður leikið í Rio de Janeiro og fjölmargir
gestir munu örugglega vilja stytta sér stundir milli leikja
með því að sigla á hinu fræga lóni Rodrigo de Freitas. Í
samræmi við tilefnið er búið að græja sérstaka rafbáta
sem eru eins og fótbolti í laginu og taka allt að tíu manns
í sæti. Ætla mætti að hugmyndin væri brasilísk en svo er
ekki, bátar þessir voru hannaðir fyrir HM í Suður-Afríku
fyrir fjórum árum.
AFP
Flotboltar í Rio
ALLT AÐ VERÐA KLÁRT FYRIR HM Í BRASILÍU
Hver man eftir sínu fyrsta flugi? Ef-
laust fáir, alltént hér um slóðir. Ís-
lendingar eru þjóða duglegastir að
fljúga út í hinn stóra heim enda veg-
irnir helst til blautir!
Myndband sem tekið var af
tveimur hollenskum ömmum, Riu og
An, í sínu fyrsta flugi fyrir
skemmstu fer nú eins og eldur í sinu
um netheima. Enda þótt mynd-
bandið sé partur af markaðsherferð
alþjóðlegs fyrirtækis er reynsla
kvennanna tveggja ósvikin. Þær
höfðu aldrei áður stigið fæti upp í
flugvél.
Bakgrunnur þeirra er ólíkur. Riu,
78 ára, hefur alltaf langað að fljúga
en var gift manni sem tók það ekki í
mál. An, 72 ára, hefur á hinn bóginn
alla tíð glímt við mikla flughræðslu
og engu tauti var við hana komið –
fyrr en nú. Fyrir vikið er nálgun
þeirra ólík, Ria stekkur upp í vélina
meðan An óttast að allt fari úrskeið-
is. Förinni er heitið til Barselóna.
Konurnar tvær höfðu aldrei hist
áður, en þessi glænýja lífsreynsla,
að svífa skýjum ofar, þykir sameina
þær á einstakan hátt.
Margt kostulegt veltur upp úr
ömmunum meðan á fluginu stendur.
Svo sem: „Almáttugur. 1.000 km
hraði á klukkustund. Ég hélt að 140
km hraði í bíl væri nóg.“ Og: „Mér
skilst að maður fljúgi gegnum ský-
in.“ Þá segir önnur: „Ef þú veist
ekki hvað það er er ástæðulaust að
vera hrædd við það!“
Hægt er að skoða myndbandið á
heimasíðu BBC, bbc.com.
Skilst að maður fljúgi
gegnum skýin
Ömmurnar eiturhressu agndofa í
sinni fyrstu flugferð á ævinni.
TVÆR ÖMMUR Í SÍNU FYRSTA FLUGI