Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.6. 2014
Matur og drykkir
Þ
etta er matarklúbburinn minn sem heitir Baktal og blæðingar. Í
honum erum við sjö æskuvinkonur úr Hafnarfirði. Við eru allar
frekar uppteknar þannig að fjórar til fimm telst góð mæting. Sam-
býlingur minn var heiðursgestur klúbbsins enda uppfyllir hann
einu kröfuna sem hópurinn setur: Að vera fáránlega skemmtilegur,“ segir
Björg Magnúsdóttir rithöfundur sem pústar nú eftir að hafa komið út ann-
arri bók sinni; Ekki þessi týpa. Það var því við hæfi að eyða stund í góðra
vina hópi yfir ljúffengum mat.
„Reyndar verður að viðurkennast að ég kem alltaf sterkari inn í það að
halda uppi stemningu yfir borðhaldinu en að elda sjálfan matinn
svo hinir klúbbmeðlimirnir eiga nú mestan heiðurinn af honum.
En ég er dugleg að halda veislur þar sem Pringles og súkku-
laðirúsínur eru í boði eða eitthvað sem ég get keypt. Ég ber
ómælda virðingu fyrir fólki sem kann að elda og meðhöndla mat.“
Er til lykill að góðu matarboði?
„Lykill að skemmtilegu matarboði er að sjálfsögðu líflegir og
skemmtilegir gestir. Síðan þarf líka að velta fyrir sér samsetningu
fólks við borðið, hvort „kemistríið“ á milli þess passar saman.
Vond matarboð eru fyrir mér drepleiðinlegt og þvingað borðhald
þar sem ekkert er að frétta og engum liggur nokkuð á hjarta.“
Í hvert skipti sem matarklúbburinn hittist er gamalt matarboð Bjargar
rifjað upp. Í það skiptið fékk hún enga aðstoð við matseldina.
„Og útkoman varð eftir því. Ég áttaði mig ekki á því að það þyrfti að
krydda kjúkling eða hafa sósu með honum. Hann skaðbrenndist á úr sér
genginni pönnu og það má segja að gestirnir hafi hlegið sig sadda
undir dúndrandi takti reykskynjara. Kakan, sem átti að
vera í eftirrétt, klofnaði af einhverjum ástæðum og
molnaði í duft. Kremið á henni var allt í einu orðið
rammáfengt vegna súkkulaðisósu frá Vínarborg
sem enginn nennti að lesa utan á. Í öllu stressinu
rann sósan áfenga úr höndum mér og smurðist yf-
ir eldhúsinnréttinguna. Ég er enn að finna leifar af
henni!“
Vinahópurinn sér yfirleitt um að elda og lætur Björgu eftir að vera skemmtileg.
Hópurinn mælir eindregið með því að grilla svínakjötið.
MATARKLÚBBUR HITTIST Í VESTURBÆ
Fræg fyrir
skrautleg boð
* „Þetta er matar-klúbburinn minnsem heitir Baktal og blæð-
ingar. Í honum erum við
sjö æskuvinkonur úr
Hafnarfirði.“
Gestir frá vinstri: Sigríður Mogensen, hagfræðingur; An-
toine Hrannar Fons, leikari, einkaþjálfari og flugþjónn;
Björg Magnúsdóttir, fréttamaður og rithöfundur; Karen
Emilsdóttir, flugmaður, hjúkrunarfræðingur og starfandi
flugfreyja; Svava Dís Guðmundsdóttir, sérfræðingur á
endurskoðunarsviði Ernst & Young.
BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR, RITHÖFUNDUR MEÐ MEIRU,
BAUÐ MATARKLÚBBNUM SÍNUM HEIM Í MAT. REYNDAR
SÁU VINIRNIR UM MATSELDINA.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Fyrir 5
3 stórar svínalundir
3 hvítlauksrif
nýmalaður pipar eftir
smek
1½ dl sojasósa
1 dl matarolía
1 msk. worcesters-
hiresósa
2 dropar tabascosósa
Merjið hvítlauksrifin og malið piparinn.
Hrærið saman við sojasósu, olíu, wor-
cestershiresósu og tabascosósu. Legg-
ið lundirnar í kryddlöginn og látið bíða
í ísskáp í a.m.k. 6-12 klukkutíma eða
yfir nótt. Snúið öðru hverju í blönd-
unni. Grillið um 10 mínútur á hvorri
hlið eða lokið kjötinu á pönnu og hitið
í ofni í 10-15 mínútur við 200°C eða
þar til kjötið er fulleldað.
Maríneraðar svínalundir